Morgunblaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar 569 1100
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Skipulagsmál í Rangárþingi eystra
og Rangárþingi ytra
Lýsing á skipulagsáformum:
Í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr.
123/2010, er lýsing á fyrirhuguðu deiliskipulagi til
kynningar:
306-2012 Ytri - Skógar, Rangárþingi eystra, lýsing
deiliskipulags fyrir byggingar, aðkomu og samgöngur
að Skógum.
Lýsing fyrir skipulagssvæðið nær til alls mannvirkjasvæðis
á Ytri-Skógum norðan þjóðvegar nr. 1. Svæðið afmarkast
af ánni Kvernu í austri. Brekkubrún er norðurjaðar skipu-
lagssvæðisins fram að fossbrún. Vesturmörk svæðisins
eru mörk friðlýsingar á Skógaá. Suðurjaðar er í þjóðvegi
1, frá brú á Skógaá. Þaðan í túnjaðri að Kvernu.
Stærð skipulagssvæðisins er um 200 ha að flatarmáli. Í
gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra 2003-2015, er
svæðið skilgreint sem þéttbýliskjarni með þjónustu og
stofnanalóðum.
--------------------------------------------------------------
Auglýsing skipulagstillögu:
Skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með
auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskip-
ulagstillögur:
300-2012 Fellsmúli Rangárþingi ytra, deiliskipulag
fiskeldisstöðvar.
Deiliskipulagið felur í sér að núverandi byggingar og
starfsemi er skilgreind nánar.
Skilgreindur er byggingarreitur fyrir fiskeldisker auk reits
fyrir gróðurhús.
Þá er gert ráð fyrir stækkun á núverandi iðnaðarhúsnæði.
301-2012 Skrúður, Rangárþingi ytra, deiliskipulag
íbúðarhúss, gesthúss og skemmu.
Deiliskipulagið tekur til byggingarreits fyrir íbúðarhús,
gestahús og skemmu. Deiliskipulagið er í samræmi við
Aðalskipulag Rangárþings ytra 2010-2022, með síðari
breytingum.
302-2012 Svínhagi, Rangárþingi ytra, spilda SH-5
deiliskipulag frístundahúsa og gestahúsa.
Deiliskipulagið nær til um 3 ha eignarlóðar úr landi
Svínhaga á Rangárvöllum og tekur til byggingarreits
fyrir tvö frístundahús og tvö gestahús.
307-2012 Torfastaðir 4, lóð 1, Rangárþingi eystra,
deiliskipulag. frístundahúsalóðar.
Deiliskipulagið tekur til 1,8ha lóðar þar sem er stefnt
að því að byggja auk núverandi sumarhúss, gestahús,
gróðurhús og geymsluhús.
308-2012 Baldvinsskáli, Rangárþingi eystra
deiliskipulag fjallaskálasvæðis.
Deiliskipulagið nær til um 1-1,5ha svæðisis (ISN
478106,345237 eða N63 36.658 W1926.458) í
Landnorðurstungum, sem eru innst í Drangshlíðarheiði,
sunnan undir Fimmvörðuhálsi á milli Mýrdalsjökuls og
Eyjafjallajökuls. Megintilgangur deiliskipulagsins er að
marka lóð utan um skálann og skilgreina næsta nágrenni,
auk byggingarmagns. Heimilt mun verða að byggja nýjan
skála í stað þess gamla, auk geymslu, skálavarðarhúss
og 2 sérstæðra salernishúsa.
Tillögurnar liggja frammi hjá skipulagsfulltrúa og á
heimasíðu Rangárþings eystra og Rangárþings ytra.
Ábendingar vegna lýsingar fyrir deiliskipulag á
Skógum, má koma til skipulagsfulltrúa fyrir 27. mars
n.k.
Deiliskipulagstillaga fyrir Skógasvæðið verður auglýst
síðar og verður almenningi gefinn kostur á að gera
efnislegar athugasemdir við tillöguna.
Hægt er að koma athugasemdum vegna
auglýsingar til skipulagsfulltrúa frá 14. mars til
kl. 16.00 þriðjudaginn 24. apríl 2012.
Netföng hjá skipulags- og byggingarfulltrúa:
runar@hvolsvollur.is og runar@rang.is
Skoða gögn:
Rangárþing eystra – www.hvolsvollur.is/, flipann
„skipulagsmál“ og þar inni á „skipulagsauglýsingar“
Rangárþing ytra – www.rangarthingytra.is/, flipann skipu-
lags- og byggingarmál, þá flipann „auglýsingar“
f.h. Rangárþing eystra og Rangárþings ytra
Rúnar Guðmundsson
skipulags- og byggingarfulltrúi
Tilkynningar
Auglýsing um
skipulagslýsingu
vegna deiliskipulags Litla-Hrauns,
Borgarbyggð
Gerð hefur verið svokölluð lýsing vegna
fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir hluta
jarðarinnar Litla-Hrauns í Borgarbyggð.
