Morgunblaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði
- Ártúnshöfði
Til leigu 76 fm verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði á götuhæð við um-
ferðargötu á Ártúnshöfða. Stórir
gluggar, snyrtilegt húsnæði, flísalagt
gólf. Upplýsingar í síma 892 2030.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Rafvirkjun
Raflagnir, dyrasímar - S. 6630746
Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti.
Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði,
án endurgjalds.
Straumblik ehf.
löggilltur rafverktaki
straumblik@gmail.com
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Málarar
Alhliða málningarþjónusta
Aðeins löggiltir málarar, hagstætt
verð í boði. Upplýsingar í síma:
696 2748, 692 2290.
Ýmislegt
580 7820
BOÐSKORT
tækifæri
Við öll
580 7820
Öflugir fjarstýrðir rafmagns- og
bensínbílar í úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
TILBOÐ TILBOÐ
Fallegir dömuskór úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stakar stærðir.
Tilboðsverð: 3.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Úrval af vönduðum dömuskóm úr
leðri og með skinnfóðri.
Teg. 2902 Stærðir: 37-42. Verð:
14.685.
Teg. 1647 Stærðir: 37-41. Verð:
15.950.
Teg. 37718 Stærðir: 36-40. Verð:
15.800.
Teg. 37719 Stærðir: 36-40. Verð:
15.800.
Teg. 1830 Stærðir: 36-41 Verð:
15.885.
Teg. 1734 Stærðir: 36-41. Verð:
15.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Til sölu
3 Patrolar árg. ‘85
Kia Sportage jeppi ‘98 til niðurrifs.
2 traktorar árg. ‘69.
4ra pósta bílalyfta.
Upplýsingar í síma 894 0431.
Byssur
Skotveiðivörur í úrvali
Hreinsisett, töskur, sjónaukar og m.fl.
Skotfæri í riffla á góðum verðum.
Netlagerinn slf.
Dugguvogur 17-19 2. hæð
Vefsíða tactical.is
Einfalt að versla. S. 517-8878
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
✝ Björn Jónssonfæddist í Her-
skólakampi 6 í
Reykjavík 8. mars
1947. Hann and-
aðist á heimili sínu,
Hátúni 10a í
Reykjavík 23. febr-
úar 2012.
Björn var einka-
barn hjónanna Jóns
Björnssonar frá
Holti á Síðu, rithöf-
undar og síðar
bókavarðar í Reykjavík, f. 12.
mars 1907, d. 15. febrúar 1994,
og (Bjarnfríðar) Guðbjargar
Sigurðardóttur, f. 9. júlí 1908, d.
5. janúar 1967, húsmóður og fót-
snyrtisérfræðings. Stjúpmóðir
Björns var: Lára Margrét Sig-
fúsdóttir (Gréta Sigfúsdóttir)
rithöfundur, f. 20. febrúar 1910,
d. 26. nóvember 1991.
Björn kvæntist 27. desember
1969 Elsu Hallbjörgu Árnadótt-
ur kennara og síðar skólastjóra,
f. 13. ágúst 1948, d. 11. sept-
ember 2003. Börn þeirra eru: 1)
Guðbjörg Margrét, f. 11. júlí
1973, tölvufræðingur í Mos-
fellsbæ, gift (Ágústi) Andra Ei-
ríkssyni, börn þeirra eru: Alfreð
dreifingu á gosdrykkjum á
svæðinu frá Hellu á Rang-
árvöllum til Ólafsvíkur á Snæ-
fellsnesi ásamt félaga sínum
Guðmundi Agnari Guðmunds-
syni. Einhvern tímann á starfs-
ævinni ók hann strætisvagni
milli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur frá hausti til vors, en hóp-
ferðabifreiðum á sumrin. Björn
lauk myndmenntakennaraprófi
frá Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1985. Eftir það sinnti
hann kennslu á landsbyggðinni í
þeim skólum sem kona hans
veitti forstöðu, jafnan sem
handavinnu- og teiknikennari.
