Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Blaðsíða 51
RAÐSTEFNUR
greina með tilliti til þenslu á sumum
landsvæðum og mikillar skulda-
söfnunar sumra sveitarfélaga að
breyta þessu ákvæði grunnskólalaga
og lengja þann tíma sem sveitarfé-
lögin hafa til að fullnusta einsetn-
ingarákvæðið um tvö eða þrjú ár.
Ég er talsmaður þess að flytja
verkefni til sveitarfélaganna og tel
það mikið byggðamál og betri nýt-
ingu á peningum, jafnframt því að
þjónusta geti orðið betri vegna ná-
lægðar og þekkingar á aðstæðum.
Grunnskólayfirfærsluna taldi ráð-
herra hafa tekist vel. Þó væri ástæða
til að hafa áhyggjur af þróun launa-
mála kennara. „Einstök sveitarfélög
hafa reynst óþarflega undanlátssöm
og rofíð þá samstöðu sem var um
störf launanefndarinnar. Osk kenn-
ara var að samið yrði við einn aðila.
Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélög-
um aukakostnað við skólahald sam-
kvæmt sanngjömum reglum og nk-
ið stendur fyllilega við samninga, en
ekkert þýðir að senda jöfnunarsjóði
reikning fýrir sértækum launahækk-
unum kennara.“
Páll Pétursson ræddi síðan yfír-
færslu á málefnum fatlaðra og þá
þróun sem orðið hefði í reynslu-
sveitarfélögunum við meðferð þessa
málaflokks, hann ræddi ný húsnæð-
islög sem hann taldi mikið fram-
faraspor. Vanda sveitarfélaga vegna
of dýrra innlausnaríbúða verði að
leysa en það gerist ekki nema á
nokkrum ámm, sagði Páll.
Ráðherra vék að fleiri nýmælum,
s.s. að nýrri jafnréttisáætlun, frum-
varpi til jafnréttislaga, að tillögu um
mótun opinberrar fjölskyldustefnu
og að undirbúningi nýrra barna-
verndarlaga. Nýju sveitarstjórnar-
lögin kvað hann skapa sveitarfélög-
unum betra starfsumhverfí og fjár-
málakaflann leiða til styrkari fjár-
málastjómar sveitarfélaganna þegar
til lengri tíma væri litið.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
flutti erindi um verkefni og viðhorf
til samstarfs ríkis og sveitarfélaga
þar sem hann varpaði fram hug-
mynd um að formlegt samstarf yrði
tekið upp milli ríkis og sveitarfélaga
um efnahagsmál. Erindi fjármála-
ráðherra er birt aftan við þessa frá-
sögn.
Sesselja Ámadóttir, deildarstjóri í
félagsmálaráðuneytinu, gerði siðan
grein fyrir fjármálakafla nýju sveit-
arstjórnarlaganna. Hún skrifaði
grein um nýju sveitarstjómarlögin í
3. tbl. Sveitarstjómannála 1998 og
skýringar með lögunum í Handbók
sveitarstjóma númer 23 sem fæst á
skrifstofu sambandsins.
Gunnar Bjömsson, formaður und-
irbúningsnefndar íbúðalánasjóðs,
flutti erindi um framkvæmd nýju
laganna um húsnæðismál. Var er-
indi hans birt sem grein í 4. tbl.
Sveitarstjómarmála 1998.
Karl Bjömsson, formaður Launa-
nefndar sveitarfélaga, flutti erindi er
hann nefndi Þróun kjaramála - fjár-
mál sveitarfélaga og var erindi hans
einnig birt sem grein í 4. tbl. 1998.
Að morgni síðari ráðstefnudags-
ins flutti Sigfús Jónsson, rekstrar-
og stjómunarráðgjafi, Nýsi hf., er-
indi er hann nefndi Einkafram-
kvæmd - tækifæri fyrir sveitarfé-
lög?
Þá flutti Marta Hildur Richter,
forstöðumaður Héraðsbókasafns
Kjósarsýslu í Mosfellsbæ, erindi um
tölvuvæðingu almenningsbóka-
safna. Um það efni skrifaði hún í
3. tbl. Sveitarstjómarmála á sl. ári.
Loks flutti Friðrik Már Baldurs-
son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, er-
indi er hann nefndi Efnahagsáætlan-
ir fyrir árið 1999 - Forsendur og
helstu óvissuþættir við gerð fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 1999 og
þriggja ára áætlunar 1999-2001.
Hann kvaðst gera ráð fyrir að um-
fang sveitarfélaga í búskap hins op-
inbera myndi aukast frá árinu 1996
úr tæplega 23% í tæplega 28% árið
1999. Heildarútgjöld á árinu 1998
væru áætluð 57,1 milljarður króna
og tekjur 53,4 milljarðar króna og
hallarekstur því um 3,7 milljarðar á
árinu 1998. Hann væri áætlaður 3,1
milljarður á árinu 1999. Verðlag
væri stöðugt svo og gengi. Efna-
hagsstefnan myndi mótast af öflug-
um hagvexti og lífskjarabata til
langframa.
Að framsöguerindum loknum
urðu almennar umræður um efni
ráðstefnunnar.
Ráðstefnuna sótti hátt á fjórða
hundrað þátttakenda að meðtöldum
fyrirlesumm og boðsgestum.
Sunnlendingar við borð. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Guðmundur Svavarsson,
oddviti Hvolhrepps, Ágúst Ingi Ólafsson, sveitarstjóri Hvolhrepps, Loftur Þorsteins-
son, oddviti Hrunamannahrepps, Sveinn Ingvarsson, oddviti Skeiðahrepps, og Árni
Erlendsson, oddviti Austur-Landeyjahrepps. Myndirnar frá fjármálaráðstefnunni tók
Gunnar G. Vigfússon.
4 5