Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012
Háværar umræður
hafa verið á und-
anförnum vikum um
mikilvægi þess að
koma til móts við
skuldug heimili sem
tóku verðtryggð lán.
Bent hefur verið á að
almennar niðurfell-
ingar verðtryggðra
skulda séu kostn-
aðarsamar og að ein-
hver þurfi að bera
þann kostnað. Íbúðalánasjóður er
stærsti einstaki eigandi verðtryggðra
skulda heimilanna. Íbúðalán sjóðsins
eru að langmestu leyti fjármögnuð
með útgáfu skuldabréfa sem eru með
ríkisábyrgð. Lækkun verðtryggðra
skulda mun því leiða til þess að ríkið,
sem er ábyrgðaraðili, mun þurfa að
greiða fé inn í sjóðinn. Kostnaður við
lækkun skulda Íbúðalánasjóðs mun
því lenda á skattgreiðendum.
Á undanförnum dögum hefur tölu-
verð umræða verið um að skattleggja
séreignarsjóði til þess að fjármagna
lækkun verðtryggðra lána. Sam-
kvæmt gildandi lögum er séreign
skattlögð við útgreiðslur. Ef skatt-
lagningunni verður breytt þannig að
skattar verði teknir fyrir fram mun
ríkið ekki fá skatttekjur við út-
greiðslur. Það þýðir að skatttekjur
ríkisins í framtíðinni verða lægri.
Lægri skattgreiðslur þýða að ann-
aðhvort þurfa útgjöld ríkisins, t.a.m.
til mennta- og heilbrigðiskerfis, að
vera lægri eða skattar í framtíðinni
hærri. Því munu skattgreiðendur
framtíðarinnar á endanum bera
kostnaðinn, með minni þjónustu hins
opinbera eða hærri sköttum. Skatt-
tekjur ríkisins lækka strax árið eftir
að skattur er tekinn fyrir fram því á
hverju ári eru verulegar
fjárhæðir teknar út úr
séreignarsjóðunum. Því
má gera ráð fyrir að
strax á næsta ári aukist
halli ríkissjóðs, að öðru
óbreyttu, en við því þarf
að bregðast við með
frekari niðurskurði,
hækkun skatta eða
frekari lántökum.
Lítill munur er, fyrir
skattgreiðendur, á fyrir
fram innheimtum skött-
um og lántökum rík-
issjóðs. Lántökur leiða til þess að í
framtíðinni þarf að greiða vexti og
afborganir. Fjármunir sem fara í
vexti og afborganir leiða til þess að
annað hvort þurfa útgjöld ríkisins að
verða lægri eða skattar hærri fram-
tíðinni.
Í umræðu um niðurfellingu verð-
tryggðra skulda er mikilvægt að
halda því til haga að einhver þarf að
greiða kostnaðinn við hana. Skatt-
greiðendur framtíðarinnar munu
bera kostnaðinn við allar aðgerðir
sem eru fjármagnaðar með því að
flýta innheimtu skatta. Án þess að
svara því hér má velta fyrir sér hvort
ekki sé nú þegar búið að senda of
mikið af reikningum til framtíð-
arskattgreiðenda?
Skattgreiðendur
bera kostnað af
skattlagningu
séreignasjóða
Eftir Marinó Örn
Tryggvason
Marinó Örn
Tryggvason
» Fjallað hefur verið
um að skattleggja
séreignasjóði til þess að
fjármagna niðurfellingu
skulda. Sýnt er fram á
að skattgreiðendur bera
þann kostnað.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Í Morgunblaðinu
þann 24. febrúar síð-
astliðinn birtist grein
eftir Gest Ólafsson þar
sem hann fjallar um
nýja bygging-
arreglugerð og áhrif
hennar á hönnun og
byggingu hagkvæmra
íbúða fyrir venjulega
Íslendinga. Í kjölfar
greinarinnar velti ég
fyrir mér hvernig hinn venjulegi Ís-
lendingur sé.
Hinn venjulegi Íslendingur getur
birst okkur í hinum ýmsu myndum.
Ríkur, fátækur, lítill eða stór, fatl-
aður eða ófatlaður og allt þar á milli
og eru landsmenn yfirhöfuð allir Ís-
lendingar? Eitt er víst að við búum í
samfélagi mannlegs margbreytileika
þar sem þarfir landsmanna eru af-
skaplega mismunandi. Sem betur
fer erum við jafn misjöfn og við er-
um mörg.
Í nýrri byggingarreglugerð sem
var undirrituð fyrir skemmstu er
það markmið að tryggja aðgengi fyr-
ir alla. Í því felst að fólki sé ekki mis-
munað um aðgengi og almenna notk-
un á mannvirkjum á grundvelli
fötlunar, skerðingar eða veikinda.