Þau kenndu í Gunnarshólma í
Austur-Landeyjum 1985-1989
og bjuggu þá á Brúnalundi í
sömu sveit, á Hólum í Hjaltadal
1992-1996 og bjuggu þá lengst
af á Kálfsstöðum í sömu sveit, í
Brúarási í Jökulsárhlíð 1996-
2000 og á Hrollaugsstöðum í
Suðursveit 2000-2001, en síðan
aftur í Gunnarshólma. Eftir lát
konu sinnar bjó Björn nokkur ár
á Sauðárkróki og hafði þá með
höndum ýmis sértæk verkefni
fyrir Héraðsskjalasafn Skag-
firðinga. Allra síðast átti hann
heima í Reykjavík og var þá
sestur í helgan stein.
Útför Björns fór fram í kyrr-
þey frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 9. mars 2012.
Sindri, f. 12. júlí
1994, Eyrún Embla,
f. 21. ágúst 2001,
Anton Bragi, f. 11.
september 2003, og
Eiríkur Áki, f. 26.
ágúst 2009. 2) Jón,
f. 3. júlí 1979, vél-
smiður í Dan-
mörku, sambýlis-
kona Nadia
Nielsen.
Björn ólst upp
hjá foreldrum sín-
um í Reykjavík, og voru lista-
menn og rithöfundar tíðir gestir
á heimili þeirra. Á unglings-
árum starfaði hann sem bréf-
beri hjá Pósti og síma samtíða
Magnúsi Þór Jónssyni (Megasi),
vann eitt sumar hjá Heildversl-
un Garðars Gíslasonar og annað
sumar hjá Þorbirni Jóhann-
essyni í Kjötbúðinni Borg. Hann
var kaupamaður hjá tengdafor-
eldrum sínum í Þverárdal á Lax-
árdal fremri hluta úr ári, en
starfaði síðan á smurstöð Bif-
reiðaverkstæðis Kaupfélags
Skagfirðinga um skeið. Á ára-
bilinu 1970-1985 var hann sölu-
maður og bifreiðarstjóri hjá Öl-
gerðinni Sanitas, og annaðist þá
Björn Jónsson var meðalmaður
að hæð, þreklegur og samanrek-
inn, augu gráblá að lit, snaggara-
legur í framgöngu, afburðahraust-
menni og liðtækur verkmaður,
lipur teiknari og laginn til smíða.
Hann var stálgreindur og víðles-
inn, ritfær vel og bjó yfir miklum
frásagnarhæfileikum. Við fyrstu
kynni gat hann virst nokkuð hrjúf-
ur, en í eðli sínu var hann hlýlegur,
greiðvikinn og hollráður. Hann
hafði góða kímnigáfu og gat verið
launglettinn.
Björn átti því láni að fagna að
alast upp á menningarheimili, þar
sem ýmsir andans menn, sem
voru í vinskap við foreldra hans,
gerðu sig heimakomna. Má þar
nefna Elías Mar skáld, Guðmund
Gíslason Hagalín rithöfund,
Gunnar Dal heimspeking og syni
Sigurðar Sigurðssonar sýslu-
manns á Sauðárkróki, þá Arnór
sýsluskrifara og listmálarana
Hrólf og Sigurð. Hafa þau kynni
vitaskuld haft mótandi áhrif á
hann.
Kunningsskapur okkar Björns
hófst norður á Sauðárkróki eftir
að hann var orðinn ekkjumaður.
Hann hafði þá ráðið sig til starfa í
Héraðsskjalasafni Skagfirðinga,
þar sem ég hef vinnuaðstöðu, og
sinnti meðal annars myndgrein-
ingu, auk þess sem hann sat
stundum yfir myndlistarsýning-
um í Safnahúsi Skagfirðinga. Við
urðum mestu mátar og hef ég ekki
eignast betri vin á Sauðárkróki á
seinni árum.
Örlygur Hálfdanarson bókaút-
gefandi gaf myndasafn Páls Jóns-
sonar frá Örnólfsdal til héraðs-
skjalasafnsins árið 2005, og kom í
hlut Björns, að greina á hvaða
stöðum myndirnar voru teknar og
reyna að tímasetja þær með
nokkurri nákvæmni. Við það
verkefni sýndi Björn hreint ótrú-
lega hugkvæmni og útsjónar-
semi, og nýttist honum vel yfir-
gripsmikil þekking á bifreiða-,
skipa- og flugvélategundum, þeg-
ar kom að því að tímasetja mynd-
irnar. Í íslenskri landafræði og
sögu, einkum seinni alda, munu
fáir hafa staðið honum á sporði.
