Morgunblaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Það hefur lengi verið barátta við að stöðva
sandfok inn í byggðina í Vík,“ sagði Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri. Einar Bjarnason og
Jóhann Bjarnason, starfsmenn Landgræðsl-
unnar, unnu í gær að því að gera við sandfoks-
girðingar sunnan við þorpið í Vík.
Sveinn sagði að sjórinn hefði farið að brjóta
landið framan við þorpið í Vík eftir 1970-80. Þá
fór að fjúka stöðugt meiri sandur úr fjörunni.
Landgræðslan hefur kappkostað í samvinnu við
heimamenn að draga úr sandfokinu inn í byggð-
ina og það oftast tekist, að sögn Sveins.
Sandurinn úr fjörunni hefur löngum sótt að þorpinu í Vík í Mýrdal
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Reynt að girða fyrir sandfokið
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Markaðsaðilar á skuldabréfamarkaði,
s.s. bankar, lífeyrissjóðir og verð-
bréfa- og fjárfestingasjóðir, vænta
þess að verðbólga verði 5% eftir tólf
mánuði, 4,7% eftir tvö ár og 4,3% að
meðaltali næstu tíu ár. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í nýrri könnun
Seðlabanka Íslands
Verðbólgan stóð í 6,5% þegar könn-
unin var gerð en þótt þátttakendur í
könnuninni geri ráð fyrir að hún fari
minnkandi á árinu er ljóst að verð-
bólguvæntingar þeirra eru töluvert
yfir verðbólgumarkmiði Seðlabank-
ans sem er 2,5%.
„Þetta er alveg í takt við verðbólgu-
væntingar hjá stjórnendum almennt
held ég,“ segir Hannes G. Sigurðsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. „Þeir búast við því að
verðbólgan hjaðni úr þessum rúmu 6%
í nálega 5% og óttast það að Seðla-
bankinn muni hækka vextina vegna
þessarar miklu verðbólgu,“ segir
hann.
Krónan til vandræða
Hannes segir gengið hafa veikst
miklu meir en nokkur óttaðist, vonir
hefðu staðið til að það myndi styrkjast
á árinu. Verðbólguvæntingarnar end-
urspegli þá staðreynd að hér sé ekkert
innstreymi erlends fjármagns. „Það er
það sem þarf til þess að styrkja gengið
og þannig myndum við ná verðbólg-
unni niður,“ segir hann. Forsenda
þessa séu framkvæmdir stórra verk-
efna hérlendis.
Verði þessar væntingar að raun-
veruleika er augljóst að forsendur
kjarasamninga eru brostnar en Gylfi
Arnbjörnsson, forseti Alþýðusam-
bands Íslands, segir að stöðugleika á
atvinnumarkaði verði ekki viðhaldið
með veikum gjaldmiðli og lágum
kaupmætti.
„Við gerðum að ég hélt tvíhliða
samkomulag um að skapa hér þær að-
stæður að króna myndi endurheimta að
minnsta kosti hluta af sínum fyrri
styrk,“ segir Gylfi. Staðan sé hins vegar
sú að útflutningsgreinarnar sýni óeðli-
lega mikinn hagnað á meðan aðrar at-
vinnugreinar og heimilin í landinu séu
að kikna undan álaginu vegna ónýts
gjaldmiðils.
„Það vill enginn hafa krónu í hönd-
unum. Það eru allir búnir að gefast upp
á þessum gjaldmiðli nema hugsanlega
stjórnmálamennirnir.“
Gera ráð fyrir hærri vöxtum
Könnunin var send 27 aðilum en svör-
un var 74,1%. Væntu svarendur þess að
stýrivextir Seðlabankans myndu hækka
um 0,75% á árinu og um 0,25% á fyrsta
ársfjórðungi næsta árs. Ef þetta gengur
eftir verða veðlánavextir bankans um
5,75% í lok mars 2013 en eru nú 4,75%.
Verðbólgan 4,3% næstu tíu ár
Væntingar markaðsaðila talsvert umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans Gera ráð fyrir að veð-
lánavextir verði 5,75% í lok mars 2013 Heimili og fyrirtæki að kikna undan álaginu, segir forseti ASÍ
Gylfi
Arnbjörnsson
Hannes G.
