Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Í 13. grein laga um eftirlit með fjár-
málafyrirtækjum er kveðið á um
þagnarskyldu stjórnar, forstjóra og
starfsmanna Fjármálaeftirlitsins að
viðlagðri ábyrgð samkvæmt ákvæð-
um almennra hegningarlaga. Í 138.
grein þeirra er kveðið á um að gerist
opinber starfsmaður sekur um refsi-
lagabrot sem feli í sér misnotkun á
stöðu hans án þess að kveðið sé á um
viðurlög við slíkri misnotkun megi
þyngja þá refsingu er liggur við
brotinu um allt að helming. Viðurlög
við broti gegn þagnarskyldunni eru
sektir eða allt að eins árs fangelsi, sé
ekki kveðið á um um þyngri refsingu
í öðrum lögum. Sambærilegt ákvæði
um þagnarskyldu er í 58. gr. laga um
fjármálafyrirtæki en við broti gegn
henni liggur sekt eða allt að tveggja
ára fangelsi, sé ekki kveðið á um
þyngri refsingu í öðrum lögum.
Í tengslum við framangreint má
líka velta fyrir sér eðli meints brots,
en forstjóra FME er ætlað að sjá til
þess að FME hafi eftirlit með því að
fjármálastarfsemi þeirra aðila sem
falla undir lögin sé í samræmi við
lög, reglugerðir, reglur og sam-
þykktir sem um þá starfsemi gilda.
Með öðrum orðum ber FME lög-
bundin skylda til að hafa eftirlit með
því að öll fjármálastarfsemi í landinu
fari að lögum. Hér er því um að ræða
eitt af mikilvægari stjórnsýsluemb-
ættum landsins.
Ekki talin ástæða
til innri rannsóknar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir að starfsmaður bank-
ans sem grunaður er um að hafa farið með gögn til Gunnars Andersen,
fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, hafi verið sendur í leyfi meðan
málið er í rannsókn. Starfsmaðurinn verði í leyfi þar til málin skýrast og
staðan síðan metin í kjölfarið. Málið sé í rannsókn hjá lögreglunni og
hann geti ekki tjáð sig frekar um það að sinni.
Landsbankinn sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem segir að bankinn
hafi tilkynnt FME að upp hafi komið grunur um miðlun trúnaðargagna. Í
ljósi frétta um aðkomu starfsmanns Landsbankans varðandi miðlun trún-
aðargagna um tiltekinn viðskiptavin, lagði Landsbankinn jafnframt
áherslu á að brot á reglum bankans um meðferð trúnaðarupplýsinga
væru litin mjög alvarlegum augum.
Tilkynnti FME grun
MIÐLUN TRÚNAÐARGAGNA
Meint miðlun trúnaðargagna til Gunnars
Samkvæmt
heimildum
Morgunblaðsins
hefur Gunnar
Andersen samband
við starfsmann
Landsbankans. Þeir
eru sagðir þekkjast
síðan Gunnar var
að vinna þar.
1 Sagt er að Gunnarhafi beðið hann
að sækja gögn um
Guðlaug Þór Þórð-
arson þingmann.
Ekki er vitað hvort
Gunnar óskaði eftir
gögnum um fleiri
einstaklinga.
2 Hermt er að starfs-maðurinn hafi verið
óviss um hvernig
hann ætti að bera
sig að og því spurst
fyrir innan bank-
ans. Þannig hafi
vaknað grunur um
óleyfilega miðlun
trúnaðargagna.
3
Talið er að
starfsmaðurinn
hafi náð í og
afhent gögnin.
Meint miðlun
trúnaðargagna er
í kjölfarið kærð til
lögreglu og er þar
til rannsóknar.
Landsbankinn
hefur sent
starfsmanninn í
ótímabundið leyfi
á meðan málið er í
rannsókn.
4 5 6
Meint brot snúi ekki að reglubundinni starfsemi FME
FRÉTTASKÝRING
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
„Að svo stöddu eru ekki uppi nein
áform um það og ekki talin ástæða
til þess,“ segir Unnur Gunnars-
dóttir, settur forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins, spurð hvort FME muni tak-
ast á hendur innanhússrannsókn til
að kanna hvort grunur leiki á fleiri
tilvikum þar sem Gunnar Andersen,
fyrrverandi forstjóri FME, hafi sótt
sér upplýsingar um fjármál tiltek-
inna einstaklinga.
Unnur segir meint brot for-
stjórans fyrrverandi, sem er til
rannsóknar hjá lögreglu, ekki snúa
að reglubundinni starfsemi FME.
Spurð hvort það teljist hluti af
venjubundnum störfum forstjóra
Fjármálaeftirlitsins að kalla eftir
upplýsingum um fjármál ein-
staklinga úr fjármálastofnunum seg-
ir Unnur svo ekki vera.
Hún staðfestir að það þurfi allt-
af tvo frá FME til að undirrita upp-
lýsingabeiðnir til eftirlitsskyldra að-
ila. „Ég á ekki von á öðru en sá sem
útvegaði umræddar upplýsingar hafi
gert sér grein fyrir því, þegar það
átti sér stað. Það skal enginn segja
mér annað.“
Talið er að Gunnar hafi verið að
afla sér upplýsinga um fjármál Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar þingmanns.
Hann sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær velta því fyrir sér
hvort um einangrað tilvik væri að
ræða og það þyrfti að kanna.