Tengsl okkar Björns héldust
eftir að hann fluttist suður og á
fimmtugsafmæli mínu árið 2008
gerði hann mér þann greiða að
aka mér austur fyrir fjall í heim-
sókn til Ragnars Böðvarssonar
fræðimanns á Selfossi, ásamt
þremur vinum mínum úr Hafn-
arfirði, Jóni Grímkeli Pálssyni,
Kristbergi Óðni Péturssyni og
Þresti Vilbergssyni. Þeir Krist-
bergur þekktust reyndar frá
fornu farni, því þeir voru samtíða
í Myndlista- og handíðaskólan-
um.
Síðustu æviárin var Björn
mjög farinn að heilsu. Of hár
blóðþrýstingur með tilheyrandi
fylgikvillum bagaði hann. Og oft
var hann bugaður af þunglyndi,
sem hann náði þó stundum að rífa
sig upp úr. Ég fór aldrei svo til
Reykjavíkur, að ég bankaði ekki
upp á hjá honum í Hátúninu, og
ætti með honum ánægjulega
samverustund. Stundum keyrði
hann mig um bæinn og fræddi
mig um merka staði og sögu
þeirra.
Ég kveð Björn með virðingu
og þökk fyrir margvíslega góðvild
og greiðvikni sem hann sýndi mér
og votta aðstandendum mína
dýpstu samúð.
Guðmundur Sigurður
Jóhannsson.
Björn Jónsson
✝ KolbrúnHarpa Matt-
hildardóttir fædd-
ist á Blönduósi 9.
nóvember 1956.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 6.
mars 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurbjörn
Sigurðsson, f. 23.
ágúst 1912 á
Brúará, d. 20.
febrúar 2002, og Margrét
Matthildur Árnadóttir, f. 15.
september 1929, á Sæbóli, Að-
alvík. Systkini Kolbrúnar eru
Signý Magnúsdóttir, f. 20. jan-
úar 1948, Ingi Einar Sig-
urbjörnsson, f. 16. apríl 1950,
Erna Hallfríður Sigurbjörns-
dóttir, f. 22. maí 1951, Baldur
Bragi Sigurbjörnsson, f. 30.
október 1952, d. 5 júlí 1971,
Sigurður Agnar Sigurbjörns-
son, f. 4. apríl 1954, Dóra Sig-
urbjörnsdóttir, f. 23. nóvember
1962, og Erla Sigurbjörns-
dóttir, f. 15. apríl 1965.
Kolbrún giftist
Valgarði Júlíus-
syni, f. 22. október
1959, þau skildu.
Börn Kolbrúnar
eru: 1) Halldóra
Margrét Gylfadótt-
ir Hollinshead, f.
23 apríl 1976, börn
hennar eru Saga
Kolbrún Holl-
inshead, f. 6. októ-
ber 1998, og Krist-
ine Danielle Hollinshead, f. 16.
september 2003. 2) Emilía Guð-
rún Valgarðsdóttir, f. 23. októ-
ber 1989. 3) Baldur Ingi Val-
garðsson, f. 7. janúar 1991.
Kolbrún ólst upp á Blöndu-
ósi, flutti síðan til Vest-
mannaeyja þar sem hún vann í
fiskvinnslu í nokkur ár, þaðan
flutti hún til Reykjavíkur en
síðustu árin bjó hún á Akra-
nesi.
Útför Kolbrúnar fer fram
frá Akraneskirkju í dag, 14.
mars 2012, og hefst athöfnin
kl. 14.
Elsku systir.
Þó að þú hafir verið veik svo
lengi hélt ég að við hefðum lengri
tíma. En ég er samt þakklát fyrir
að þú finnur ekki lengur til og ég
er viss um að pabbi, Baldur,
Bjössi og Sibbi tóku vel á móti
þér. Það eru svo ótal margar góð-
ar minningar eftir, við töluðum
oft svo lengi saman og skemmt-
um okkur við að rifja upp
skemmtilegar stundir, ég á eftir
að sakna þín mikið.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Halldóra, Emilía og Baldur
Ingi, við vottum ykkur samúð
okkar.
Kveðja
Erla Sigurbjörnsdóttir,
Stefán Sindri, Ragnar Bragi
og Matthías Smári.
Kolbrún Harpa
Matthildardóttir
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er
á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar