Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Vasklausir dagar
um helgina
21% af öllum vörum!
Nýjar vörur!
var 31.900.-
nú 25.201.-
var 19.900.-
nú 15.721.-
var 2990.-
nú 2362.-Eldri púðar
frá 1295.-
án vsk
1023.-
Nýir púðar!
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Eftir að kínverskt félag, China Nat-
ional Bluestar, keypti móðurfélag
Járnblendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga, Elkem í Noregi, á síðasta
ári komust Hvalfjarðargöngin að
hluta til í kínverska eigu. Elkem á
Íslandi á 16% hlut í Eignarhalds-
félaginu Speli hf., sem aftur á félag-
ið Spöl hf. að öllu leyti, hinn eig-
inlega rekstraraðila
Hvalfjarðarganga. Aðrir helstu eig-
endur eignarhaldsfélagsins eru
Faxaflóahafnir með 23,4% hlut, rík-
ið á 16% eftir að hafa tekið yfir hlut
Sementsverksmiðjunnar á Akra-
nesi, Vegagerðin á 10% og Hval-
fjarðarsveit tæp 10%. Þannig hefur
eignarhaldið að mestu verið óbreytt
frá því að göngin voru tekin í notk-
un árið 1998.
Járnblendiverksmiðjan var þá í
meirihlutaeigu ríkisins og hluturinn
í Speli hefur fylgt verksmiðjunni
síðan, óháð eigendabreytingum á
verksmiðjunni eða móðurfélagi þess
í Noregi.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, segir engar breytingar hafa
orðið á félaginu þó að kínverskir
fjárfestar hafi eignast Elkem á síð-
asta ári. Spölur á og rekur Hval-
fjarðargöngin en skilar þeim til rík-
isins þegar þau hafa greitt sig upp
að fullu. Að sögn Gísla gæti það
gerst árin 2018 eða 2019 og þá yrði
veggjaldið fellt niður. Engar áætl-
anir eru uppi um að tvöfalda göngin
en Gísli segist ekki hafa breytt
þeirri skoðun sinni að stækkun
ganganna ætti að vera inni í sam-
gönguáætlun. „Ekki nema að menn
hafi þá trú að umferð muni ekki
aukast,“ segir Gísli en 4,7% sam-
dráttur varð í umferð um göngin
milli áranna 2010 og 2011.
Aðalfundur Spalar fer fram 8.
mars nk. þar sem ársreikningur fyr-
ir tímabilið 1. október 2010 til 31.
desember 2011 verður lagður fram.
Rekstrarárið var áður október til
september en verður framvegis
almanaksárið. Á þessu 15 mánaða
tímabili varð rekstrarhagnaður upp
á 281 milljón króna. Á tímabilinu
fóru 2.270.173 ökutæki um göngin,
sem jafngildir um 5.000 ökutækjum
dag hvern.
Á ársfundi verður tillaga um alls
49 milljóna kr. arðgreiðslu.
Kínverjar eiga í göngunum
Elkem á Grundartanga á 16% hlut í Speli, sem á og rekur Hvalfjarðargöngin
Aðaleigandi Elkem í Noregi er kínverska félagið China National Bluestar
Morgunblaðið/Sverrir
Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri, hefur falið lög-
mannsstofunni LEX að senda kæru
til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Kæran verður send á næstunni.
Það er mat LEX að með dómi
Hæstaréttar hinn 17. febrúar síð-
astliðinn, þar sem Baldur var sak-
felldur fyrir innherjasvik, hafi í
veigamiklum atriðum verið brotinn
réttur á Baldri í skilningi ákvæða
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Í tilkynningu LEX eru eftirtalin
atriði talin upp. Í fyrsta lagi er tal-
ið að brotið hafi verið gegn rétti
Baldurs til að þurfa ekki að sæta
endurtekinni málsmeðferð vegna
refsiverðrar háttsemi. Fjármálaeft-
irlitið (FME) rannsakaði mál Bald-
urs og tilkynnti honum um lok þess
í maí 2009 á grundvelli þess að
hann hefði ekki búið yfir inn-
herjaupplýsingum. Málið var svo
tekið aftur upp án þess að laga-
heimild stæði til þess.
Í öðru lagi að réttur Baldurs til
réttlátrar málsmeðferðar sam-
kvæmt 6. gr. Mannréttindasáttmála
Evrópu hafi ekki verið virtur þar
sem hann var sakfelldur fyrir ann-
að en hann var ákærður fyrir.
Í þriðja lagi er
talið að réttur
Baldurs til rétt-
látrar máls-
meðferðar sam-
kvæmt fyrr-
nefndri grein
Mannréttinda-
sáttmálans hafi
ekki verið virtur
þar sem Hæsti-
réttur tók ekki
afstöðu til ýmissa veigamikilla at-
riða í vörn Baldurs. M.a. að hvorki
Landsbankinn né FME töldu að
þær upplýsingar sem Baldur var
dæmdur fyrir að búa yfir hafi verið
innherjaupplýsingar.
Í fjórða lagi er talið að réttur
Baldurs til réttlátrar máls-
meðferðar skv. 6. gr. sáttmálans
hafi ekki verið virtur þar sem
sönnunarbyrði í málinu hafi í raun
verið snúið við.
Í fimmta lagi er talið að réttur
Baldurs til réttlátrar málsmeð-
ferðar skv. sömu grein hafi ekki
verið virtur þar sem verulegur vafi
leiki á því að mál hans hafi í raun
notið óvilhallrar meðferðar fyrir
dómi. gudni@mbl.is
Kærir til Mann-
réttindadómstóls
Mál Baldurs Guðlaugssonar kært
Baldur
Guðlaugsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að fyrrverandi bankamenn hafi
komist að því við yfirheyrslu hjá sér-
stökum saksóknara að lögreglan
hafði ekki einungis hlerað síma held-
ur einnig fundarstað þar sem þeir
hittust löngu eftir efnahagshrunið.
