Morgunblaðið - 03.03.2012, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 03.03.2012, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 Eftir langan aðdragandaauglýsinga og umfjöll-unar var loks komið aðþví að sjá kvikmyndina Svartur á leik. Myndin, sem var frumsýnd í vikunni sem leið, er byggð á samnefndri skáldsögu Stef- áns Mána sem kom út árið 2004. Um er að ræða fyrstu kvikmynd leikstjórans Óskars Þórs Axels- sonar í fullri lengd. Myndin segir frá Stebba „psycho“ (Þorvaldur Davíð Kristjánsson), afvelta ungum manni sem leiðist út í harðan heim eiturlyfja og ofbeldis eftir að hafa gengið berserksgangi sökum ölæðis í miðbæ Reykjavíkur. Heimur sem í fyrstu virðist vera vin í eyðimörk óreglumannsins verður brátt að helvíti á jörðu og umvafinn skugga- legum persónum á borð við Bruno (Damon Younger) og Tóta (Jóhann- es Haukur Jóhannesson) sekkur Stebbi æ dýpra í kviksyndi undir- heimanna. Persónusköpun í mynd- inni er ágæt og þá sérstaklega í til- viki aðalpersónunnar, Stebba. Áhugaverður persónuleikinn er margræður og sveiflast á milli þess að líka við gróft lífernið og vilja draga sig í hlé, jafnvel alla leið heim til Ólafsvíkur. Þorvaldur Dav- íð skilar hlutverkinu einstaklega vel frá sér og er mjög sannfærandi í túlkun sinni á þeim öflum sem berj- ast innra með manneskju í slíkum aðstæðum. Það vill oft gerast að frammistaða leikara í glæpamynd- um verði yfirdrifin en svo er ekki í tilviki Þorvaldar og hinn óöruggi Stebbi situr svolítið eftir í huga undirritaðs að áhorfi loknu. Jó- hannes Haukur og Damon Younger eru einnig mjög sannfærandi í hlut- verkum sínum, það sama má segja um Maríu Birtu, Vigni Rafn Val- þórsson og Egil Einarsson. Það er gaman að sjá hvað Jóhannes Hauk- ur getur túlkað ólíkar persónur en sá Haukur sem birtist okkur í Svörtum á leik er ekki beint sá sami og birtist okkur svo eft- irminnilega í hlutverki Guffa í Bjarnfreðarsyni. Öll þau viðurnefni sem troðið var á margar persónur myndarinnar urðu þó svolítið þreytt og hefði mátt sleppa. Út- færslan á kynningu persónanna í byrjun er óvenjuleg og end- urspeglar þann frumleika sem finna má framsetningu myndarinnar. Óskar Thór er greinilega óhræddur við að beita fremur óhefðbundnum aðferðum við kvikmyndagerð sína. Framandleikaáhrifum er óspart beitt og áhorfandinn verður nokkuð meðvitaður um stöðu sína sem áhorfandi. Óskar á hrós skilið fyrir að fara fremur óhefðbundnar leiðir og eru þær margar hverjar mjög skemmtilegar auk þess sem mynd- fléttan skilar sér ágætlega. Á stöku stað hefði þó mátt leyfa óspjallaðri myndinni að njóta sín í stað þess að skeyta saman nokkrum fram- andlegum atriðum á stuttum tíma. Fyrstu persónu sögumannsröddin sem heyra má í myndinni kemur vel út. Ágætur maður sagði eitt sinn að sögumannsrödd væri einungis ódýr aðferð handritshöfundarins til að koma sögunni á framfærir og slíkt ætti einungis heima á sviði bók- mennta en ekki kvikmynda; því er ég ósammála. Vel útfærð sögu- mannsrödd, líkt og þá sem finna má í Svartur á leik, þarf ekki að vera ódýr og getur verið skemmti- leg útfærsla sem á heima í kvik- myndum jafnt og í bókmenntum. Íslensk tónlist nýtur sín vel í mynd- inni og gaman að heyra í böndum á borð við Singapore Sling og Ens- ími. Fyrri hluti myndarinnar gefur það örlítið í skyn að sá undirheimur sem finna má hér á landi sé bara nokkuð skemmtilegur og arðbær. Ég heyrði óvart á tal tveggja þykkbrjósta manna með sterabólur sem við hlið mér stóðu í poppröð- inni í hléinu. „Góð mynd, maður,“ sagði annar þeirra. „Já, maður, þessi Stebbi þyrfti bara að massa sig aðeins upp til að verða jafn nettur og Tóti,“ svaraði hinn í fúl- ustu alvöru. Í síðari hluta myndar kom svo raunsær og vel útfærður viðbjóður undirheimanna í ljós. Ég rak augun í sömu menn að mynd lokinni. Það er óhætt að segja að uppþandir brjóstkassar þeirra hafi lekið niður líkt og sú spilaborg sem Stebbi „psycho“ og félagar hans lifðu og hrærðust í. Spilaborgir íslenskra undirheima Svartir „Heimur sem í fyrstu virðist vera vin í eyðimörk óreglumannsins verður brátt að helvíti á jörðu,“ segir Davíð Már m.a. um Svartur á leik. Smárabíó, Laugarásbíó, Háskólabíó, Borgarbíó, Bíó Paradís Svartur á leik bbbbn Leikstjórn: Óskar Þór Axelsson. Hand- rit: Óskar Þór Axelsson og Stefán Máni. Aðalhlutverk: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger, María Birta, Vignir Rafn Valþórsson og Egill Einarsson. 