Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.05.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012 ✝ Ernir KristjánSnorrason, geð- læknir og taugasál- fræðingur, fæddist í Reykjavík 17. mars 1944. Hann lést á líknardeild Land- spítalans 26. apríl 2012. Foreldrar hans voru Björg Guðný Kristjánsd., húsfreyja, f. 5. sept. 1917, d. 13. mars 2003, og Snorri Jónsson, versl- unarmaður, f. 10. júlí 1911, d. 31. mars 1986. Systir Ernis er Jó- hanna, f. 15. júní 1942. Hálf- systkin, sammæðra, eru Kolbrún Skjaldberg, f. 26. maí 1951, og Þór Skjaldberg, f. 20. mars 1957. Ernir kvæntist 1971 Isabelle M. Fiocre Snorrason, f. 11. mars 1949. Þau skildu. Móðir Isabelle er Annie M. Fiocre, f. 15. nóv. 1921. Faðir hennar var Bernard Fiocre, dýralæknir, f. 19. júní 1924, d. 11. janúar 2001. Dóttir Ernis og Isabelle er Sandra Snorrason, landfr., f. 13. sept. 1972, barnsfaðir Patrice Frahi, f. 17. feb. 1964. Dóttir þeirra er Idora Frahi Snorrason, f. 3. nóv. 2000. Ernir varð stúdent frá MR 1966. Hann lauk kandídatsprófi í taugasálfræði og fyrri hluta doktorsprófs frá Université Strasbourg í Frakklandi 1971 og cand. med. frá HÍ 1986. Hann hlaut almennt lækningaleyfi á Ís- landi 1988 og í Noregi 1993 og sérfræðingsleyfi í geðlækn- ingum 1994. Ernir starfaði á Ís- landi, í Frakklandi og Noregi, m.a. sem læknir og kennari. Þá var hann taugasálfræðingur á Grensásdeild sem og sérfræð- ingur við taugadeild Landspít- alans 1975-90 og á geðdeildinni 1990-93. Ernir starfaði við rann- sóknir frá 1994 til æviloka og rak lækningastofu í Domus Me- dica til fjölda ára. Hann var stofnandi og í stjórn þróunarfyr- irtækisins Taugagreiningar hf., meðstofnandi Íslenskrar erfða- greiningar ehf. 1994 og stofn- andi breska lyfjafyrirtækisins Hunter-Flemming 1999, sat í stjórn þess og var þróunarstjóri. Árið 1980 var hann með útvarps- þáttinn „Kjarni málsins“. Hann var einnig forseti Alliance fran- caise 1984-5. Ernir var hesta- ræktandi og byggði búið á Selja- brekku í Mosfellsdal. Hann sinnti einnig ritstörfum. Skáldsagan Óttar kom út 1977 og ljóðakverið Bölverkssöngvar 1976. Ný skáld- saga eftir hann er væntanleg. Útför Ernis fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 8. maí 2012, kl. 13. Fyrrverandi sam- býliskona Ernis er Geirlaug Þorvaldsd., hóteleigandi, f. 13. des. 1939. Foreldrar Geirlaugar voru Ingibjörg Guð- mundsd., f. 11. apríl 1908, d. 6. júlí 2004, og Þorvaldur Guð- mundsson, f. 9. des. 1911, d. 10. jan. 1998. Börn Ernis og Geir- laugar eru 1) Þorvaldur, búfjár- erfðafr. og doktorsnemi, f. 26. ágúst 1977, maki Margrét Guðrún Ásbjarnard., læknanemi, f. 5. ágúst 1981. Sonur þeirra er Þor- valdur Örn, f. 30. mars 2003. 2) Ingibjörg, viðskiptafr. og læknir, f. 3. maí 1979. Ernir kvæntist 29. júlí 2006 eft- irlifandi eiginkonu sinni, Sólveigu Franklínsd., m. einkarekstur, f. 4. nóv. 1968. Móðir Sólveigar er Guðrún S. Austmar Sigurgeirsd., hjúkrunarfr., f. 19. júlí 1947. Faðir Sólveigar var Franklín Frið- leifsson, bifvélavirkjameistari, f. 8. jan. 1945, d. 20. okt. 2011. Börn Ernis og Sólveigar eru Franklín Ernir, f. 9. des. 2002, og stúlka fædd andvana 2. des. 2003. Elsku ástin mín. Í dag kveð ég þig, elskulegan eiginmann minn, samstarfsfélaga og vin. Ég man ætíð er við rákumst fyrst saman í orðsins fyllstu merkingu. Ég hljóp þig niður, bað afsökunar og þú leist á mig og sagðir: „Ég held þetta sé ást við fyrstu sýn.