Morgunblaðið - 08.05.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
F
rískur hópur stúlkna í
5. flokki handbolta hjá
Fylki gerði sér lítið
fyrir og hlupu með
bolta frá Þingvöllum
að Fylkishöll, Nesjavallaleið, nú í
byrjun mánaðar. En með þessu
söfnuðu stúlkurnar sér í sjóð fyrir
Partille Cup-mótið í Svíþjóð í sum-
ar. Voru þær búnar að safna áheit-
um í Árbænum áður en haldið var
af stað og fóru nánast í hvert ein-
asta hús í hverfinu.
Tvær og tvær saman
Hugmyndin að slíkri áheita-
söfnun kviknaði í foreldrafélagi
flokksins og tóku stúlkurnar strax
vel í hugmyndina.
„Þær voru mjög jákvæðar og
það var mikil stemning í hópnum á
leiðinni. Þessar stelpur eru í góðu
formi og víluðu því ekki fyrir sér
vegalengdina. En margar eru líka
í annarri íþrótt eða æfa líka með
fjórða flokki,“ segir Ása Jóhanns-
dóttir handboltamamma.
Úr flokknum fara í ár 21
stelpa á mótið. Þær eru fæddar ár-
in 1998 og 1999 og þær hlupu alls
30 km, einn kílómetra í einu tvær
og tvær saman. En til að gæta
fyllsta öryggis fylgdu foreldrar
þeim eftir á bíl og keyrðu bæði á
undan þeim og eftir. Lítillega
þurfti að stytta leiðina þar sem
mikill snjór í Grafningnum var til
trafala og í raun aðeins önnur ak-
reinin fær en fyrir utan það segir
Ása að
stelpunum hafi gengið vel.
Langflestar hlupu síðan síðustu
4-5 km saman og síðasta spölinn,
1½ km hljóp allur hópurinn sam-
an.
Stærsta handboltamótið
„Við vildum vekja athygli með
þessu og virkilega að afreka eitt-
hvað,“ segir Ása en tvö lið eru
skráð á mótið frá Fylki. Er þar
keppt í hreinum árgöngum, ólíkt
fótboltanum þar sem hver flokkur
er tveir árgangar, en sjálfsagt er
að stúlkurnar keppi upp fyrir sig
enda leika nokkrar þeirri með
fjórða flokki eins og áður sagði.
Partille er stærsta hand-
boltamót í heimi og er haldið í
Gautaborg dagana 2. til 7. júlí.
Mæta um 50 þjóðir á mótið og eru
um 20.000 þátttakendur skráðir í
ár í yfir 1.000 liðum. Mótið er nú
haldið í 43. sinn og dregur nafn
sitt af borginni Partille, rétt utan
Gautaborgar, þar sem mótið var
Handboltastelpur
hlupu Nesjavallaleið
Árlega heldur fjöldi íslenskra ungmenna á Partille Cup-handboltamótið í Svíþjóð.
Meðal Íslendinganna í ár verður hópur stúlkna í 5. flokki hjá Fylki en til að safna
áheitum hlupu þær með bolta frá Þingvöllum að Fylkishöll. Leiðin er alls 30 km
og skiptust stelpurnar á að fara einn km í einu tvær og tvær saman.
Stoltar Hópurinn sem fer til Svíþjóðar á stærsta handboltamót í heimi.
Í Grafningnum Eyrún Ósk og Alex-
andra sprettu úr spori.
Í bernsku lærðum við flest að synda
bringusund. Með því lærði maður að
synda og hugsar einhvern veginn um
það sem „léttasta“ sundið. Þetta
sem maður kann alveg og er ágætur
í. Annað en skriðsundið t.d. sem
þvælast vill fyrir sumum. En tæknin
skiptir vitaskuld máli í bringusundinu
og mikilvægt að vera með sundtökin
á hreinu. Á vefsíðu breska dagblaðs-
ins Guaradian undir heilsu má finna
ágætis grein þessu tengda eftir Sam
nokkurn Murphy. Í greininni útlistar
hann hvað þurfi að hafa í huga við
bringusundið og einnig fylgir með
myndband þar sem sýnd eru réttu
fóta- og handatökin. Það er ekki vit-
laust að fríska dálítið upp á kunn-
áttuna. Enda margir sem nýta sér
sundið sem líkamsrækt og þá
kannski sérstaklega á sumrin þegar
veðrið er gott og bjart til að synda
fram á kvöld.
Vefsíðan guardian.co.uk/lifeandstyle/2008/jul/30/fitness
Morgunblaðið/Golli
Bringusund Hægt er að nálgast góðar leiðbeiningar á netinu.
Tæknin við bringusund
Hlaupið verður til styrktar ADHD-
samtökunum á laugardaginn næst-
komandi, 12. maí. Engin tímataka
verður í hlaupinu því lagt verður upp
úr að öll fjölskyldan hlaupi saman –
þetta verður skemmtiskokk þar sem
ömmur og afar, ungbörn í kerrum og
unglingar hlaupa í þágu góðs mál-
efnis. Hlaupið hefst klukkan 15:00
fyrir utan Árbæjarþrek og hlaupinn
verður gamli góði „stífluhringurinn“
eða sem nemur 3 km.
Skráningargjald er 500 kr. á hlaup-
ara og hefst skráning klukkutíma fyr-
ir hlaup. Nánari upplýsingar á Face-
book undir ADHD Samtökin.
Endilega …
… hlaupið
styrktarhlaup
Morgunblaðið/Golli
Hlaup Vert að styrkja gott málefni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hádegisverðartilboð
Tvíréttað í hádegi frá 1.890,-
Fljót og góð þjónusta
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is –– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið
gefur út sérblað
Ferðasumar 2012
ferðablað
innanlands
föstudaginn
25. maí.
Ferðablaðið mun veita
upplýsingar um hvern
landshluta fyrir sig
og verður aðgengilegt
á mbl.is. Því verður
einnig dreift á
upplýsingamiðstöðvar
um land allt.
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 21. maí.
Ferðasumar 2012
ferðablað innanlands
SÉRBLAÐ