Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Page 6
KYNNING SVEITARFÉ LAG A
Æðarfossar í Aðaldal. í fjarska sér til Húsavíkur. Ljósm. Jón Karl Snorrason.
Aðaldælahreppur
Dagur Jóhannesson oddviti
Landslag og staöhættir
Aðaldalur liggur upp frá Skjálfandaflóa.
Hraun hefur runnið tvisvar yfir mestan hluta
dalbotnins, frá Þrengslaborgum fyrir um
2000 árum og Kerlingardyngju fyrir um 4000
árum.
Frá þeim tíma sem hraunið rann hefur Laxá
grætt upp stóran hluta dalbotnsins. Grösugar
engjar og hraun sem er að stórum hluta vaxið
birkikjarri, setja mestan svip á landið ásamt
gjallhólum sem eru gervigígar frá því hraunin runnu.
Laxá sem rennur eftir dalnum er með bestu laxveiðiám
landsins. Friðlýst votlendissvæði er við Eyvindarlæk
milli Laxár og Vestmannsvatns og annað við Sílalæk og
Sand er á náttúruminjaskrá. Afréttur sveitarinnar er
Þeistareykjaland sem er sameign með Reykdælahreppi
en er á síðustu árum aðeins nýttur af fjáreigendum í Að-
aldælahreppi og Reykjahreppi.
Hraunsrétt er skilarétt sveitarinnar, byggð
um 1838 úr hraungrýti en stækkuð um sfð-
ustu aldamót. Hún er mjög vel sótt á fyrstu
réttum á haustin, en fé fer sífellt fækkandi þó
að réttargestum fjölgi. Nokkur óvissa er um
ffamtfð réttarinnar og mjög skiptar skoðanir
um framtíðamot hennar.
Atvinnuvegir
Atvinnulíf er mjög fjölbreytt. Landbúnaður
er að vísu ennþá undirstaða byggðar í sveit-
inni en þeim fer sífellt fækkandi sem hafa atvinnu af
honum. Ýmiss konar þjónusta er vaxandi atvinnugrein;
stærstu atvinnuveitendur eru Hafralækjarskóli, Laxár-
virkjun og Vistheimilin í Árbót og á Bergi sem em rekin
af einstaklingum undir umsjón Barnaverndarstofu.
Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein og hafa nokkrir
atvinnu af henni að öllu leyti og að hluta. Verktakar em
nokkrir í jarðvinnu og byggingum.
1 96