Morgunblaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 17
DÓMSORÐ
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra gengur í salinn með
mottu á efri vörinni, segir til nafns
fyrir Landsdómi, með lögheimili á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
Ekki hefur farið framhjá þjóðinni
að hann hefur beitt sér fyrir því síð-
ustu misseri að draga Geir H.
Haarde til saka, fyrrverandi for-
sætisráðherra og formann stjórn-
málaflokks á hinum kanti pólitíska
litrófsins.
„Stungið ofan í skúffu“
Og óhætt er að segja að Stein-
grímur hafi ekki sparað stóru orðin.
Hann lýsti varnaðarorðum sínum
um að þjóðin stefndi í „þrot“, þó að
reyndar segði hann það „aldrei og
ekki fyrr en í október, sem ég hafði
trú á að allt íslenska bankakerfið
myndi hrynja, en ég óttaðist að einn
eða tveir bankar stæðu illa eða gætu
farið illa …“
Hann sagðist hafa orðið var
óánægju sænska seðlabankastjórans
Stefan Ingves vorið 2009 með að ís-
lensk stjórnvöld hefðu ekki fylgt
nægilega eftir gjaldmiðlaskipta-
samningi Seðlabanka Íslands og
norrænna seðlabanka sem gerður
var í mars árið 2008.
Ekki þurfti að hvetja Steingrím til
ræðuhalda, en tvisvar stoppaði
Markús Sigurbjörnsson, forseti
Landsdóms, hann af, er hann var
kominn langt út fyrir efnið. Og það
var skrautlegt er Andri Árnason,
verjandi Geirs, spurði út í orð Stein-
gríms um „samning“ sem gerður
hefði verið samhliða gjaldmiðla-
skiptasamningnum og „stungið ofan
í skúffu“, eins og Steingrímur lýsti
því. Þegar Andri spurði Steingrím
hvar orðið samningur hefði komið
fyrir á skjalinu svaraði Steingrímur:
„Formið á þessu er samning-
ur … samkomulag … yfirlýsing.“
Þar með voru þeir orðnir sammála
um skilgreininguna, en eins og kom-
ið hefur fram í réttarhöldunum var
slík yfirlýsing um aðgerðir stjórn-
valda undirrituð af Geir, Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur utanríkis-
ráðherra, Árna Mathiesen fjármála-
ráðherra og Ingimundi Friðrikssyni
seðlabankastjóra. Samtalið hélt
áfram og Andri spurði hvar Stein-
grímur hefði heyrt að yfirlýsingunni
hefði verið „stungið ofan í skúffu“.
„Var talað um efndir?“
„Það eru mín orð,“ svaraði Stein-
grímur. „Það endurspeglar þá til-
finningu sem ég fékk. Líklega á
fundi mínum með Stefan Ingves.“
Andri spurði þá hvort ítarleg svör
Seðlabanka Íslands 8. júlí og 16.
september árið 2008 hefðu ekki þótt
fullnægjandi.
„Annaðhvort það eða þeir voru
ósáttir við að ekki væru meiri efnd-
ir,“ svaraði Steingrímur.
„Var talað um efndir?“ spurði
Andri og lét færa Steingrími yfirlýs-
ingu stjórnvalda og spurði hvað af
atriðunum hefði ekki verið efnt.
Steingrímur las stuttlega og svaraði:
„Eins og ég segi, það var ekki far-
ið út í þetta þannig. Ekki farið út í
svör. Þetta bar almennt á góma og
það var lýst óánægju.“
Skömmu áður hafði Árni Mathie-
sen sagt fyrir Landsdómi að eitt at-
riði yfirlýsingarinnar hefði snúið að
starfsemi Íbúðalánasjóðs og þess
vegna heyrt undir Jóhönnu Sigurð-
ardóttur sem þá var félagsmálaráð-
herra. „Það var kannski það atriði af
þeim sem þarna voru sem ekki gekk
eftir,“ sagði Árni.
Steingrímur lét vera að minnast á
það.
Rétt er að rifja upp að í yfirlýs-
ingu forsætisráðuneytisins sama
dag og tilkynnt var um gjaldmiðla-
skiptasamninginn kom fram, eins og
lesa mátti um á Mbl.is:
„Til þess að bæta virkni peninga-
málastefnunnar mun ríkisstjórnin
meðal annars undirbúa og birta trú-
verðuga áætlun um umbætur og
breytingar á skipulagi Íbúðalána-
sjóðs.“
Það var Markús sem átti síðasta
orðið í gær eftir vitnaleiðslur í sjö
daga fyrir Landsdómi:
„Málið verður þá tekið til munn-
legs málflutnings 15. mars kl. 13.“
Steingrímur gat
ekki um Jóhönnu
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
SJÓNARHÓLL
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
Hágæðagler á góðu verði
Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturj@mbl.is
Fram kom í máli Steingríms J. Sigfús-
sonar, efnahags- og viðskiptaráðherra,
fyrir Landsdómi í gær að hann hefði
ekki átt von á því frekar en aðrir að all-
ir þrír bankarnir hryndu í október
2008. Hann hefði þó haft áhyggjur af
því að tveir af þremur stóru bankanna
kynnu í versta falli að standa illa. Sak-
sóknari Alþingis, Sigríður J. Friðjóns-
dóttir, spurði Steingrím út í upplifun
hans af aðdraganda bankahrunsins og
lagði hann áherslu á að hann hefði
lengi haft áhyggjur af stöðu banka-
kerfisins og efnahagskerfis Íslands
sem slíks árin fyrir hrun. Enda hefðu
vísbendingar komið úr ýmsum áttum
um að hætta gæti verið á ferðum sem
taka hefði átt alvarlega.