Um leið er gert ráð fyrir að fatlað
fólk geti komist inn og út úr mann-
virkjum á öruggan hátt, líka þegar
hætta steðjar að svo sem við elds-
voða.
Reglugerðin hefur verið gagn-
rýnd fyrir að koma í veg fyrir hönn-
un minni íbúða. Í nýrri reglugerð er
hins vegar ákveðinn sveigjanleiki
fyrir hendi sem gerir það að verkum
að möguleiki er á því að hanna og
byggja heldur smærri íbúðir en áð-
ur, þrátt fyrir að einstaka rýmum sé
ætlað að vera stærri en áður.
Algild hönnun er nýtt hugtak í
byggingarreglugerð sem gerir okk-
ur kleift að hugsa út fyrir rammann
og mæta mismunandi þörfum lands-
manna. Með algildri hönnun er með-
al annars tekið tillit til eftirtalinna
hópa einstaklinga: Einstaklinga með
lestrarörðugleika, þroskahamlanir,
astma og/eða ofnæmi,
heyrnarskertra,
blindra og sjónskertra,
göngu- og handskertra
og hjólastólanotenda.
Fötlun setur vissu-
lega mörgum skorður
við að sinna sjálfsögð-
um þáttum daglegs lífs,
svo sem við að sinna at-
vinnu, námi og fé-
lagslífi. Á árum áður
var algengara að fatlað
fólk byggi við vissa ein-
angrun vegna sinnar
fötlunar, sem stafaði oft af hindr-
unum í samfélaginu og erfiðleikum
við að komast á milli staða. Um-
hverfið gerði hreinlega ekki ráð fyrir
fötluðu fólki.
Sé miðað við sömu hlutföll og á
Norðurlöndum má gera ráð fyrir að
um 60.000 manns hér á landi eigi við
einhvers konar fötlun að stríða,
væga eða alvarlega. Öll getum við
lent í því einhvern tímann yfir ævina
að hlutir sem áður þóttu sjálfsagðir
reynast okkur meiri hindrun en áð-
ur. Við veikjumst, slösumst kannski
og öll eldumst við. Því er mikilvægt
að tillit sé tekið til mismunandi hópa
fötlunar og mannlegs margbreyti-
leika þegar kemur að mann-
virkjagerð.
Gott aðgengi kemur sér vel fyrir
alla og er ein af lykilforsendum þess
að allir geti tekið virkan þátt í sam-
félaginu, hvort sem um er að ræða
fatlað fólk, ófatlað, fólk með barna-
vagna, þungaðar konur eða eldri
borgara. Bætt aðgengi að mann-
virkjum gerir það að verkum að lík-
amlegt ásigkomulag muni síður
setja hömlur á daglegt líf og búsetu
fólks. Það hlýtur því að vera þjóð-
hagslega hagkvæmt að manngert
umhverfi sé aðgengilegt öllum þar
sem það eykur líkur á virkni og sjálf-
stæði fólks.
Með því að lög um mannvirki og
byggingarreglugerð tryggi aðgengi
fyrir alla með algilda hönnun að leið-
arljósi er tekið tillit til ólíkra hópa og
mismunandi þarfa fólks í samfélag-
inu. Í fyrsta sinn er komið út plagg
sem tryggir það að manngert um-
hverfi í samfélaginu okkar sé að-
gengilegt öllum. Nýrri bygging-
arreglugerð ber að fagna þar sem
hún boðar bætt aðgengi fyrir alla og
verður það ekki metið til fjár.
Aðgengi fyrir alla eða bara
„venjulega Íslendinga“
Eftir S. Hafdísi
Runólfsdóttur » Gott aðgengi kemur
sér vel fyrir alla og
er ein af lykilforsendum
þess að allir geti tekið
virkan þátt í samfélag-
inu.
S. Hafdís Runólfsdóttir
Höfundur er ferlimálafulltrúi Ör-
yrkjabandalags Íslands.
Ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Sam-
fylkingar fór frá í kjöl-
far meintrar bús-
áhaldabyltingar í
janúar 2009 og við tók
minnihlutastjórn Sam-
fylkingar og vinstri
grænna undir forystu
Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Stjórn sem
Framsóknarflokkurinn
varði falli, en það voru mistök þar sem
aldrei var hlustað á þá. Sjaldan launar
kálfur ofeldið.
Í kosningunum vorið 2009 fengu
Samfylking og Vinstrihreyfingin -
grænt framboð hreinan meirihluta og
VG sigurvegarar kosninganna. Þar
sem kosið var í reiðikasti, fólk vildi
eitthvað annað þótt enginn gæti bent
á hvað þetta eitthvað annað væri. En
heldur er nú skrautfjöðrum stjórn-
arflokkanna að fækka. Ekki er að sjá
að stefnuskrá VG sé Steingrími J.
