Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 36

Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Í Menntaskólanum á Akureyri var sá háttur hafður á að í upphafi hvers skólaárs var valinn „Inspec- tor“ fyrir hverja bekkjardeild. Okkur bekkjarfélögunum var mik- ilvægt að velja í það hlutverk mann sem nyti trausts skólameistara og kennara, en hefði jafnframt skiln- ing á þörfum unglinga til ærsla og hefði getu til að koma fram fyrir hönd bekkjarins gagnvart skólayf- irvöldum. Við völdum Þórð Ólafs- son í þetta hlutverk og gegndi hann því hlutverki í 47 ár. Á menntaskólaárunum stund- aði Þórður íþróttir af kappi. Hann var góður körfuboltamaður og stundaði þá íþrótt með skólafélög- um sínum úr MA fram til þess að hann flutti til Washington. Fyrir Þórði var körfuboltinn ekki bara leikur, hann var keppni og þá spratt fram það sem kallað er keppnisskap. Þrátt fyrir keppnis- skapið var Þórður dagfarsprúður og búinn miklu jafnaðargeði. Hann var glaðlyndur og bar ávallt hlýjan hug til samferðafólks síns úr Reykjaskóla og Menntaskólanum á Akureyri. Um áratuga skeið höfum við bekkjarfélagarnir haft það fyrir sið að hittast og gleðjast þann 12.12. ár hvert. Vegna starfa Þórð- ar erlendis hefur hann ekki mætt á þessar samkomur síðustu þrettán árin. Úr þessu var bætt með því að gera það að föstum dagskrárlið að hringja í Tóta og syngja fyrir hann bekkjarsönginn. Þórður lærði lögfræði við Há- skóla Íslands. Að námi loknu starf- aði hann við Bankaeftirlitið og var forstöðumaður þess um langt skeið. Árið 1998 gerðist hann starfsmaður Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins í Washington. Því starfi fylgdu mikil ferðalög og fjarvera í fjarlægum löndum. Störf Þórðar hjá Bankaeftirlitinu og síðar Al- Þórður Ólafsson ✝ Þórður Ólafs-son fæddist á Núpi í Dýrafirði 26. júlí 1948. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi að kvöldi þriðjudagsins 21. febrúar. Útför Þórðar fór fram frá Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði 2. mars 2012. þjóða gjaldeyris- sjóðnum voru mjög krefjandi og oft tóku þau mikið á. En með staðfestu og réttsýni fóru Þórði þessi verk vel úr hendi. Það var mikil sorg fyrir okkur bekkjar- félagana að fylgjast með því hvernig ill- víg veikindi léku Þórð grátt, mann sem fyrir þremur mánuðum var fullfrískur. Við sendum Láru okkar samúð- arkveðjur. Fyrir hönd bekkjarfélaga úr MA, Hlöðver Kjartansson. Sjömenningarnir frá Reykja- skóla vorum við krakkarnir kall- aðir sem fóru í Menntaskólann á Akureyri eftir landspróf 1964. Við héldum hópinn þó svo að við eign- uðumst fleiri vini og tengdumst öðrum hópum. Einn okkar var Þórður eða Tóti eins og við höfum alltaf kallað hann. Leiðir skildi þegar við völdum mismunandi framhaldsmenntun eftir MA. Minningar okkar um Tóta síðan eru því ekki sameigin- legar nema að litlu leyti en nú þeg- ar þetta stóra skarð er höggvið í raðir okkar, kallar það á sameig- inleg viðbrögð. Þá er líka gott að finna að vinirnir frá Reykjaskóla og úr MA deila með okkur sorg- inni. Tóti hafði þá sérstöðu í hópnum að eiga foreldra sem við kynnt- umst öll. Faðir hans Ólafur var skólastjórinn á Reykjaskóla og Sólveig móðir hans kenndi stelp- unum handavinnu. Við bárum virðingu fyrir skólastjórahjónun- um og fundum hlýju frá þeim, sem var gott fyrir börn sem dvöldu langdvölum fjarri heimili sínu. En Tóti var samt einn af okkur, ljúfur og traustur vinur, sjálfsagð- ur og mikilvægur í hópnum. Okkur stelpunum fannst gott var að vera nálægt honum og leita til hans þegar illa lá á okkur og hann var einn af okkar bestu dansherrum. Tóti var fjölhæfur