Gunnar mætti til lögreglu
Friðrik Smári Björgvinsson
yfirlögregluþjónn staðfesti að Gunn-
ar hefði verið yfirheyrður hjá lög-
reglu í gærmorgun en hann kom
þangað til skýrslutöku að eigin
frumkvæði. Alls voru þrír yfirheyrð-
ir vegna málsins. Þeir hafa allir rétt-
arstöðu sakbornings. Ekki hefur
verið krafist gæsluvarðhalds yfir
neinum þeirra. Tekin verður ákvörð-
un um hvort vísa eigi málinu til rík-
issaksóknara þegar farið hefur verið
yfir þau gögn sem lögð hafa verið
fram.
Gunnar er kærður fyrir að hafa
aflað trúnaðarupplýsinga úr banka-
kerfinu með ólögmætum hætti en
ekki hefur verið staðfest opinber-
lega til hvers hann ætlaði þær upp-
lýsingar.
Meint brot Gunnars
Kæra stjórnar FME til lög-
reglu hefur ekki verið birt opin-
berlega. Hins vegar má ætla af orða-
lagi stjórnarinnar að hann sé talinn
hafa brotið gegn m.a. þagnarskyldu.
Skúli Bjarnason, sem hefur verið
lögmaður Gunnars Andersen, fyrr-
verandi forstjóra Fjármálaeftirlits-
ins, hefur sagt sig frá máli hans
vegna trúnaðarbrests. Í yfirlýsingu
sem Skúli sendi frá sér í gær segir
að í uppsagnarbréfi Gunnars, sem
hann fékk í fyrrakvöld, hafi komið
fram nýjar upplýsingar. Þær hafi
komið honum „algerlega í opna
skjöldu og eru til þess fallnar að
setja málið í nýjan farveg“.
Skúli hafði í fyrrakvöld sent frá
sér harðorða tilkynningu fyrir hönd
Gunnars, þar sem Gunnar lýsti yfir
sakleysi sínu. Þar gagnrýndi hann
m.a. að hafa hvorki fengið í hendur
kæru stjórn-
arinnar né þau
gögn sem hún
byggðist á. Jafn-
framt sagði að
Gunnar hefði
ekki séð gögn
Landsbankans
um stjórnmála-
manninn um-
rædda. Ekki náð-
ist í Skúla í gær
en eftirfarandi er yfirlýsing hans:
„Hér með tilkynnist að ég und-
irritaður, sem gætt hef hagsmuna
Gunnars Þ. Andersen, hef sagt mig
frá málinu vegna trúnaðarbrests.
Nýjar upplýsingar sem fram komu í
uppsagnarbréfi í gær og skýrðust
með ákveðnum hætti í gærkvöldi,
komu mér algerlega í opna skjöldu
og eru til þess fallnar að setja málið í
nýjan farveg. Sú niðurstaða er
hörmuð sérstaklega í ljósi þess að
undirritaður er enn þeirrar skoð-
unar að fyrrum umbjóðandi minn
hafi verið beittur rangindum í hinu
löglausa uppsagnarferli. Öll meðferð
málsins og aðkoma undirritaðs að
því fram að hinum nýju upplýsingum
stendur óhögguð. Gunnar verður
sjálfur að gefa skýringar á sínum
þætti og er honum óskað velfarn-
aðar í framtíðinni.“
Hættur að verja Gunnar
Lögmaðurinn hefur sagt sig frá málinu vegna trúnaðar-
brests Nýjar upplýsingar komu honum í opna skjöldu
Skúli
Bjarnason
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Ritstjóri: Guðmundur Andri Thorsson
Nýtt hefti
TMM
komið út!
FRÓÐLEIKUR,
GREINAR OG
SKÁLDSKAPUR
ÞÓRSGATA 2 - 101 RVK
- PENTHOUSE ÍBÚÐ
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar fasteignasala kynnir glæsilega 143,2 fm lúxusíbúð á efstu hæð í nýlegu
húsi á þessum frábæra stað við Þórsgötu 2 í 101 Reykjavík. Aðeins ein íbúð á efstu
hæðinni. Eigninni fylgir einnig tvö stæði í bílageymslu. Eignin skiptist í forstofu, gang,
stofu, borðstofu, sólstofu, eldhús, snyrtingu, þvottahús, sjónvarpshol, herbergi, hjóna-
herbergi, fataherbergi, baðherbergi, geymslu, tvö stæði í bílageymslu ásamt hefð-
bundinni sameign. Glæsilegar innréttingar og gólfefni. Stórar þaksvalir. Eign í
sérflokki. Verð 65 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður gsm 896 0058.
thorbjorn@hraunhamar.is
Polarolje
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
Pöntunarsímar 698 7999 og 699 7887
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera á
sterum án árangus. Reynt var að
skipta um fæði sem bar heldur ekki
árangur. Eina sem hefur dugað
er Polarolje fyrir hunda. Eftir að
hann byrjaði að taka Polarolje
fyrir hunda hefur heilsa hans tekið
stakkaskiptum. Einkennin eru horfin
og hann er laus við kláðann og
feldurinn orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Ingi F. Vilhjálmsson, fréttastjóri
DV, var síðdegis í gær yfirheyrður
vegna rannsóknar lögreglu í máli
Gunnars Þ. Andersen. Ingi Freyr er
með réttarstöðu sakbornings í mál-
inu og liggur undir grun um að
hafa brotið bankaleynd með því að
birta trúnaðarupplýsingar um fjár-
hagsmálefni Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar þingmanns. Þetta kemur
fram á fréttavef DV.
Blaðamaður
yfirheyrður