Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Blaðsíða 63
FRA LAN DSHLUTASAMTOKUNUM
gætir ekki annars staðar. Það er því mjög mikilvægt að
Fjórðungssamband Vestfirðinga haldi vöku sinni gagn-
vart hagsmunum einstakra byggðarlaga jafnt og fjórð-
ungsins alls.
Það eru e.t.v.nýmæli að slík vöktun sé sett af stað í til-
teknum fjórðungi en með tilliti til þess hversu gífurlegra
hagsmuna Vestfirðingar hafa að gæta gagnvart öllum
breytingum á lögum er snerta sjávarútveg er rétt að
halda fúllri vöku gagnvart slíkum breytingum þannig að
hægt sé að hafa áhrif í tíma teljist hagsmunir fjóröungs-
ins fyrir borð bomir.
Sóknardagakerfi smábáta
Fjórðungsþing Vestfirðinga 1998 skorar á þingmenn
Vestljarða og n'kisstjóm íslands að endurskoða núgild-
andi ákvæði fiskveiðistjómunarlaga um sóknardagakerfi
smábáta með það að markmiði að koma á stöðugleika í
því. Fjórðungsþing ítrekar mikilvægi þess að við breyt-
ingar á fiskveiðistjómunarlögum sé haft í huga að þær
valdi ekki hættu á byggðarröskun einstakra byggðarlaga
eða landsfjórðunga.
Þingið ályktar að stefna beri að því að auðlindir í
íjöröum og á landgmnni nýtist aðlægum byggðum um-
ffam aðrar. Fordæmi slíkrar röðunar er að finna í úthlut-
un á veiðileyfum svo sem til veiða á innfjarðarækju,
hörpudiski og kúfiski. Minna má á hefðbundna nýtingu
á staðbundnum stofnum, s.s. steinbít, humri og e.t.v.
staðbundnum þorskstofnum, sem líkur em á að finnist í
vestfirskum fjörðum.
Stefnumótun fjórðungssambandsins
43. fjórðungsþingið felur stjórninni að vinna að
stefnumótun fyrir fjórðungssambandið og skila tillögum
í þeim efnum fyrir næsta fjórðungsþing. Einnig felur
þingið stjóm FV að fylgjast náið með öllum tillögum
Þrír glaðværir oddvitar, Guðmundur B. Magnússon í Kald-
rananeshreppi, Björgvin Sigurjónsson í Tálknafjarðarhreppi
og Gunnsteinn Gíslason í Árneshreppi.
Við borðið sitja, talið frá vinstri, Gunnsteinn Gislason, oddviti
Árneshrepps, Valdemar Guðmundsson, bæjarfulltrúi í Bol-
ungarvík, og Alda J. Ólafsdóttir, varabæjarfulltrúi í Bolungar-
vík. Aftar á myndinni eru, einnig taiið frá vinstri, Eiríkur Finnur
Greipsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri FV, og sýslumenn-
irnir Ólafur Helgi Kjartansson og Þórólfur Halldórsson.
um breytta kjördæmaskipan og heimild til að skipa
nefnd í þeim efnum.
Alyktuninni fýlgir svofelld greinargerð:
Starf landshlutasamtakanna er með mismunandi hætti
og tekur mið af því hvaða verkefni sveitarfélögin fela
þeim. Ljóst er að skiptar skoðanir eru meðal sveitar-
stjómarmanna á Vestfjörðum um hvaða hlutverk þeir
telji að fjórðungssambandið eigi að gegna. I fjórðungs-
sambandinu felst mikill kraftur og er þar víðtæk reynsla
saman komin. Fjórðungssambandið gæti virkað eins og
regnhlíf yfir sameiginleg verkefni sveitarfélaganna og
orðið þannig umsvifamikill rekstraraðili. Aðrir telja að
það eigi að vinna og taka þátt í brautryðjendastarfi eins
og stofnun atvinnuþróunarfélagsins, uppbyggingu fjar-
náms og stofnun þróunarseturs. Þar sem fyrirsjáanlegt er
að flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga muni
halda áfram er nauðsynlegt að unnið sé að því að kanna
hvemig slíkum málum er best komið. Fjórðungssam-
band Vestfirðinga er samstarfsvettvangur sveitarfélag-
anna og kostað af þeim. Því er eðlilegt að sveitarstjómar-
menn geri upp við sig með hvaða hætti sveitarfélögin fái
sem mest út úr þátttöku í fjórðungssambandinu.
Bætt ímynd Vestfjarða
43. fjórðungsþingið felur stjórn að vinna áfram að
bættri ímynd Vestfjarða með markvissum hætti í nánu
samráði við sveitarstjómir. Til þessa verks fari ákveðið
fé af fjárhagsáætlun og verði það notað til kynningar á
Vestfjörðum og málefnum Vestfirðinga.
Svofelld greinargerð fylgir þessari ályktun:
Vestfirðingar hafa á undanfömum ámm farið halloka í
almennri þjóðfélagsumræðu. Er nú svo komið að þorri
landsmanna hefúr mjög brenglaða mynd af Vestfjörðum
57