Sigurðsson
Risastór högl buldu á hluta þorpsins
á Reykhólum í gærmorgun, að sögn
Reykhólavefsins. Höglin í élinu voru
allt að tveir sentimetrar í þvermál.
Aðeins hluti þorpsins varð fyrir
stóru höglunum en annars staðar
voru kornin af venjulegri stærð.
Veðurstofan spáði því í gærkvöldi
að vindur gengi í suðaustan 15-23
m/s í nótt en 13-18 m/s norðaustan-
og austanlands. Spáð var rigningu
og sums staðar slyddu í fyrstu en úr-
komulitlu á Norðurlandi. Talsverðri
úrkomu var spáð á Suðausturlandi.
Veður fer hlýnandi og verður hiti 2-9
stig á morgun, hlýjast fyrir norðan.
Á morgun, laugardag, er spáð suð-
vestan 8-13 m/s og éljum en úrkomu-
lausu norðaustan- og austanlands
eftir hádegi. Frost verður 0-6 stig en
sums staðar frostlaust við ströndina.
Risastór högl buldu
á Reykhólum í éli
Spáð er roki og
rigningu víða í dag
Ljósmynd/Hlynur Þór Magnússon
Stór Höglin líktust sykurmolum og
voru allt að 20 mm í þvermál.
Kristján Þór Júl-
íusson, þingmað-
ur Sjálfstæðis-
flokksins, gefur
kost á sér sem 2.
varaformaður
flokksins en kos-
ið verður í emb-
ættið í fyrsta
skipti á flokks-
ráðsfundi 17.
febrúar nk.
Í tilkynningu frá Kristjáni kemur
m.a. fram að hann óski eftir því að
fá að halda áfram þeirri vinnu sem
hann tók að sér vorið 2010 í forystu
framtíðarnefndar. Það komi í hlut
nýs embættis annars varaformanns
að tryggja að nauðsynlegar skipu-
lagsbreytingar sem nefndin átti
frumkvæði að verði að veruleika.
Til þess þurfi skýra framtíðarsýn,
ósérhlífni og dugnað en fyrst og
fremst jákvætt hugarfar gagnvart
nauðsynlegum breytingum á
flokknum.
Kristján Þór starfaði í 20 ár sem
bæjarstjóri en frá 2007 hefur hann
verið fyrsti þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins í Norðausturkjördæmi.
Þrír aðrir lýst yfir framboði
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
í Hveragerði, Geir Jón Þórisson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, og
Jens Garðar Helgason, formaður
bæjarráðs Fjarðabyggðar, hafa
einnig lýst yfir framboði í embættið.
Kristján Þór býður
sig fram til 2. vara-
formanns
Kristján Þór
Júlíusson
Viðskiptajöfnuður var óhag-
stæður um 48,9 milljarða
króna á fjórða ársfjórðungi síð-
asta árs en hann var hagstæður
um 8 milljónir króna fjórðung-
inn á undan. Afgangur af vöru-
skiptum við útlönd var 15,3
milljarðar en 5 milljarða króna
halli var á þjónustuviðskiptum.
Jöfnuður þáttatekna var nei-
kvæður um 59,2 milljarða.
Óhagstæður
um 48,9 ma.
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR
Þinglýsing-
arvottorð
þingmanna
hafa verið
birt á net-
inu. Skjölin
eru öllum
aðgengileg.
Vefritið
Svipan
vakti athygli á þessari birtingu og
safnaði saman hlekkjum á veðbók-
arvottorðin.
Margrét Rósa Sigurðardóttir,
sem situr í ritstjórn Svipunnar, seg-
ir að vefritið hafi ákveðið að vekja
athygli á þessu vegna þess að fjár-
hagsstaða þingmanna varði al-
menning. Hún segir ritstjórn Svip-
unnar ekki hafa fengið nein
viðbrögð frá þingmönnum vegna
þessa.
Svipan birtir veð-
bókarvottorð þing-
manna á netinu