Á fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar
Borgarbyggðar þann 6. febrúar 2012 og á
fundi sveitarstjórnar þann 16. febrúar 2012
var skipulagslýsingin samþykkt sbr. 40 gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagslýsingin er nú til kynningar í tvær
vikur í samræmi við 3. mgr. 40 gr. skipulags-
laga.
Tilefni deiliskipulagsgerðar eru áform um
uppbyggingu á jörðinni Litla-Hrauni sem er
gamalt lögbýli en verið hefur í eyði. Gert er
ráð fyrir að endurnýja gamla húsakostinn á
Litla-Hrauni og afmarka að auki tvær lóðir
fyrir íbúðarhús, aðra við gamla býlið en hina
nokkuð sunnar.
Engin formleg vegtenging er að býlinu og
því er gert ráð fyrir vegi yfir Eldborgarhraun
og að býlinu, auk vegar sem mun tengja
saman nýju íbúðarhúsalóðirnar. Aðkoma að
fyrirhugaðri vegtengingu verður frá þjóðvegi
54 og um bæjarhlaðið á Snorrastöðum, sem
er næsta jörð austan við Litla-Hraun.
Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010–2022 er
jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði auk
þess að hluta til sem hverfisverndarsvæði
vegna Eldborgarhrauns en stór hluti eld-
hraunsins er innan marka jarðarinnar Litla-
Hauns. Hraunið fellur undir flokkinn
„Hverfisvernd, nútímahraun“, skv. aðal-
skipulaginu og verða byggingarreitir lóða
ekki staðsettir innan þess svæðis í fyrirhug-
uðu deiliskipulagi. Skv. aðalskipulagi Borgar-
byggðar 2010–2022 er heimilt að byggja allt
að 4 íbúðarhús á lögbýlum sem eru stærri en
100 ha, en stærð jarðarinnar Litla-Hrauns er
833 ha skv. Fasteignaskrá. Ekkert deiliskipu-
lag er fyrir á þessu svæði.
Skipulagslýsingin er til sýnis á heimasíðu
Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is og í
Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14,
Borgarnesi, frá 14.–28. mars 2012 á skrif-
stofutíma.
Athugasemdum skal skila í Ráðhúsi Borgar-
byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eigi
síðar en 28. mars 2012 og skulu þær vera
skriflegar.
Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður
fjallað um deiliskipulagið og það kynnt
samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.
Borgarbyggð í mars 2012,
Jökull Helgason
skipulagsfulltrúi.
Félagslíf
LILJA 6012031419 I Heims.
GLITNIR 6012031419 I
I.O.O.F. 9 19203148 Ky
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20:00
Verið þolinmóð
Ræðumaður: Skúli Svavarsson.
Annað efni: Heimastarf SÍK.
Allir hjartanlega velkomnir.
Minnum á Eþíópíukvöldið
laugardaginn 17. marz nk.
Miðar fást á Basarnum og á
skrifstofunni.
Hótel til leigu
Rekstur 50 herbergja hótels á
Suðurlandi er til leigu frá og með
árinu 2013.
Upplýsingasími 893 4975.
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir alla hópa.
Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Til sölu Skattframtöl
Skattframtal 2012
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla -
hagstætt verð.
Uppl. í síma 517-3977.
www.fob.is. netf. info@fob.is.
Þjónusta
Sandblásturfilmur
í öllum stærðum og gerðum fyrir
heimili og fyrirtæki sendið fyrir-
spurn á audmerkt@audmerkt.is
eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Malbikun og malbiks-
viðgerðir
S 551 4000 & 690 8000
www.verktak.is
BílaþjónustaÖkukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Auris '11.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmis smærri
verkefni
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Stigahúsateppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. S.533 5800.
www.strond.is.
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Gisting
Einingahús
AKURShús – við allra hæfi –
Íslensk hönnun og framleiðsla
Framleiðum einbýlishús,
frístundahús og gestahús.
Einingahús gefa marga
möguleika og er einnig hægt
að fá þau ósamansett.
Kannaðu málið á
www.akur.is
Trésmiðjan Akur ehf
Smiðjuvöllum 9 | 300 Akranes
Sími 430 6600 | akur@akur.is
stofnað 1959
•
•
•
•
Smáauglýsingar 569 1100