íþróttastrákur, kraftmikill keppnismaður og hafði mikinn metnað hvort sem hann keppti í sundi, frjálsum íþróttum, knattspyrnu eða körfubolta. Það var ekki síst vegna hans sem við stelpurnar tvær í hópnum lögðum á okkur að horfa á strákana keppa og hvetja þá áfram þó svo að við hefðum meiri áhuga á ljóðum og leiklist. Við strákarnir kynntust Tóta hver með sínum hætti sem bekkj- arfélaga, herbergisfélaga, liðs- manni í íþróttum, vinnufélaga í byggingavinnu og í síldarbræðslu, meðleikara í „Upp til selja“ á Reykjaskóla og söngfélaga í karla- kórnum hans Hermanns í MA. Öll minnumst við hans líka sem hróks alls fagnaðar í gleðskap fyrr og síð- ar. Tóti hitti Láru sína í MA og síð- an hafa þau arkað saman sinn ævi- veg. Vel á annan áratug hafa þau búið erlendis og sum okkar heim- sóttu þau í Washington fyrir nokkrum árum og endurnýjuðu gömul kynni. Sú minning skilur eftir yl í hjarta. Bekkjarsystkinin frá Reykjaskóla hafa hist nokkr- um sinnum á tímamótum, m.a. komið saman á heimili Tóta og Láru í Hafnarfirði og á 40 ára landsprófsafmælinu hittumst við á Reykjaskóla. Þá var tíminn valinn þannig að þau gætu verið með. Hluti sjömenningahópsins frá Reykjaskóla hefur hist árlega á seinni árum ásamt mökum þegar Tóti og Lára hafa verið heima um jól. Farið var í göngutúra og síðan sest niður og spjallað. Síðasta ferðin var fyrir rúmu ári. Þá var Tóti hress og heilbrigð- ur, sagðist ætla að vinna í Wash- ington til 65 ára aldurs og koma svo heim til Íslands til að vera í faðmi fjölskyldu og vina síðasta fjórðung ævinnar. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Þann 12. desember sl. greindist hann með krabbamein sem lagði hann að velli á skömmum tíma. Og við sem ætluðum að hittast svo miklu oftar. Við vottum fjölskyldu vinar okkar, Þórðar Ólafssonar, okkar dýpstu samúð. Anna Kristín Kristjánsdóttir, Bjarni Gunnarsson, Gunnar Frímannsson, Kristín Indriðadóttir. Leiðir okkar og þeirra hjóna Þórðar og Láru lágu saman þegar við fluttumst á sama til Wash- ington en þar var Þórður þá að taka við ábyrgðarfullu starfi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Og við höfðum ekki lengi þekkt Þórð þeg- ar við fundum svo vel að honum varð best lýst með því að hann væri drengur góður. Og Þórður var ekki bara drengur góður held- ur afskaplega hæfur og samvisku- samur í leik og starfi. Þeir eign- leikar hans tryggðu honum vandasamt starf hjá stofnun sem vitað er og viðurkennt að gerir mjög miklar kröfur til þeirra sem þar starfa. En það var ekki per- sónulegur metnaður eða þörf fyrir að upphefja sjálfan sig sem rak Þórð áfram; allt hans fas og lífs- viðhorf einkenndist af lítillæti, ein- lægni og samúð með þeim sem áttu undir högg að sækja. Þórður var líka frábær fulltrúi okkar Ís- lendinga á alþjóðlegum vettvangi og þrátt fyrir að hann byggi lengi í útlöndum lét sterki íslenski kjarn- inn í honum ekkert undan síga sem birtist m.a. í því að honum þótti fátt skemmtilegra en að syngja hátt íslensk lög í góðra vina hópi og fannst honum þá ekki verra að fá að veita vel. Hann var skemmti- legur íslenskur drengur. Í lögfræðinni er latneska hug- takið „Bonus Pater Familias“ mjög mikilvægt, þ.e. „góður fjöl- skyldufaðir“. Lögfræðingurinn Þórður skildi mikilvægi þessa eig- inleika afskaplega vel. Hann var fjölskyldumaður í húð og hár. Hann átti frábæra konu sem hann kunni svo sannarlega að meta. Hann átti miklu barnaláni að fagna og raunar barnabarnaláni líka. Og það kunni hann líka svo sannar- lega að meta og sú ást sem hann bar til fjölskyldu sinnar var svo augljós í hlýja, svolítið glúrna brosinu sem lék um varir og glampaði í augum þegar