Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 22

Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 22
BAKSVIÐ Egill Ólafsson egol@mbl.is Hægt er að hraða málum í gegnum dómskerfið, sem varða ágreining um gengistryggð lán, með því að setja lög um flýtimeðferð. Þetta segir Þor- steinn Einarsson hæstaréttarlög- maður, en hann fjallaði um áhrif dóms Hæstaréttar frá því í febrúar á fundi sem Samtök iðnaðarins stóðu fyrir í gær. Þorsteinn segir að miklar annir séu hjá dómstólunum og því geti tek- ið eitt og hálft ár að fá niðurstöðu Hæstaréttar í einkamáli. Með því að setja lög um að þessi mál fái flýti- meðferð væri hægt að stytta þennan tíma í 4-5 mánuði. Þorsteinn sagði aðspurður að lög í þessa veru fælu í sér að allir frestir til að skila grein- argerðum og annað sem málunum tengdist yrðu styttir sem þýddi hrað- ari meðferð í gegnum dómskerfið. Ragnar Hall hæstaréttarlögmað- ur tekur undir að skynsamlegt sé að setja lög um að þessi mál fái flýti- meðferð. Alfarið byggt á kröfurétti Ragnar segir að í dómi Hæstarétt- ar hefði því verið haldið fram að hjónin sem tóku lánið hefðu réttar- stöðu neytenda og vísað til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í því sambandi. Hæstiréttur notaði hins vegar ekki þessi rök í dómi sínum heldur byggði alfarið á kröfurétti. „Ég dreg þá ályktun af þessu að dómurinn hafi fordæmisgildi ekki bara fyrir neytendur heldur líka fyr- ir fyrirtæki sem hafa átt viðskipti við fjármálafyrirtæki,“ segir Ragnar. Lögmannsstofan Lex vann lögfræðiálit um dóminn fyrir Samtök fjármálafyrirtækja. Ragnar segir að þar sé ágæt kortlagning á þeim vanda sem við sé að eiga. „Mér finnst samt að það gæti viðleitni í þessu áliti til þess að þrengja kosti skuldaranna til þess að fá leiðréttingu sinna mála. Þeir t.d. gera greinarmun á því hvort fyrirtæki sem á í hlut teljist vera stórfyrirtæki eða lítið fyrirtæki. Dómur Hæstaréttar gefur ekki til- efni til þeirrar ályktunar. Það kann vel að vera að þetta verði einhvern tímann niðurstaðan, en hún verður ekki dregin af dóminum.“ Þorsteinn tekur undir að dómur- inn taki líka til fyrirtækja. Hann seg- ist almennt telja að lántakar sem ekki greiddu af lánum sínum séu í verri stöðu en þeir sem greiddu af þeim. Þeir sem greiddu af lánunum hluta lánstímans ættu að geta krafist samningsvaxta fyrir þann tíma, en seðlabankavextir gildi fyrir þann tíma sem ekki var greitt af lánunum. Vill að sett verði lög um flýtimeðferð  Tveir hæstaréttarlögmenn segja að dómur Hæstaréttar eigi jafnt við fyrirtæki og einstaklinga  Þeir mæla með því að Alþingi setji lög um flýtimeðferð til að hraða málsmeðferðinni í dómskerfinu Þorsteinn Einarsson Ragnar H. Hall Varað við lánunum » Á fundi Samtaka iðnaðarins kom fram að þegar lög um vexti og verðtryggingu voru sett árið 2001 hafnaði Alþingi að heimila fjármálastofnunum að veita gengistryggð lán. » Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varaði 1998 við gengistrygg- ðum lánum og vísaði til reynslu landa í Suðaustur-Asíu. » Joseph Stiglitz vann skýrslu fyrir Seðlabanka Íslands árið 2001 þar sem varað er við hættum af gengistryggðum lánum. 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 STUTTAR FRÉTTIR ... Innstæður í methæðum Bankastjóri Mario Draghi, bankastjóri Evrópska seðlabankans. ● Innstæður fjármálastofnana hjá Evr- ópska seðlabankanum náðu methæð- um í gærmorgun og námu samtals 777 milljörðum evra. Það er 500 milljarða evra aukning á aðeins tveimur dögum og gefur til kynna að bankar á evru- svæðinu ætli að nota lán sem þeir tóku á 1% vöxtum hjá Evrópska seðlabank- anum í vikunni til að styrkja hjá sér lausa- og eiginfjárstöðuna. Innstæð- urnar bera aðeins 0,25% vexti. Mario Draghi, bankastjóri Evrópska seðlabankans, hefur sagt að hann vænti þess að féð sem bankarnir tóku að láni - samtals 529,5 milljarðar evra - verði notað til þess að auka útlán til raunhagkerfisins. Orkuveita Reykjavíkur seldi eignar- hluti sína í Enex-Kína og Envent Holding fyrir 350-380 milljónir króna, að því er fram kemur í upp- lýsingablaði frá OR um söluferli er- lendra eigna Reykjavik Energy In- vest (REI), dótturfélags