Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 21

Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Það er ekki til nein skyndilausn til þess að losna við gjaldeyrishöftin á Íslandi og það veltur meðal annars á skuldastöðu ríkisins og stöðugleika fjár- málakerfisins hversu hratt verður hægt að af- nema þau. Þetta kom fram í máli Julie Kozack, fulltrúa í sendinefnd Alþjóðgjaldeyrissjóðsins sem kynnti mat sitt á efnahagsstöðunni á Íslandi í gær. Sendinefndin hefur verið á landinu undanfarið til þess að meta stöðuna og var niðurstaða henn- ar kynnt á blaðamannafundi í gær. Lagði sendi- nefndin áherslu á að árangur hefði náðst í að ná tökum á efnahagsmálum á Íslandi eftir hrun en mikilvægt væri að festa þann árangur í sessi. Kozack sagði að afnám gjaldeyrishafta væri ein mesta áskorun sem íslensk stjórnvöld stæðu frammi fyrir. Mikilvægt væri að farið yrði hægt og bítandi í að afnema höftin og í ljósi óvissu í efnahagsmálum heimsins ættu stjórnvöld að íhuga að framlengja gjaldeyrishöftin eftir 2013. Þá væri mikilvægt að halda þéttar um taum- ana í stjórn peningamála á næstunni, sérstaklega í ljósi vaxandi verðbólgu. Þannig ættu stýrivextir að hækka til að bregðast við henni. Grynnkar hægar á skuldunum Sendinefndin benti á að eftir tveggja ára sam- drátt hefði hagvöxtur náðst árið 2011 á Íslandi. Vinnumarkaðurinn hefði tekið við sér þrátt fyrir að atvinnuleysi væri ennþá mikið. Búist væri við hóflegum vexti á næstu árum, á bilinu 2,5-3%, og það ætti að skapa störf og draga úr atvinnuleysinu. Eftir 2012 ætti verðbólgan að færast niður á við í takt við aðhaldssamari stjórn peningamála. Helstu hætturnar sem geti stefnt þessum horf- um í voða sé annars vegar versnandi efnahags- ástand í Evrópu og hugsanlegar tafir á fjárfest- ingarverkefnum í orkufrekum iðnaði hér heima. Þá gæti óvissa um framtíðarstefnu í lyk- ilatvinnugreinum haft áhrif á fjárfestingar. „Ísland er ekki sloppið fyrir horn ennþá. Það er að ná tökum á skuldum sínum en það gengur mun hægar en gert hafði verið ráð fyrir,“ sagði Kozack. Áhyggjur af töfum Fulltrúar AGS hafa áhyggjur af því að óvissa um hvernig eigi að endurreikna gengislán í kjöl- far vaxtadóms Hæstaréttar sem féll í febrúar geti tafið fyrir efnahagsbata því að hann valdi óvissu fyrir heimili, fyrirtæki og banka um fjár- hagslega stöðu sína. Engu að síður sagði Kozack að sérstakur ár- angur hefði náðst í skuldamálum heimila og fyr- irtækja frá seinni hluta 2011. Ísland væri í far- arbroddi á alþjóðavísu í að finna leiðir til að létta á skuldum. Mikilvægt væri fyrir fyrirtæki að öðl- ast öryggi um framtíð svo þau gætu fjárfest og ráðið fólk í vinnu til að koma hagkerfinu aftur í gang. Ísland ekki sloppið fyrir horn ennþá  Afnám gjaldeyrishafta stærsta áskorun íslenskra stjórnvalda að mati fulltrúa sendinefndar AGS  Ísland í fararbroddi á heimsvísu í lausnum á skuldamálum  Óttast áhrif tafa vegna vaxtadóms Morgunblaðið/Ómar Sendinefnd Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þau Franek Rozwadowski og Julie Kozack, kynna mat sendinefndar AGS á stöðu efnahagsmála á Íslandi á blaðamannafundi að Kjarvalsstöðum í gær. Fulltrúar sendinefndar AGS gerðu endurnýjaðar kröfur um frekari afskriftir á lánum í kjölfar vaxtadóms Hæsta- réttar í febrúar að umtals- efni. Leggst sendinefndin gegn kröfum um niðurfærslur á verðtryggðum lánum eða frekari almennum aðgerðum til að lækka skuldir. Slíkar aðgerðir væru ómarkvissar að mati nefnd- arinnar og myndu ekki ná að öllu leyti til þeirra sem þurfa á mestri hjálp að halda. Þá kom fram í máli fulltrú- anna að miklar skuldir hins opinbera takmarki verulega möguleikana á að grípa til slíkra almennra aðgerða til niðurfærslu lána án þess að útgjöldum ríkisins verði for- gangsraðað upp á nýtt eða til komi nýjar tekjur. Mikilvægt sé að ekki verði grafið undan þeim ávinningi sem Ísland hefur náð und- anfarið í því að rétta af fjár- hag ríkisins. Gegn frekari niðurfærslu VERÐTRYGGÐ LÁN „Fögnum árangri allra!“ Ráðstefnustjóri: Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar Ráðstefna föstudaginn 9. mars Hörpunni, Silfurbergi Skráning á ráðstefnu hjá gudbjorg@svth.is 14.30 Ráðstefnuskráning 15.00 Setning Sigríður Anna Guðjónsdóttir, varaformaður SSSK 15.05 Ávarp Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra 15.20 Einstaklingsmiðað námsmat Jón Baldvin Hannesson, skólastjóri Giljaskóla 16.00 Kórsöngur Nemendur í leikskólanum Sjálandi 16.20 Kaffihlé 16.50 Samskipti í skólum Hugo Þórisson, sálfræðingur 17.30 Páll Óskar verður gordjöss! 18.00 Ráðstefnulok Samtök sjálfstæðra skóla ® E N N E M M / S ÍA / N M 4 9 9 8 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.