fjölskyld- an barst í tal. Börn hans og barna- börn eiga því frábæra minningu um hlýjan og skemmtilegan pabba og afa og það er mjög leitt að hann og þau skyldu ekki fá að njóta þess lengur að vera saman. Við sendum Láru og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Það er okkur mikils virði að hafa þekkt svona góðan og skemmtilegan dreng. Ingunn og Engilbert. Tóti minn, skólafélagar, bekkj- arfélagar og síðan líða árin enn hraðar. Hvað eru þetta tvö til þrjú ár síðan við fengum okkur skötu á Holtinu, tókumst á um mál dags- ins, lyftum glasi með nokkrum bekkjarfélögum og mökum. Stundum í sambandi um tölvu. Höfðum uppi áform um að endur- taka skötuátið með tilheyrandi nú fyrir síðustu jól, en löngu áður en kom að því barst mér fréttin af sjúkdómsgreiningunni. Þá varð ljóst að ekki var langt eftir og erf- iðir dagar framundan.Var staddur erlendis er þú snerir heim. Okkar gagnkvæmi vinur og bekkjarfélagi Konni hélt mér upplýstum um þína líðan síðustu dagana. Lára mín, lífið heldur áfram og þér og ykkur votta ég mína samúð. Ingvar J. Karlsson. Fjölmargar minningar hafa flogið um hugann síðustu dagana eftir andlát vinar og gamals vinnu- félaga, Þórðar Ólafssonar. Leiðir okkar lágu fyrst saman við störf hjá bankaeftirliti Seðlabanka Ís- lands á miðju ári 1975, en Þórður var þar síðar forstöðumaður í um tvo áratugi eða frá því seint á árinu 1978 og allt þar til hann lét af störf- um á árinu 1998, að undanskildu tæpu ári sem hann var í leyfi vegna náms í Noregi. Eftir að Þórður lét af störfum í Seðlabankanum var hann starfs- maður hjá og á vegum Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) í Wash- ington allt til dauðadags, m.a. sem fulltrúi í sendinefndum sjóðsins víða um lönd. Vissulega voru aðrir tímar í banka- og fjármálastarf- semi hér á landi á þeim árum sem Þórður stýrði bankaeftirlitinu en síðar varð. Enginn skal samt halda að þar hafi alltaf verið siglt lygnan sjó. Verkefni í eftirlitsstarfseminni voru þá sem nú afar krefjandi og aðstæður oft hlaðnar spennu. Það þurfti því bæði faglega færni, ár- vekni og sterk bein til að standa vaktina og stýra bankaeftirlitinu í þá tæpu tvo áratugi sem Þórður gerði. Ég tel að honum hafi farið þetta starf vel úr hendi, þó að stuðningur og skilningur á eftirlits- starfseminni sýndist á tíðum frem- ur takmarkaður á þessum árum, enda menn þá líklega almennt ekki eins meðvitaðir um hvað farið getur úrskeiðis í þessum efnum. Lands- menn þekkja nú á eigin skinni af- leiðingarnar af því. Eins má vænta að mörgum sé nú ljóst að þeir sem eru í forsvari fyrir eftirlitsstarfsemi á fjármálamarkaði og sinna starf- inu af einurð afla sér seint al- mennra vinsælda sem slíkir. Þórður var metnaðarfullur og kappsamur stjórnandi og sparaði sig hvergi þegar þurfti að taka á erfiðum verkefnum. Hann fór ávallt fremstur meðal jafningja í störfum sínum og krafðist ekki meira af öðrum en hann var tilbú- inn til að leggja á sig sjálfur. Þórður var traustur félagi, hreinn og beinn í framkomu og vafningalaus í sam- skiptum. Hann naut virðingar starfsmanna sinna og það var góð- ur, samheldinn og ósérhlífinn hóp- ur starfsmanna hjá bankaeftirlitinu allan þann tíma sem hann var þar við stjórn. Það átti fyrir mér að liggja að halda áfram að vinna við þessa eft- irlitsstarfsemi eftir að Þórður lét af störfum í bankaeftirliti Seðlabank- ans og upplifa frá því sjónarhorni örlagaríka þróun og atburði í fjár- málalífinu hér á landi á liðnum síð- asta áratug og síðan endurreisnar- vinnuna í fjármálakerfinu. Ég veit nú að ég er ekki einn um að hafa hugsað nokkrum sinnum á umliðn- um árum að gott hefði verið ef reynslu og áræðis Þórðar hefði not- ið lengur við í eftirlitsstarfseminni hér á landi en raunin varð. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir öll samveruár- in með Þórði í þeim góða hópi fé- laga sem hann stýrði. Ég votta Láru, börnum þeirra og öllum að- standendum dýpstu samúð. Bless- uð sé minning Þórðar Ólafssonar. Þorsteinn E. Marinósson. Maður tók strax eftir honum þegar hann kom í þriðja bekk Menntaskólans á Akureyri. Það var augljóst að þarna var íþrótta- maður á ferð, hæglátur, brosmildur og fljótur að kynnast. Það kom líka á daginn að hann var vel liðtækur í íþróttum og spilaði strax fyrsta vet- urinn með körfuboltaliði skólans og var með í fleiri greinum, enda kom- inn frá Reykjaskóla í Hrútafirði þar sem íþróttir voru í hávegum hafðar. Við kynntumst ekkert að ráði þá, nema í gegnum íþróttirnar og návist hans var góð og traust. Það var ekki fyrr en 15 árum seinna að fjölskyldur okkar tengd- ust ævarandi vináttuböndum. Við vorum á sama tíma í endurmennt- un og framhaldsnámi í Oslo, 1980- 1981, bjuggum í litlum íbúðum á stúdentagarðinum Kringsjå upp við Sognsvatn. Báðar fjölskyldurn- ar voru með tvö börn á svipuðum aldri og áhugamálin voru svipuð. Þetta var skemmtilegt ár, ágæt að- staða var á Kringsjå til ýmissa leikja og íþrótta. Á ísilögðu Sogns- vatninu var skautafæri mest allan veturinn og gönguskíðaleiðir upp í „marka“ enda var mikið leikið og skemmt sér. Vinskapurinn hélt áfram eftir að við fluttum heim. Óli Þór og Silja komu í heiminn skömmu eftir það og við hittumst reglulega, oftar en ekki í sumarbú- stað um helgi og krakkarnir léku sér einstaklega vel saman. Silja var hugmyndarík og skemmtileg og aldrei var setið auðum höndum. Við hittumst sjaldnar eftir að Tóti fór að vinna hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum og hann og Lára fluttu til Bandaríkjanna. Ítrekað var talað um að við kæmum í heim- sókn en það var fyrst síðastliðið vor sem við létum verða af því að heim- sækja þau. Við flugum til New York þar sem Tóti og Lára tóku á móti okkur og móttökurnar voru frábærar. Við bjuggum á Time Square, fórum í skoðunarferðir, á söfn og í leikhús á Broadway. Borð- uðum góðan mat og nutum þess að vera saman í þessari skemmtilegu borg. Síðan keyrðum við niður til Washington þar sem Tóti og Lára bjuggu. Þar vorum við á „Cherry Blossom“ en þá blómgast kirsu- berjatrén sem Japanirnir gáfu Bandaríkjamönnum. Við sáum Hvíta Húsið, Smithsoniasöfnin, Náttúrugripasafnið, Flugsafnið o.m.fl. Þetta voru ógleymanlegir dagar. Tóti og Lára voru einstaklega samhent hjón og það var gott að vera með þeim. Tóti var eldklár, hreinskiptinn, glaðlyndur og skemmtilegur. Hann var töffari og ljúfmenni, einstakur heimilisfaðir. Hann var trygglyndur og sannur vinur vina sinna. Við ætluðum saman að veiða í sumar, hans er nú sárt saknað. Við þökkum vináttuna og skemmtilega samfylgd. Elsku Lára, Gígja, Orri, Silja og fjöl- skyldur, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Birgir og Brit. Þórður Ólafsson var einn af reynslumestu bankaeftirlitsmönn- um Íslands og naut sem slíkur álits langt út fyrir landsteinana. Eftir háskólanám starfaði hann í rúma tvo áratugi hjá bankaeftirliti og síðar eftirlitssviði Seðlabanka Ís- lands, lengst af sem yfirmaður. Um það leyti sem bankaeftirlit var fært frá bankanum og sameinað hinu nýja Fjármálaeftirliti fór hann hins vegar til starfa hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum og var þar til dauðadags, eða í rúman ára- tug. Þar var viðfangsefni hans að mestu hið sama, bankamál og eft- irlit. Ég kynntist Þórði þegar ég kom til starfa