Orkuveitunnar. Salan átti sér stað haustið 2011 en var ekki auglýst sér- staklega. Hlutur REI í Enex-Kína, en félag- ið hefur staðið að byggingu á stærstu jarðhitaveitu heims í Kína, nam 19,53% og tæplega 25% hlut í En- vent Holding ehf, sem á jarðhitafyr- irtæki á Filippseyjum. Geysir Green Energy (GGE) var meðeigandi í báð- um félögunum. Markmið sölunnar var annars vegar að styrkja lausafjárstöðu Orkuveitunnar og hins vegar að losna undan þátttöku í umtalsverð- um skuldbindingum félaganna til frekari uppbyggingar á erlendum mörkuðum. Nokkuð langur aðdragandi Salan á sér nokkuð langan aðdrag- anda. Á stjórnarfundi REI í mars- mánuði 2010 var samþykkt einróma samkomulag REI og GGE „um málsmeðferð og sölu félaga og/eða verkefna sem aðilar eiga sameigin- lega – sérstaklega Enex-Kína ehf. og EnVent Holding ehf.“. Geysir Green Energy féllst síðan á að selja hlut sinn í Enex-Kína og En- vent í júní 2011 til Orku Energy Holding. Tveimur mánuðum síðar var skrifað undir samninga um sölu á hlutum REI og GGE. Fram hefur komið í fjölmiðlum að Orka Energy er í eigu félagsins Orka Energy Pte. Ltd., sem er skráð í Singapúr, en það félag er í eigu Hauks Harðarsonar. Hann er kjöl- festufjárfestir í félaginu og einn starfsmanna Orku Energy Holding. hordur@mbl.is Félag OR selur erlendar eignir  REI fékk 350- 380 milljónir fyrir eignarhluti sína Morgunblaðið/ÞÖK Söluferli Orkuveita Reykjavíkur reynir að styrkja fjárhagsstöðuna. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) hefur selt 14,9 % hlut sinn í Marorku ehf til þýska fjárfestinga- félagsins Mayfair, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarsjóði. Nýsköpunarsjóður fjárfesti í Marorku árið 2006 til að fjármagna fyrstu skref Marorku á alþjóð- legum markaði. Marorka var stofn- uð af Jóni Ágústi Þorsteinssyni og VSÓ ráðgjöf árið 2002 til þess að þróa hugbúnað og stjórnkerfi sem hámarka orkunýtingu skipa. „Í dag er félagið leiðandi á sviði orkustjórnunar í skipum og hafa Marorku-kerfi verið sett upp í skip- um um víða veröld. Starfsmenn félagsins eru nú um 50 talsins og fer fjölgandi. Þórður Magnússon hefur verið stjórn- arformaður Marorku frá 2004,“ segir orðrétt í tilkynningu frá Ný- sköpunarsjóði atvinnulífsins. NSA selur 14,9% hlut í Marorku  Þýskt fjárfestingafélag keypti ● Íslandsbanki hefur gefið út tvo nýja flokka sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru í Kauphöllinni en Íslands- banki var fyrsta fjármálafyrirtækið síð- an í nóvember 2008 til að gefa út verð- bréf í Kauphöllinni í desember 2011, samkvæmt tilkynningu frá Íslands- banka. Um er að ræða tvær verðtryggðar út- gáfur sértryggðra skuldabréfa. Annars vegar 7 ára flokk, að upphæð ISK 1,83 milljarðar á ávöxtunarkröfunni 2,84%, og hins vegar 12 ára flokk, að upphæð ISK 1,5 milljarðar á kröfunni 3,45%. Íslandsbanki með nýja skuldabréfaflokka Danski bankinn FIH Erhvervsbank hefur gert samkomulag við danska ríkistryggingarsjóðinn Financial Stabilitet um að lán til danskra fast- eignafélaga, samtals að fjárhæð 17 milljarðar danskra króna, 382 millj- arðar íslenskra króna, verði færð í nýtt félag sem síðar verður selt til Financial Stabilitet fyrir 2 milljarða danskra króna. Samkomulagið er háð því skil- yrði að stjórnvöld í Danmörku komi á nauðsynlegum lagabreytingum. Kaupþing átti áður FIH en í sept- ember 2010 var gengið frá sölu bankans til fjárfestahóps, aðallega danskra lífeyrissjóða. Seðlabanki Íslands var með alls- herjarveð í tæplega 99% hlutafjár FIH. Söluverðið var samtals 5 millj- arðar danskra króna um 112 millj- arðar íslenskra króna, sem verður leiðrétt með tilliti til þess taps sem FIH verður fyrir vegna eigna á efnahagsreikningnum 30. júní 2010 þar til 31. desember 2014 FIH Höfuðstöðvar FIH við Löngulínu í Kaupmannahöfn. Miklar afskriftir                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-.- +//.00 +,0.12 ,,.3-- ,,.340 +4.43 +30.44 +.-342 +/3.45 +55.,, +,-.4 ,11.,5 +,0.2+ ,,.2, ,,.2-3 +4.44- +34.,0 +.-2,/ +/2.22 +55.5/ ,,4.///2 +,5.+ ,11.0- +,0.04 ,,.24- ,,.-+/ +4./2 +34.55 +.-202 +/-.1, +50.+5 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.