Upptökur spilaðar
Mennirnir voru háttsettir hjá ein-
um föllnu bankanna fyrir hrun. Við
yfirheyrslu hjá sérstökum saksókn-
ara voru spilaðar upptökur úr síma
til að hressa upp á minni þeirra sem
verið var að yfirheyra. Svo var spurt
út í tiltekinn fund mannanna sem
haldinn var á skrifstofu í miðborg-
inni löngu áður en yfirheyrslan fór
fram. Þegar kom í ljós að viðkom-
andi mundi ekki efni fundarins í
smáatriðum var spiluð hljóðritun af
fundinum til að hressa upp á minnið.
Það kom þeim á óvart að lögreglan
skyldi ekki einungis hafa hlerað síma
heldur einnig fundarstaðinn.
Mennirnir brugðu sér á annan
stað í húsinu til að fá sér kaffi og svo
virtist sem upptökutækið hefði ekki
náð þangað því sérstaklega var spurt
hvers vegna þeir hefðu flutt sig um
set og hvað þar hefði verið rætt,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Beita öllum leyfðum úrræðum
„Við notum öll þau úrræði sem lög
um meðferð sakamála bjóða upp á og
notum það sem við teljum við eiga
hverju sinni,“ sagði Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari.
Hann kvaðst ekki geta svarað til um
einstök mál.
Aðspurður á hvaða forsendu óskað
væri hlustunar kvaðst Ólafur Þór
ekki vilja tjá sig um efni kröfugerða
sem gerðar væru í þessu skyni, en
sagði að beiting slíkra úrræða væri
ávallt borin undir dómara.
Í skriflegu svari innanríkisráð-
herra við fyrirspurn Gunnars Braga
Sveinssonar alþingismanns um hler-
anir, sem útbýtt var á Alþingi 15.
júní í fyrra, kom fram að embætti
lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu sæi um framkvæmd sím-
hlerana á landsvísu.
Ólafur var spurður hvort lögregl-
an á höfuðborgarsvæðinu hlustaði
fyrir embætti hans. Hann kvaðst
ekki geta tjáð sig neitt um starfs-
aðferðir lögreglu því ekki væri gert
ráð fyrir því að saksóknari gerði slíkt
samkvæmt 18. grein laga um með-
ferð sakamála.
Brynjar Níelsson, hrl. og formað-
ur Lögmannafélags Íslands, sagði
það vera þekkt við rannsókn fíkni-
efnamála að lögreglan hleraði hús-
næði og síma. Hann kvaðst ekki hafa
heyrt af símhlerunum vegna meintra
efnahagsbrota fyrr en embætti sér-
staks saksóknara hóf rannsóknir sín-
ar.
Nýtt í efnahagsbrotum
Brynjar benti á skilyrði laga um
meðferð sakamála fyrir því að beita
hlerunum. Hann sagði að áður fyrr
hefði símahlerunum ekki verið beitt
við rannsókn meintra efnahagsbrota
því þau hefðu ekki náð lagaskilyrði
um átta ára refsiramma. Brynjar
taldi að sérstakur saksóknari hefði
væntanlega rökstutt beiðnir um
hlustun á grundvelli sérstakra al-
mannahagsmuna.
„Þetta er algjörlega nýtt rann-
sóknarúrræði við efnahagsbrot sem
sérstakur saksóknari beitir og að
dómstólar skyldu heimila það er
mjög sérstakt,“ sagði Brynjar. Hann
kvaðst hafa heyrt af hlerun húsnæð-
is vegna efnahagsbrota en ekki hafa
fengið neina staðfestingu á slíku.
Fundur fyrrverandi
bankamanna hleraður
Sérstakur saksóknari beitir þeim úrræðum sem lög leyfa
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hlustun Lög leyfa hlustun, t.d. símtala eða funda, í þágu rannsóknar saka-
mála að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Myndin er sviðsett.
Ákvæði laga um hlustun
» Kveðið er á um símahlustun
og önnur sambærileg úrræði í
XI. kafla laga um meðferð
sakamála (88/2008). Þar er
einnig kveðið á um skilyrði fyr-
ir því að beita megi hlustun
eða sambærilegum úrræðum.
» Þau eru m.a. „að rannsókn
beinist að broti sem varðað
getur að lögum átta ára fang-
elsi ellegar að ríkir almanna-
hagsmunir eða einkahags-
munir krefjist þess“.
Einkahlutafélagið
Apogee, sem er í
eigu Jóhannesar
Jónssonar og við-
skiptafélaga, hef-
ur selt 50% hlut
sinn í hlutafélag-
inu SMS í Fær-
eyjum.
Kaupendur eru
Gullak Madsen,
sem á nú 37% hlut í félaginu, og
hlutafélagið N.J. Mortensen, sem á
13%.
SMS á og rekur tíu verslanir í
Færeyjum og er nokkrar þeirra að
finna í samnefndri verslunarmiðstöð,
sem þó er ekki í eigu félagsins, að
sögn Jóhannesar. Fimm af versl-
ununum tíu eru Bónusverslanir en
SMS er að auki eigandi nokkurra
veitingastaða.
Jóhannes vildi ekki gefa upp sölu-
verð hlutarins í samtali við Morgun-
blaðið í gær en sagði ástæðu sölunnar
þá að áhugi hans og félaga hans lægi
nú annars staðar. holmfridur@mbl.is
Jóhannes
selur hlut
sinn í SMS
Jóhannes Jónsson