Sveitarstjórnarmál - 01.10.1999, Page 64
LÍFEYRISMÁL
Fyrsti ársfundur Líf-
eyrissjóðs starfs-
manna sveitarfélaga
Fyrsti ársfundur Lífeyrissjóðs
starfsmanna sveitarfélaga var hald-
inn 16. júní sl. í fundarsal Sambands
íslenskra sveitarfélaga að Háaleitis-
braut 11 í Reykjavík.
Sjóðurinn var stofnaður hinn
8. september 1998, eins og frá var
skýrt i grein Jóns G. Kristjánssonar,
ffamkvæmdastjóra sjóðsins, í 2. tölu-
blaði Sveitarstjórnarmála í ár, og
lauk þá þvi ferli sem hófst i árslok
1996 þegar stjóm sambandsins skip-
aði starfshóp til að gera tillögur um
framtíðarskipan lífeyrissjóðsmála
sveitarfélaga. Formlegt starfsleyfí
var á hinn bóginn ekki gefið út fyrr
en 8. desember 1998.
Hin reglulega starfsemi lífeyris-
sjóðsins, þ.e. móttaka og ávöxtun
iðgjalda, var eðli máls samkvæmt
lítil á árinu 1998. Samkvæmt árs-
reikningnum námu heildariðgjöld
vegna ársins 1998 59.298.294 kr. í
árslok voru 3.453 einstaklingar sjóð-
félagar. í skýrslu stjómarformanns,
Karls Björnssonar, bæjarstjóra í
Sveitarfélaginu Árborg, kom ffam að
áætlað er að iðgjaldatekjur fyrir 1999
verði rúmlega 300 millj. kr. Fyrstu
fjóra mánuði þessa árs vom iðgjalda-
tekjur rúmlega 111 millj. króna og
fjöldi sjóðfélaga orðinn 4.943.
Á fundinum kom ffam að 53 sveit-
arfélög auk 8 aðila, landshlutasam-
taka og stofnana sveitarfélaga, greiða
til sjóðsins af nýjum starfsmönnum í
stéttarfélögum opinberra starfs-
manna og þeirra einstaklinga sem
hafa kosið að flytja sig til sjóðsins.
Stjórnarformaður sagði í ræðu
sinni að hann teldi engin rök fyrir
sveitarfélög að halda sig fyrir utan
Lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfé-
laga en nokkur standi enn fyrir utan
sjóðinn. Hann kvað fjárhagslega
áhættu sveitarfélagsins ekki meiri en
að vera í LSR en hins vegar eigi
starfsmenn sem greiða til LSS meiri
valmöguleika í lífeyristryggingum en
þeir eiga í LSR. Það ætti því að vera
keppikefli sveitarstjóma að bjóða
starfsmönnum aðild að sjóðnum og
þannig bæta kjör þeirra sem beinlínis
hafa hag af því valffelsi sem V-deild
LSS gefur kost á.
Á fundinum var ennffemur greint
ffá því að staðfestur hafi verið samn-
ingur milli LSS og Lífeyrissjóðs
starfsmanna Reykjavíkurborgar um
að LSS taki yfir rekstur hins síðar-
nefnda og sömuleiðis að bréf hafi
borist ffá bæjarstjóranum á Húsavík
þar sem staðfestur var vilji stjómar
Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavík-
urkaupstaðar um að semja við LSS
um rekstur þess sjóðs.
Lokar, tengistykki og
viðgerðarmúffur
vatns- og hitaveitur
AG-VP/99-09
i
254