Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Síða 68
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
á málefnum fatlaðra til sveitarfé-
laga, gerði grein fyrir áfangaskýrslu
nefndarinnar. Soffia Gísladóttir, fé-
lagsmálastjóri Þingeyinga, gerði
grein fyrir uppbyggingu sameigin-
legrar félagsþjónustu í Þingeyjar-
sýslum.
Málefni fatlaðra á Norðurlandi
eystra eru með sérstökum hætti, því
þau eru nú í höndum sveitarfélaga á
svæðinu, samkvæmt samningi við
ríkisvaldið, til ársloka 1999. Akur-
eyrarbær annast þjónustu við fatlaða
á Eyjafjarðarsvæðinu og Félags-
þjónusta Þingeyinga annast þjón-
ustu við fatlaða á sínu þjónustu-
svæði.
Þær Valgerður og Soffía lögðu
áherslu á að sú reynsla sem fengist
af stjómun sveitarfélaganna á mál-
efnum fatlaðra samkvæmt samn-
ingnum yrði nýtt sem best við und-
irbúning að yfirfærslu málaflokks-
ins ffá ríkinu til sveitarfélaganna.
Undirbúningur að breyttri
kjördæmaskipan og
breyttum kosningaiögum
Valgerður Sverrisdóttir alþingis-
ntaður flutti erindi og gerði grein
fyrir störfum nefndar sem unnið
hefur að undirbúningi að breyttri
kjördæmaskipan og breyttum kosn-
ingalögum. Valgerður sagði núver-
andi lög gölluð m.a. vegna misvæg-
is atkvæða milli kjördæma. Jafn-
vægi væri þó í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, sem hefði um 10% af
íbúaijölda landsins og um 10% af
þingmannafjölda. Þá kynnti hún
nokkrar hugmyndir sem hefðu verið
skoðaðar og snerta Norðurland
eystra.
Ályktun um forvarnir í
fíkniefnamálum
Aðalfundurinn samþykkti að
skipaður yrði samstarfshópur á veg-
um samtakanna til þess að samhæfa
störf þeirra hópa sem starfa að for-
vömum í fíkniefnamálum á starfs-
svæðinu og var stjóm Eyþings falið
að skipa starfshópinn.
Ályktun þessi er í samræmi við
samþykkt sem var gerð á ráðstefnu
sem haldin var á Húsavík fyrr á ár-
inu á vegum átaksins „Island án eit-
urlyfja 2002“. Þar var óskað eftir
því að Eyþing kæmi á fót starfshópi
til þess að kynna sér hvaða hópar
væru starfandi að forvörnum á
svæðinu og virka sem upplýsinga-
og samræmingaraðili fyrir þá.
Stjórn Eyþings
Stjórn Eyþings var kosin til
tveggja ára. Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri Akureyrar, var kosinn
formaður. Aðrir aðalmenn í stjóm
vom kosnir Kristján Olafsson, bæj-
arfulltrúi í Dalvíkurbyggð, Guðný
Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtu-
bakkahrepps, Skarphéðinn Sigurðs-
son, oddviti Bárðdælahrepps, og
Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri
Raufarhaffiarhrepps.
Þá var kosið í fímm manna skóla-
ráð Eyþings, sem fer með málefni
Skólaþjónustunnar í umboði stjóm-
ar samtakanna. Loks voru kosnir
fjórir fulltrúar á samráðsfund
Landsvirkjunar.
Næsti aðalfundur í Grímsey
Þorlákur Sigurðsson, oddviti í
Grímsey, kvaddi sér hljóðs og bauð
til næsta aðalfundar Eyþings I
Grímsey á árinu 1999.
T 1969-1999 30 ára reynsla
h Einangrunargler lj óðeinangrunargler öryggisgler
GLERVERKSMIÐJAN
SaMVerk ehf,
Eyjasandur 2 • 850 Hella
Sími 487 5888 • Fax 487 5907
62