Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 25

Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Spegilmynd Lífið virðist stundum ekki vera neitt annað en bið en hætt er við að strætisvagnabílstjóranum bregði þegar hann sér fleiri en eina mynd af sama fólkinu á biðstöðinni. Ómar Erfiðleikum á evrusvæð- inu er hvergi nærri lokið og næstu ár munu reynast erf- ið ef marka má stefnu- mörkun Evrópusambands- ins í málefnum ríkja í skuldavandræðum. Nýlega var ákveðið að veita Grikk- landi björgunarlán í annað sinn og sækir því áleitin spurning á undirritaðan. Var fyrsta lánið ekki nóg og mun seinna lánið bjarga Grikklandi úr þeim ógöng- um sem það er komið í? Lánið er í þetta sinn 130 billjónir evra eða um 2 milljónir íslenskra króna á hvern íbúa á Grikklandi. Er með þessu verið að greiða fjárfestum og kröfuhöfum, búa því næst til nýtt risavaxið lán sem er háð skilyrðum á borð við mikinn nið- urskurð og einkavæðingu. Jú, vissulega má segja að þetta sé Grikkjum sjálfum að kenna og það var jú ríkistjórn Grikklands sem kom þjóðinni í þessa stöðu en engu að síður er áhugavert að sjá hvernig Evrópusambandið virðist taka yfir efnahagsstjórn Grikklands. Þann 11. nóvember 2011 sl. varð Lucas nokkur Papademos forsætisráðherra landsins, maður sem hefur aldrei setið á þingi og aldrei verið lýðræðislega kosinn til starfans. Sá sami og var árin 2002-2010 varaseðlabankastjóri Evrópu og hefur oft komið opinberlega fram og sagt hans meginmarkmið sé að fara í hvívetna að skipunum ESB í þeim til- gangi að halda Grikklandi í evrusam- starfinu. Margir hagfræðingar hafa bent á að vandinn sé orðinn það mikill að það væri betra fyrir Grikkland að hætta í evrusamstarfinu. Mætti halda að Evr- ópski seðlabankinn tæki undir þetta því samkvæmt gögnum frá honum munu björgunaraðgerðirnar aðeins auka á skuldir Grikklands og búast hagfræð- ingar seðlabankans við rúmri 20% aukningu á skuldum frá 2010 til 2014 þrátt fyrir allar aðhaldsaðgerðirnar sem Evrópusambandið krefur Grikki um að fara eftir. Sam- kvæmt nýlegri skýrslu sem var gefin út af vefrit- inu Open Europe upp úr gögnum Evrópska seðla- bankans eru langstærstu kröfuhafar Grikklands þýskir og franskir bankar og munu þeir verða keyptir út að miklu leyti. Getur sú staðreynd, að stærstu kröfuhafar Grikk- lands séu bankar frá tveimur valdamestu ríkj- um ESB útskýrt hvers vegna engar aðrar tillögur eru uppi á borðinu. Því miður er þetta að- eins byrjunin. Í upphafi áttu aðeins tímabundnar aðgerðir að koma til og var tímabundinn björg- unarsjóður settur á lagg- irnar til að bjarga Grikkjum, Portúgöl- um og Írum en fyrirsvarsmenn Evrópusambandsins hafa komist að því að vandamálið er talsvert stærra og hefur því verið búinn til evru-björg- unarsjóður sem ber nafnið European Stability Mechanisum eða ESM. Þessi sjóður er kominn til að vera og mun byrja í 500 milljörðum evra. Að auki, sem er þeim mun óhugnanlegra, mun hann verða undanskilinn lögsögu aðild- arríkjanna en getur stefnt hverjum sem er þar sem hann er sjálfstæð lög- persóna. Með öðrum orðum, þá er sjóð- urinn og hans eignir ósnertanlegar með lögum samkvæmt 32.gr. ESM laganna. Sáttmálinn um ESM var samþykktur 2. febrúar síðastliðinn og mun taka gildi í júlí 2012. Þessi þróun sýnir okkur að aðgerðir Evrópusambandsins í Grikklandi er að- eins byrjunin á miklum breytingum innan Evrópusambandsins og enn eitt dæmið um skort á gagnsæi og lýðræði, sem einkennt hefur sambandið frá upp- hafi. Framtíð evrunnar er í besta falli óljós og stöðugleiki eitt það síðasta sem kemur upp í hugann í því sambandi. Skuldasambandið ESB er komið til að vera. Ballið er rétt að byrja. Eftir Stefni Húna Kristjánsson » Skuldasam- bandið ESB er komið til að vera. Stefnir Húni Kristjánsson Höfundur er formaður Ísafoldar – félags ungs fólks gegn ESB-aðild. Ballið er rétt að byrja Auðmaður úr Hafnarfirði, Helgi Vilhjálmsson, oft kenndur við eitt af