Sigfússyni heilög kýr enda löngu bú-
inn að fórna henni á altari Samfylk-
ingar. Eins hefur Steingrímur margí-
trekað að hann geri allt til að hindra
að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur nái völdum.
Ekki var beðið boðana með að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu sem var skilyrði fyrir stjórnar-
samstarfi vinstri flokkanna, af hálfu
Samfylkingar sem jafnan sér Sam-
bandið í rósrauðum bjarma með
stjörnur í augum.
Eitt af því sem einkennt hefur
þessa ríkisstjórn er tíð ráðherra-
skipti. Síðast var þeim Jóni Bjarna-
syni og Árna Páli Árnasyni fórnað.
Jóni fyrir að standa á stefnu síns
flokks gegn Evrópusambandinu og
Árna Páli fyrir að vilja verja sem best
hagsmuni Íslands í Icesave-
málaferlunum.
Það sem mest er haldið á lofti að
náist við inngöngu:
Matvælaverð lækki. Atvinnuleysi
minnki. Evran og upptaka hennar
skapi stöðugleika. Ekki hægt að af-
nema verðtryggingu nema með upp-
töku evru.
Matvælaverð kann að lækka, en
gæti ekki skeð að flutt yrði inn svo og
svo mikið að erfðabreyttum matvæl-
um? Viljum við það? Þá gætu vörur
sem eru framleiddar ut-
an Evrópusambandsins
í Bandaríkjunum og As-
íu hækkað þar sem þær
standa til hliðar. At-
vinnuleysi hefur gegn-
um árin verið viðvarandi
vandamál innan Sam-
bandsins þar sem þjóð-
ríkin hafa ekki náð að
beisla það. Evran hefur
síður en svo reynst
traustur og stöðugur
gjaldmiðill, enda hygg
ég að efnahagsstjórn innan Sam-
bandsins sé nú ekki alveg gallalaus
frekar en hér á Fróni. Það er firra
sem stenst engan veginn að innganga
og upptaka evru sé forsenda þess að
hægt sé að afnema verðtryggingu.
Þegar Evrópusambandsandstæð-
ingar hafa uppi varnaðarorð telja að-
ildarsinnar það jafnan hræðsluáróð-
ur, en hvar eru rök þeirra fyrir því?
Nær öll sín verk miðar ríkisstjórnin
við að auðvelda inngöngu í Sam-
bandið, enda linnulaus áróður og að-
lögun í gangi, nú síðast stofnun þess-
arar dæmalausu Evrópustofu.
Tökum stjórnlagaráð, sem Sam-
fylking barðist fyrir að koma á kopp-
inn enda ekki hægt að ganga í Evr-
ópusambandið nema breyta
stjórnarskrá. En það er nú svo með
Samfylkingu að ef þeir vilja koma sín-
um gæluverkefnum fram, liggur svo
mikið á að helst þarf alls staðar að
keyra yfir á rauðu.
Nei: Okkur er best borgið utan
Evrópusambandsins, enda ekki útséð
hvort það og evran lifa eða deyja,
Þótt Össur og félagar sjái það ekki.
Rósrauði bjarminn er svo skær.
Það er lítil björgun að stökkva um
borð í hriplekan björgunarbát sem
enginn veit hvort nær landi.
Við þurfum að stórefla mat-
vælaframleiðslu hér heima og megum
ekki fórna sjálfstæði okkar fyrir Evr-
ópusambandsdraumóra.
„Rósrauði bjarminn“
Eftir Gunnar
Thorsteinson
Gunnar Thorsteinson
» Samfylkingin sér
jafnan Sambandið í
rósrauðum bjarma með
stjörnur í augum.
Höfundur er fyrrverandi bóndi og
framsóknarmaður.
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
jöreign ehf
Til sölu Grensásvegur - Hornhús
Vandað og vel staðsett 1.440 fm atvinnuhúsnæði. Um að ræða heila húseign á 4 hæðum með lyftu. Eignin
skiptist í fjölmörg skrifstofuherbergi, opin vinnurými, kaffistofur, snyrtingar og skjalageymslur. Þrír inngangar
eru í húsið. Tilbúið til afhendingar strax. Næg bílastæði, 8 í bílageymslu og 26 á steyptum palli við húsið.
Samtals 33 bílastæði fylgja þessari eign. Húsið hefur mikið auglýsingagildi.
Nánari upplýsingar veitir Dan Wiium s. 896 4013.