Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Page 7
KYNNING SVEITARFÉ LAGA
Grenjaðarstaður var snemma þekktur sem eitt af bestu brauð-
um landsins. Ljósm. Jón Karl Snorrason.
Hafralækjarskóli. Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Félagsheimilið Ýdalir. Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Leikskólinn Barnaborg. Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Mannlíf og sögustaóir
Ekki er mikið sagt frá Aðaldælingum í fomsögum.
Áskell goði í Hvammi (Presthvammi) er þeirra þekktast-
ur en hann var veginn þegar hann var að reyna að sætta
óeirðarseggi. Grenjaðarstaður sem er prestssetur var
snemma á öldum þekktur staður enda eitt af bestu
brauðum landsins. Þar er nú varðveittur gamall bær frá
því urn miðja síðustu öld. Þar er byggðasafn sem er opið
yfír sumarmánuðina. Timburkirkja er þar, byggð árið
1865.
í Múla bjó Stjömu-Oddi um árið 1100 sem var merk-
ur vísindamaður á sinni tíð, þar var prestssetur fram að
síðustu aldamótum.
í Nesi er kirkja, byggð árið 1903, timburkirkja. í Ár-
nesi, sem er nýbýli frá Nesi, bjó Hermóður Guðmunds-
son sem þekktastur var sem forustumaður bænda í svo-
kallaðri Laxárdeilu sem olli þáttaskilum í allri umræðu
um náttúmvemd á íslandi.
Á Sandi bjó skáldið Guðmundur Friðjónsson.
Á síðari ámm hafa þó líklega málverk Hrings Jóhann-
essonar borið hróður dalsins víðast, en hann var með
vinnustofu í Haga og myndefni var oftast úr næsta ná-
grenni.
Hinn 1. desember 1998 vom íbúar sveitarfélagsins
300.
Skólar og félagslíf
Farskóli var í hreppnum frá því snemma á öldinni.
Kennt var þá á ýmsum bæjum eftir því sem húsakynni
sem nothæf vom buðust.
Árið 1954 var byggt í landi Grenjaðarstaðar skólahús
nreð tveimur skólastofum fyrir heimangönguskóla; þá
lagðist farskólinn að mestu af.
Árið 1964 fannst heitt vatn í landi Hafralækjar. í fram-
haldi af því var farið að huga að því að byggja sameigin-
lega skóla fyrir Aðaldælahrepp, Reykjahrepp og Tjör-
neshrepp. Sá skóli heitir Hafralækjarskóli og þjónar lýrr-
töldum hreppum ásamt norðurhluta Ljósavatnshrepps.
Skólinn tók til starfa árið 1972; þar em nú tæplega 100
nemendur.
1 97