Steingrímur sagði þær málsbætur
þó vissulega vera fyrir hendi að ís-
lensku bankarnir hefðu fengið heil-
brigðisvottorð bæði erlendis frá og
innanlands.
Sagði ekki staðið við skilyrði
Steingrímur lagði sérstaka áherslu
á gjaldmiðlaskiptasamninga sem gerð-
ir hefðu verið við hina norrænu seðla-
bankana í aðdraganda bankahrunsins.
Sagðist hann ekki hafa frétt af þeim
samningum fyrr en um vorið 2009
þegar hann hefði setið í nokkra mán-
uði í embætti fjármálaráðherra. Upp-
lýsingarnar hefði hann fengið frá
seðlabankastjóra Svíþjóðar þegar
hann hefði verið staddur erlendis að
reyna að liðka fyrir lánum til Íslands.
Svo virtist sem samningnum hefði ver-
ið stungið ofan í skúffu.
Steingrímur sagðist hafa oft heyrt
kvartað yfir því af norrænum stjórn-
völdum að Íslendingar hefðu ekki
sinnt þeim skilyrðum sem sett hefðu
verið vegna samninganna og nefndi
það ítrekað til sögunnar. Andri Árna-
son, verjandi Geirs H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, spurði
Steingrím hvaða skilyrði hefðu ekki
verið uppfyllt og lét afhenda honum
skjal þar sem þau voru tíunduð. Eftir
að hafa litið á skjalið sagði Steingrímur
þessa umræðu meira hafa verið á al-
mennum nótum og ekki nein einstök
atriði nefnd í því sambandi sem íslensk
stjórnvöld hefðu ekki staðið við.
Andri spurði Steingrím ennfremur
að því hvers vegna hann segði að
samningurinn hefði verið settur ofan í
skúffu og leiðrétti það síðan að ekki
hefði verið um samning að ræða held-
ur einhliða yfirlýsingu. Steingrímur
sagði að þar hefði hann verið að tala út
frá eigin tilfinningu enda hefði skjalið
ekki fundist í fjármálaráðuneytinu
þegar hann hefði óskað eftir því og
hann þurft að fá það sent úr Seðla-
bankanum.
Hafði lengi áhyggjur
af bankakerfinu
Vísbendingar komið úr ýmsum áttum um hættuna
Morgunblaðið/Kristinn
Landsdómur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra yfirgefur Þjóð-
menningarhúsið í gær eftir að hafa gefið skýrslu fyrir Landsdómi.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturj@mbl.is
Fram kom í máli Geirs H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, í
lokaskýrslugjöf fyrir Landsdómi í
gær að það hefði verið gert af hálfu
stjórnvalda í aðdraganda banka-
hrunsins í október 2008 sem hægt
hefði verið að gera á hverjum tíma.
Þannig hefði verið reynt að stækka
gjaldeyrisvarasjóðinn, þrýsta á
bankana um að minnka umfang sitt,
gerast aðilar að evrópska sam-
komulaginu um fjármálastöð-
ugleika o.fl.
Geir sagðist ennfremur hafa rætt
við alla þá í aðdraganda banka-
hrunsins sem hann hefði talið að
gætu gefið upplýsingar um stöð-
una. Þá sagðist hann ekki hafa haft
ástæðu til að ætla annað en að al-
mennt væri verið að gera það sem
hægt væri til þess að takast á við
það ástand sem hefði skapast.
Pólitísks umboðs aflað
Þá lagði Geir áherslu á að
helgina fyrir bankahrunið, svokall-
aða Glitnis-helgi þegar tekin var
ákvörðun um að ríkið tæki yfir 75%
hlutafjár í Glitni, hefðu for-
ystumenn ríkisstjórnarflokkanna
aflað sér þess pólitíska umboðs sem
þeir hefðu þurft.
Þannig hefði verið hringt í þá
ráðherra sem ekki voru á landinu
og hefði tekist að ná í þá flesta
þrátt fyrir að þeir hefðu þá sumir
verið staddir víðsvegar um heiminn
í ýmsum erindagjörðum. Aðstoð-
armaður Björgvins G. Sigurðssonar
viðskiptaráðherra hefði verið við-
staddur og hefði hann litið á hann
sem fulltrúa ráðherrans.
Stjórnvöld gerðu
það sem hægt var
Morgunblaðið/Kristinn
Landsdómur Geir H. Haarde fær
sér sæti í Landsdómi í gær.
Lagði sig fram við að afla upplýsinga