Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Side 53
...anda, vanda
gættu þinna handa...
Spilliefni sem við skolum niður í holræsi, gröfum í jörðu
eða spúum út í loftið, eitra umhverfið sem við lifum og
leikum okkur í. Spilliefni eru skaðleg umhverfi, mönnum
og dýrum. Þess vegna ber að afhenda öll spilliefni til
eyðingar á öruggan hátt.
Almenningur skilar spilliefnum á endurvinnslustöðvar
SORPU en fyrirtæki skila í Efnamóttökuna hf. Mikilvægt
er að efni séu í lokuðum umbúðum og rétt merkt.
Dæmi um spilliefni sem finnast á heimilum og ber að skila til eyðingar:
Úðabrúsar, rafhlöður, málning, lakk, leysiefni t.d. terpentína og þynnir,
lyf, límafgangar, hreinsilögur, stíflueyðir, frostlögur, olíuefni, rafgeymar,
klórmenguð efni, leysi- og eiturefni og pakkningar undan þeim, og
kvikasilfur t.d. í hitamælum.
EFNAMÓTTAKAN H F
243
VJS / flN S apH