fyrirtækjum sínum, sælgætis- og páskaeggjagerðina Góu, birti í vik- unni opnuauglýsingar í dagblöðum. Þar ræðst hann á lágkúrulegan hátt að lífeyrissjóðum landsmanna, eink- um þó Lífeyrissjóði verslunar- manna og framkvæmdastjóra hans. Hann hefur oft áður gert atlögur að lífeyrissjóðunum – og gjarnan í aðdraganda páskanna. Þessi vor- boði segir okkur að nú sé stutt í páska og sala á páskaeggjum í að- sigi. Það er ekki annað hægt en að gruna þennan athafnamann um þá græsku að ætla með einkennilegum málflutningi sínum um lífeyrissjóði að vekja athygli á sér og páska- eggjaframleiðslu sinni í enn eitt skiptið. Þessi aðferð Góuforstjórans er óttalegur dónaskapur við fólkið í landinu og fjölmiðla. Með þessari háttsemi sinni er hann að ætla okk- ur það að við séum svo grunnhyggin að við sjáum ekki í gegnum mark- aðsbrellur. Það er verið að freista þess að vekja athygli á fram- leiðsluvörum Góu þegar páskaeggjakauptíðin fer í hönd. Sem betur fer erum við neytendur ekki svo einfaldir að við látum plata okkur með slíkum hætti. Áralangar útistöður Helgi Vilhjálmsson hefur um árabil átt í útistöð- um við lífeyrissjóðina og m.a. haldið því fram að sjóðirnir ættu að standa fyrir framkvæmdum sem þeim er engan veginn heimilt að sinna og væru lögbrot. Þar er m.a. átt við áralangt tal hans um að sjóðirnir ættu að reisa hjúkrunar- eða dvarla- heimili fyrir aldraða. Honum hefur ítrekað verið bent á að slíkar framkvæmdir eru ekki í verka- hring lífeyrissjóðanna, samkvæmt núgildandi lög- um, enda hafa þeir engar heimildir til þess. Helgi skilur þetta alveg en hann velur að halda áfram einkennilegum málflutningi sínum til að vekja at- hygli á sér og fyrirtækjum sínum. Lífeyrissjóðir hafa hins vegar tekið þátt í fjármögnun slíkra verkefna með kaupum á skuldabréfum sem hafa gert réttum aðilum kleift að koma verkefnunum í höfn. Lífeyr- issjóður verslunarmanna hefur m.a. komið að fjármögnun af því tagi með öðrum lífeyrissjóðum. Umhyggja? Á Helga Vilhjálmssyni hefur mátt skilja að hann bæri sérstaka um- hyggju fyrir sjóðsfélögum og talið sig vera að ráða þeim heilt með því að hvetja þá til að greiða ekki í sjóðina þrátt fyrir skýrar lagaskyldur þar um. Ég verð því miður að efast um heilindi hans í þessum efnum. Sá grunur læðist að manni að um- hyggja hans beinist einkum að eigin rekstri og tekjuöflun þar sem einskis er svifist til að vekja á sér athygli. Nú gerir hann að sérstöku umtals- efni að framkvæmdastjóri Lífeyr- issjóðs verslunarmanna skuli hafa bif- reið til afnota samkvæmt starfssamningi eins og algengt er hjá helstu yfirmönnum víða í fyrirtækjum og stofnunum. Það eru fleiri en ráð- herrar sem hafa afnot af bifreiðum. Ég er viss um að Helgi Vilhjálmsson er svo reyndur í íslensku viðskiptalífi að honum sé fullkunnugt um það. En vonandi gleður það súkkulaðiforstjór- ann og alla aðra löghlýðna borgara að fram- kvæmdastjóri sjóðsins greiðir fulla skatta af þess- um hlunnindum eins og mælt er fyrir um í skattalögum. Mér leiðist að þurfa að svara Helga Vilhjálms- syni vegna þessa máls því ég ber virðingu fyrir mörgu sem hann hefur gert vel á löngum ferli. Hann er einn af þeim duglegu Íslendingum sem brotist hafa áfram af eljusemi og krafti og komið sér vel fyrir í veraldlegum efnum. En það er hins vegar leitt þegar auðlegð fyllir menn hroka og ranghugmyndum sem leiða til þess að þeir telji sig þess umkomna að ráðast gegn öðr- um með rakalausum áróðri og svívirðingum – ár eftir ár – og jafnan undir yfirskini umhyggju fyrir fólki. Við hljótum að sjá í gegnum vinnubrögð af þessu tagi. Eftir Helga Magnússon » „Sá grunur læðist að manni að um- hyggja hans beinist einkum að eigin rekstri og tekjuöflun þar sem einskis er svifist til að vekja á sér at- hygli.“ Helgi Magnússon Höfundur er formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Páskabrella súkkulaði- forstjórans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.