104 mín. Ísland, 2012. DAVÍÐ MÁR STEFÁNSSON KVIKMYNDIR SÝND MEÐ ÍSLENSKUM TEXTA ”EIN BESTA MYND ÁRSINS – PUNKTUR.” Jake Hamilton, Fox Tv ”TVEIRÞUMLAR UPP”Ebert presents at the movies Fox tv- Denver Peter Hammond, Back Stage Peter Travert - Rolling Stones ”ALGJÖR GLEÐIFRÁ BYRJUN TIL ENDA” ”UNAÐSLEGA GLETTIN– HITTIR BEINT Í MARK” “BRÁÐSKEMMTILEG OG SPRENGHLÆGINLEG – ALGJÖR DEMANTUR” “FRÁBÆR FYRIR ALLA” Ben Lyons, E! FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD Toppmyndin á Íslandi og vinsælasta myndin í heiminum í dag Myndin sem hefur setið síðustu 3 vikur á toppnum í Bretlandi og notið gríðarlega vinsælda í USA. Ein besta draugamynd síðari ára FRÁBÆRAR FRÁ DISNEY empire Time Movieline blurb.com Frá höfundi Death at a Funeral.Frábær gamanmynd með sótsvörtum húmor FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VANESSA HUDGENS, MICHAEL CAINE OG DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON TRYGGJA ÓSTÖÐVANDI BÍÓSKEMMTUN MÖGNUÐ ÞRÍVÍDD Toppmyndin á Íslandi og vinsælasta myndin í heiminum í dag ÓSKARS- VERÐLAUN5 ÁLFABAKKA 10 10 10 7 7 7 12 12 12 12 12 VIP EGILSHÖLL 12 16 16 16 16 16 L L L L L L L L 16 16 16 L L L L AKUREYRI 7 SELFOSS 10 7 12 16 16 L L L KRINGLUNNI KEFLAVÍK 12 16 16 SVARTUR Á LEIK kl. 8 2D THE WOMAN IN BLACK kl. 10:20 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT Time Movieline Myndin sem hefur setið síðustu 3 vikur á toppnum í Bretlandi og notið gríðarlega vinsælda í USA. Ein besta draugamynd síðari ára THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:20 2D FRÍÐA OG DÝRIÐ ísl tal í 3D kl. 2 3D HUGO með ísl texta í 2D kl. 3:50 2D JOURNEY 2: THE MYSTERIOUS ISLAND kl. 6 3D PRÚÐULEIKARARNIR enskt tal ísl texti kl. 2 2D FJÖRFISKARNIR kl. 3:40 2D WAR HORSE kl. 5:30 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:20 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:20 2D BEAUTY & THE BEAST (FRÍÐA OG DÝRIÐ) ísl. Tali kl. 2 - 4 - 6 2D PUSS IN BOOTS M/ ísl. Tali kl. 2 2D THE HELP kl. 5 2D CONTRABAND kl. 8 2D MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 10:20 2D PROJECT X FORSÝNING kl. 8 2D THE WOMAN IN BLACK kl. 8 - 10:10 2D JOURNEY 2 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 3D STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl tali kl. 1 2D HUGO kl. 3:10 - 5:20 2D HAYWIRE kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl tali kl. 1:20 - 3:20 3D FJÖRFISKARNIR m/ísl tali kl. 1:20 - 3:30 2D PRÚÐULEIKARARNIR m/ens tali kl. 5:40 2D A FEW BEST MEN kl. 10:10 2D THE WOMAN IN BLACK kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D WOMAN IN BLACK VIP 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D PROJECT X Forsýning kl. 10:10 2D JOURNEY 2 3D kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 3D JOURNEY 2 kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 2D A FEW BEST MEN kl. 8 - 10:10 2D BEAUTY & THE BEAST - 3D M/ ísl. Tali kl. 2 - 4 - 6 3D HUGO Með texta kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:30 2D CONTRABAND kl. 8 - 10:20 2D STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN M/ ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 2D THE WOMAN IN BLACK kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D JOURNEY 2 3D kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 3D EXTREMELY LOUD AND INCREDIBLY CLOSE kl. 8 2D A FEW BEST MEN kl. 10:10 2D SHAME kl. 10:40 2D BEAUTY & THE BEAST - 3D M/ ísl. Tali kl. 1:30 - 3:40 3D THE HELP kl. 5 2D PRÚÐULEIKARARNIR kl. 2 2D FORSÝNINGAR UM HELGINA!! FRÁBÆR MYND FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR HANGOVER

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.