Morgunblaðið - 02.03.2012, Page 11
hinu daglega lífi og ágætt að venjast
því sem fyrst,“ segir Karen Ösp.
Læra á meðan þau matast
Diskarnir eru gerðir úr hörðu
plastefni sem þolir ágang lítilla
handa og jafnvel að vera fleygt í gólf-
ið. Þeir eru einfaldir í útliti en hver
og einn skreyttur með orði og mynd.
Þannig er hugmyndin að barnið læri
um leið og það borði og tengi hluti við
sitt daglega líf.
„Þorsteinn Dagur, sem er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sá grein
um það að börn læra einna mest þeg-
ar þau borða. Okkur fannst því til-
valið að búa til svona matardiska.
Það er listabraut í skólanum og við
ákváðum því strax að nýta krafta
samnemenda okkar. Það er Elín Hel-
ena Jóhannsdóttir sem gerði teikn-
ingarnar og nú eru tilbúnir diskar
með húsi, bíl og dúkku og apinn er í
teikningu. Svo vonumst við til að
bæta við fleiru seinna og þá jafnvel
fyrir eldri börn líka sem eru byrjuð
að lesa,“ segir Karen Ösp.
Spennandi framundan
Fram undan er nú sölumessa
þar sem nemendur úr öllum skólum
landsins sem numið hafa frum-
kvöðlafræði koma saman. Karen Ösp
segir vissulega spennu ríkja fyrir
þessu og gaman verði að sjá hvað
aðrir hafi fram að færa. Innan Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar séu hug-
myndirnar margar og ólíkar. Því
verði samkeppnin kannski ekki jafn
mikil og ætla mætti og samheldnin
enn meiri. Karen Ösp segir að hóp-
urinn ætli að fá lítil systkini og
frændsystkini til að sitja fyrir á aug-
lýsingum. Enda er þeim gert bæði að
auglýsa vöruna og selja á sölumess-
unni.
Skrautlegir Elín Helena Jóhannsdóttir, nemandi í FG, sá um teikningar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
Nemendur í Kvennaskólanum í Reykjavík hvöttu
fólk til að styrkja ýmis góð málefni í Kringlunni
á sérstökum góðgerðardegi síðastliðinn þriðju-
dag. Þá var haldinn svokallaður Góðgerð-
ardagur þar sem allir bekkir skólans unnu að
ýmiss konar samfélagsverkefnum og létu gott
af sér leiða. Var dagurinn hluti af Tjarn-
ardögum, þemadögum skólans sem lauk með
árshátíð Kvennaskólans í gærkvöldi (fimmtu-
dagskvöld). Nokkrir bekkir lögðu leið sína í
Kringluna og hafði hver og einn tekið að sér
ákveðið góðgerðarfélag til að styrkja. Nem-
endur höfðu undirbúið daginn vel. Einn bekkur
hafði bakað kökur og hélt kökubasar en annar
stóð fyrir tónlistaratriði og vakti viðburðurinn
nokkra athygli meðal Kringlugesta.
Vert er að láta gott af sér leiða til brýnna
málefna og lögðu Kvennskælingar sitt af mörk-
um með þessu framtaki. Kvennaskólinn var
stofnaður árið 1874 af hjónunum Þóru og Páli
Melsteð og er einn allra elsti skóli landsins.
Hann er menntaskóli sem býður upp á hefð-
bundið fjögurra ára bóknám til stúdentsprófs.
Góðgerðardagur Kvennskælinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kökubasar Nemendur í 1-H höfðu bakað fínustu kökur og rann ágóðinn til styrktar SÁÁ.
Heimabakaðar
kökur og söngur
Söngatriði Krakkar úr 3-NF vöktu athygli á Amnesty International.
Dugnaður Bekkurinn 3-FA hvatti fólk til að styrkja félagið FAAS.
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00
NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ KAUPA SÉR FATASKÁP!
FATASKÁPADAGAR UM HELGINA
Opið um helgina
Laugardag: 10-16
Sunnudag: 11-14Margir möguleikar
• Margar gerðir
• Glæsilegir fataskápar á afslætti
• Ýmsir uppröðunarmöguleikar
• Útlitsgallaðar vörur með miklum afslætti