Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Síða 28
MENNINGARMÁL
Menningarráðgjafi á Þróunar-
sviði Byggðastofhunar
Guðrún Helgadóttir menningarráðgjafi, Þróunarsviði Byggðastofnunar
Á haustdögum tók greinarhöfund-
ur til starfa sem menningarráðgjafi á
Þróunarsviði Byggðastofnunar á
Sauðárkróki. Forsaga málsins er sú
að sl. sumar tók stjóm Byggðastofn-
unar þá ákvörðun að veita fjármagn
til eflingar menningarstarfsemi á
landsbyggðinni í samræmi við 10.
grein þingsályktunar um stefnu í
byggðamálum fyrir árin 1999-2001.
Menntamálaráðuneytið hafði þá
leitað eftir hugmyndum Byggða-
stofnunar um aðgerðir og má segja
að stjóm stofnunarinnar hafi bmgð-
ist skjótt við með tvíþættri ákvörð-
un: að ráða starfsmann og að veita
atvinnuþróunarfélögunum Qárveit-
ingu til að sinna þessum málaflokki.
Opinberir aðilar, ríki og sveitarfé-
lögin, reka menningarstofnanir og
fara með stjómsýslu á sviði menn-
ingarmála. Menningarmál í merk-
ingunni listir og safnastarf heyra
undir menntamálaráðuneytið að því
er snertir mál sem varða landið í
heild og undir sveitarfélögin og em
hjá þeim vistuð ýmist með ffæðslu-
málum eða íþrótta- og æskulýðs-
málum eða í sérstökum menningar-
málanefndum sem fara með mála-
flokkinn í hlutaðeigandi sveitarfé-
lagi. En hvers vegna er Byggða-
stofnun farin að vasast í menningar-
málum með ráðningu menningar-
ráðgjafa? Hvaða erindi eiga menn-
ingarmálin inn í byggðastefhu?
Það er þrennt sem kemur fyrst
upp við rökstuðning þeirrar áherslu
sem menningarmálum er ætluð í nú-
verandi byggðastefnu:
• Menning er atvinnugrein, og
með viðurkenningu á þeirri
staðreynd opnast augu okkar
fyrir ákveðnum tækifærum til
að auka fjölbreytni atvinnulífs
á landsbyggðinni.
• Menning, tækifæri til að njóta
hennar bæði sem neytandi og
gerandi er meðal þess sem fólk
nefhir helst sem nauðsynlegan
þátt í að gera samfélag æski-
legt til búsetu.
• Menningarminjar og menning-
arverðmæti þjóðarinnar er í
miklum mæli að finna á lands-
byggðinni. Þar standa þau í
sínu sögulega samhengi og
varðveisla þeirra og kynning
er nauðsyn fyrir framtíðina. Til
þess að þetta sé hægt þarf að
stuðla að meiri starfsemi á
þessu sviði alls staðar á land-
inu.
Verksvið mitt sem menningarráð-
gjafí er í grófum dráttum fjórþætt:
• Að hafa yfírsýn og veita upp-
lýsingar þeim aðilum sem
starfa að menningarmálum á
landsbyggðinni.
• Að veita ráðgjöf, bæði aðilum
á landsbyggðinni og þeim aðil-
um sem eiga að starfa á land-
inu sem heild.
• Að stunda og stuðla að rann-
sóknum á menningarmálum á
landsbyggðinni.
• Að stuðla að enn virkari
tengslum þeirra sem starfa að
menningarmálum, bæði land-
rænt og svæðisbundið.
Sveitarfélögin og samtök þeirra
eru einn mikilvægasti hlekkurinn í
keðju þeirra samstarfsaðila sem
standa að menningarstarfsemi á
landsbyggðinni. Því er það kærkom-
ið að fá að kynna þetta nýja starf hér
á síðum Sveitarstjórnarmála. Eg
sendi einnig erindi til sveitarstjóma
til kynningar og jafnframt óska ég
eftir samstarfi við menningarfulltrúa
sveitarfélaganna. Byggðastofnun
mun á næstunni boða til fundar
sveitarstjóra á Byggðabrúnni til að
kynna samstarf um búsetuþætti, en
menningar- og menntamál eru
einmitt einn þessara þátta.
í næstunni verður í Sveitarstjóm-
armálum ítarlegar fjallað um menn-
ingarmál, enda verður starfið þá far-
ið að mótast nánar. Að lokum hvet
ég lesendur til að nýta sér þá þjón-
ustu sem Þróunarsvið Byggðastofh-
unar veitir undir merkjum menning-
arráðgjafar og læt hér fylgja póst-
og netfang með óskum um farsælt
samstarf að eflingu menningarstarf-
semi úti um land.
Guðrím Helgadóttir menningarráðgjafi
Þróunarsvið Byggðastofnunar
Skagfirðingabraut 21
550 Sauðárkrókur
netfang: gudrun@bygg.is
2 1 8