í Seðlabankanum haustið 1980 eftir nám erlendis. Hagfræði- deild bankans og bankaeftirlitið voru þá bæði til húsa í Austur- stræti 14, gegnt gömlu Lands- bankabyggingunni en þar sat bankastjórnin og það sem ein- hverjir töldu „fínni“ deildir bank- ans. Ég held að við Þórður höfum aldrei viljað viðurkenna það. Í öllu falli vorum við mörg sem vorum í Austurstræti 14 á þeirri skoðun að það væri meira gaman hjá okkur þar sem taumhaldið var minna og við nær Óðali! En það var hugs- anlega sjálfsblekking eins og svo ýmislegt annað. Mig minnir að Þórður hafi verið með skrifstofu á sömu hæð og hag- fræðideildin og þurfti að fara í gegnum eldvarnahurð til að kom- ast á milli. Þar sat hann innan um kynstrin öll af gögnum. Ég man að sem nýgræðingur var gott að leita til Þórðar þegar fengist var við við- fangsefni þar sem bankakerfið kom mikið við sögu enda þekking hans á reglu- og talnaverki mikil. Samstarf okkar óx og dafnaði síð- an með árunum, ekki síst eftir að ég komst á svipað stig og hann og sat bankaráðsfundi sem aðalhag- fræðingur. Þá þegar var Þórður orðinn eftirsóttur í verkefni á veg- um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins enda reyndist honum brautin þangað inn greið þegar honum fannst tíminn kominn. Sem betur fer slitnuðu tengsl okkar ekki við það. Við hittumst þegar ég átti erindi á fundi hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum og hann heilsaði reglulega upp á í bankan- um á ferðum sínum til Íslands. Ég hafði mikið gagn af samtölum mín- um við Þórð á þessum tíma því hann var vel að sér um fjármála- eftirlit víða um heim og hafði vel grundaðar skoðanir á því hvernig best væri að hátta þeim málum á Íslandi. Þá minnumst við Elsa góðra stunda með honum og Láru í heimsókn okkar til Washington í byrjun þessarar aldar. Þórður lést langt fyrir aldur fram og það er missir að hann leggur ekki lengur hönd á plóg fjármálastöðugleika. En það er auðvitað ekkert á móts við harm fjölskyldunnar sem nú sér á bak Þórði þegar eftirlaunaárin blöstu við. Við Elsa vottum Láru og börn- um þeirra Þórðar og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Már Guðmundsson.  Fleiri minningargreinar um Þórð Ólafsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ✝ Þökkum af alhug auðsýnda samúð, kærleika og stuðning við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS HELGA FRIÐJÓNSSONAR, Háabarði 5, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heima- hjúkrunar Karitas. Guð blessi ykkur öll. Katla Þorkelsdóttir, María Ólafsdóttir, Þorkatla Ólafsdóttir, Kári Vigfússon, Hulda Ólafsdóttir, Jóhannes Þór Sigurðsson, Sólrún Ólafsdóttir, Olgeir Gestsson, Guðrún Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa HERMANNS ÓLAFS GUÐNASONAR. Starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík, færum við sérstakar þakkir fyrir góða umönnun Elsa P. Níelsdóttir, Ólöf Dóra Hermannsdóttir, Ragnhildur Hermannsdóttir, Hjörtur Pálsson, Erlendur N. Hermannsson, Anna María Grétarsdóttir, Jóhann Gísli Hermannsson, Kristín Björg Óskarsdóttir, Erla Ósk Hermannsdóttir, Gunnar S. Gottskálksson, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Þökkum innilega hlýhug, samúð og vináttu sem okkur var sýnd við andlát og útför ástkæru eiginkonu minnar, dóttur, móður, ömmu, systur og mágkonu okkar, SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR, Åkarp, Svíþjóð. Haukur Viggósson, María Finnbogadóttir, Finnbogi Már Hauksson, María M. Finnbogadóttir, Jóhann Steinar Hauksson, Una Ragnheiður Hauksdóttir Hákon Sigurðsson, Katrín Guðjónsdóttir, Björg Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.