Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 40

Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Íslendingar vilja samkvæmt þess- ari könnun helst sjá ný íslensk leik- rit. Best er ef atburðir verkanna gerast um kvöld að sumarlagi. Og ef það er dans í sýningunni þá þarf hann að vera samhæfður,“ segir Hlynur Páll Pálsson, einn þeirra sem skipa sviðslistahópinn 16 elsk- endur, en hópurinn frumsýnir Sýn- ingu ársins í Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni 6 annað kvöld kl. 20. Að sögn Hlyns byggist sýningin á skoðanakönnun sem hópurinn fékk Félagsvísindastofnun HÍ til að fram- kvæma fyrir sig til að komast að því hvað Íslendingar vilja sjá á leiksviði. „Í raun má segja að við séum inn- blásin af myndlistartvíeykinu Kom- ar og Melamid sem ferðaðist um heiminn og rannsakaði hvað fólk vildi helst sjá í málverki og málaði í kjölfarið bestu og verstu myndina að mati svarenda. Við veltum þannig fyrir okkur hvað myndi gerast ef við leyfðum þjóðinni að ráða leikverki alveg,“ segir Hlynur. Alls er í sýningunni boðið upp á 17 senur, en enginn áhorfandi fær að sjá þær allar. „Ástæðan er sú að við erum að reyna að skapa hina full- komnu leikhúsupplifun fyrir hvern og einn samfélagshóp. Sökum þessa skiptum við áhorfendum í hópa eftir kyni, aldri, búsetu og starfi og á grundvelli þess eru þeir síðan leiddir með tilteknum hætti um sýning- arrýmið sem rúmar mörg leiksvið,“ segir Hlynur leyndardómsfullur og vill lítið meira gefa upp um sýn- inguna. „Ég get þó upplýst að við fengum leikskáldin Hrafnhildi Hagalín og Jón Atla Jónasson til að skrifa fyrir okkur annars vegar senuna sem flestir vilja sjá og hins vegar senuna sem fæstir vilja sjá, en þess má geta að senurnar voru ólíkar eftir kyni. Kristín Eysteinsdóttir og Stefán Jónsson leikstýra þessum senum, en Ilmur Kristjánsdóttir og Örn Árna- son eru sérlegir gestaleikarar hjá okkur í senunum sem flestir vildu sjá, því þau voru ofarlega á lista yfir uppáhaldsleikara þjóðarinnar. Við 16 elskendur leikum hins vegar sen- urnar sem fæstir vildu sjá enda nefndi enginn okkar nöfn í hópi uppáhaldsleikara sinna,“ segir Hlyn- ur og bætir við að reyndar sé uppá- haldsleikkona þjóðarinnar önnur eða óljós. Þegar blaðamaður hváir út- skýrir Hlynur að svarendur rann- sóknarinnar hafi nær undan- tekningarlaust vitað fullt nafn á öllum þeim karlleikurum sem nefnd- ir voru. „En þegar þeir áttu að nefna nafn uppáhaldsleikkonu sinnar þá ýmist vissu svarendur aðeins for- nafn hennar eða mundu ekki nafnið og reyndu þess í stað að lýsa útliti hennar.“ Spurður hvort hópurinn skilgreini sýningu sína sem pólitískt leikhús svarar Hlynur því játandi. „Við er- um markvisst að skoða áhrif skoð- anakannana í samfélaginu og hvað meðaltölin geta verið blekkjandi. Þannig er stór hætta á því að maður endi á því að gera engum til geðs ef maður reynir að gera öllum til geðs. Þessi rannsókn vekur líka óneitan- lega spurningar um tengsl almenn- ings við leikhúsið og væntingar til þess. Þannig má spyrja sig fyrir hvern leikhúsið sé og til hvers verið sé að setja upp leiksýningar.“ Í tengslum við sýninguna verður haldið sérstakt málþing um rann- sóknina sem verður nánar auglýst síðar auk þess sem niðurstöður rannsóknarinnar verða gefnar út á bók. Allar nánari upplýsingar um uppsetninguna og hópinn má nálg- ast á vefnum 16lovers.com. Hvað vilja Íslendingar að meðaltali sjá? Tilraunastofa Sviðslistahópurinn 16 elskendur leitast í sýningum sínum við að prófa og teygja orðræðu líðandi stundar og bjóða áhorfendum í tilraunastofu þar sem þeirra eigið samfélag, hugsjónir og gildi eru krufin.  16 elskendur frumsýna Sýningu árs- ins í Rúgbrauðsgerðinni annað kvöld Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Myndir úr Myrtuskógi er yfirskrift tónleika sem Listvinafélag Hall- grímskirkju stendur fyrir til heiðurs Hafliða Hallgrímssyni í Hallgríms- kirkju á morgun kl. 17.00. Þar mun kammerkórinn Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar flytja átta kórverk Hafliða, sem spanna tuttugu og fimm ár af höf- undaferli hans, en nýjasta verkið er frá þessu ári. „Fyrir mörgum árum fékk Hörð- ur þá hugmynd að Schola cantorum myndi taka upp á geisladisk það sem ég hef samið fyrir kór. Ég hef í gegnum tíðina gaukað að honum einu og einu verki og þar kom að verkin fylla heilan disk,“ segir Haf- liði, en Schola cantorum vinnur í tengslum við tónleikana að hljóð- ritum á öllum viðfangsefnum tón- leikanna og er stefnt að útgáfu síðar á þessu ári. Músíkin má ekki þvælast fyrir textanum Kórverkin sem hljóma munu á tónleikunum eru fjölbreytt að gerð, en að sögn Hafliða eru vissir þræðir sem tengja verkin saman. „Mörg þeirra eru samin til minningar um samferðafólk mitt. Mér finnst fara vel á því að minnast með verkum mínum þeirra sem hafa skipt mig miklu máli í lífinu. Það leiðir oft til þess að tónlistin er íhugul en ekki endilega grafalvarleg. Annað sem gengur eins og rauður þráður í gegnum verkin er valið á textum. Ég vanda mjög valið á textum, enda er textinn ástæðan fyrir því að verkið verður til. Textinn er eins og beina- byggingin og músíkin eins og hold- ið,“ segir Hafliði og tekur fram að tónlistin megi ekki þvælast fyrir textanum. „Maður verður að heiðra textann með því að skrifa músíkina þannig að textinn heyrist.“ Spurður hvert hann hafi sótt sér innblástur fyrir kórverkin segist Hafliði ekki nota það orð. „Fyrir mér er þetta spurning um að fá hug- mynd sem manni líst sæmilega á og síðan upphefst vinna og aftur vinna,“ segir Hafliði og tekur fram að kór- inn setji honum vissan ramma. „Vegna þess að tónsvið kórsins er ekki eins vítt og ég er vanur þegar ég skrifa hljómsveitarverk. Á móti kemur að kórsöngur getur verið afar fíngerður og næmur. Í hljómburði eins og í Hallgrímskirkju getur fín- gerður, lágvær hljómur komið ein- staklega vel út. Litrófið er mikið undir kórnum sjálfum komið, hvers konar raddir eru í kórnum og hvern- ig kórstjórinn vinnur, en Hörður er afar laginn að draga fram það besta sem þessi hópur hefur upp á að bjóða,“ segir Hafliði og bætir við: „Flutningur verka manns getur ver- ið mjög misjafn, en þegar vel tekst til finnst manni eins og starf manns hafi ekki verið unnið til einskis. Og það er sannarlega tilfinningin núna.“ Schola cantorum er á tónleikum morgundagsins skipaður 16 söngv- urum. Með kórnum koma fram Björn Steinar Sólbergsson org- elleikari, Elísabet Waage hörpuleik- ari, Ásgeir H. Steingrímsson tromp- etleikari og Frank Aarnink slagverksleikari. Lágvær hljómur kórsins nýtur sín Morgunblaðið/Golli Minningar „Tónlistin er íhugul,“ segir Hafliði Hallgrímsson tónskáld.  Schola cantorum flytur átta kórverk Hafliða Hallgrímssonar á morgun kl. 17 LA BOHÈME GIACOMO PUCCINI HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON FÖSTUDAGINN 16. MARS KL. 20 - FRUMSÝNING LAUGARDAGINN 17. MARS KL. 20 - 2. SÝNING LAUGARDAGINN 31. MARS KL. 20 - 3. SÝNING SUNNUDAGINN 1. APRÍL KL. 20 - 4. SÝNING LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 20 - 5. SÝNING FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.