“ Mikið fannst mér þú frakkur. Þú varst alltaf svo skemmtilega hreinskil- inn og orðheppinn. Við áttum saman yndislegar stundir í rök- ræðum og skemmtum okkur kon- unglega heima í hugarflugi um allt milli himins og jarðar. Minn- ingin um einstakan mann, góðan og gjafmildan, kemur fram í huga mér og ég sakna þín meira en orð fá lýst. Þú gast líka verið mikill sérvitringur og skapstór með sterkar skoðanir og rök fyrir öllu, enda víðlesinn og ótrúlega af- kastamikill á þinni alltof stuttu ævi. Þú gafst mér dýrmætustu gjöfina, drenginn okkar og stúlk- una, og verð ég þér ævinlega þakklát fyrir það. Við áttum sam- an sorgir og sigra, í blíðu og stríðu, sól og nýja von. En veik- indin sigruðu að lokum og þú kvaddir þennan heim á fögrum vormorgni. Stríði þínu er lokið eftir hetjulega baráttu og eftir sit ég með söknuði. Ég geymi alltaf, ástin mín, það allt er gafstu mér og þakka þér hjartanlega fyrir okkar samfylgd og óska þér góðr- ar ferðar inn í Sumarlandið. Þú verður ætíð í hjarta mér og megir þú hvíla í friði og fylgja þér gleði. Ég elska þig. Þín Sólveig. Kæri pabbi besti. Ég vil að þú vitir hvað ég elska þig mikið. Krakkarnir í bekknum mínum sögðu alltaf að ég væri heppnast- ur í bekknum. En nú finnst mér ég vera óheppnastur, af því að þú ert dáinn. Ég sakna þín svo mikið og bjó til ljóð handa þér: Mennirnir deyja og börnin væla, enginn er lengur hamingjusamur. Mennirnir deyja og börnin væla, enginn er lengur hamingjusamur. Þangað til að á himnaríki, himnaríki, drottins ríki, mennirnir eru komnir á. Þá hamingjan rís á ný, já rís á ný – rís á ný. (Franklín Ernir Kristjánsson) Megi góður guð passa þig og vonandi er þér batnað og líður betur núna. Lífið er alltaf öðruvísi þegar einhver fer frá manni. Ég mun alltaf minnast þín og sakna þín. Hver á núna að kenna mér að tefla? Bless, elsku besti pabbi minn. Þinn sonur, Franklín Ernir. Elskulegur bróðir minn Ernir er látinn og lætur eftir sig stórt skarð í lífi mínu og mun ég sakna þess þegar hann hringdi og við ræddum það sem honum lá á hjarta, oft ræddum við um þjóð- málin og oftar en ekki hafði hann rétt fyrir sér um hvað koma skyldi í þeim málum. Hann var svo lánsamur að eiga góða konu sem sýndi mikla þraut- seigju í veikindum hans, sem ég veit að hann dáðist að. Það eru ótal minningar sem koma upp í hugann eftir langa ævi, sem ekki komast í stuttri kveðju svo ég læt duga að þakka fyrir góðu sam- verustundirnar okkar í 68 ár. Börn hans og sérstaklega Franklín, sem er lifandi eftir- mynd hans, bið ég Guð að blessa og styrkja. Hvíl í friði elsku bróðir minn. Jóhanna. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Sorgin hefur knúið dyra hjá fjölskyldu minni. Við kveðjum í dag merkan mann sem áorkaði miklu um æv- ina, læknir, vísindamaður, frum- kvöðull, uppfinningamaður, rit- höfundur, kennari og hrossaræktandi með meiru, en þó fyrst og fremst í mínum huga ást- in í lífi systur minnar og pabbi uppáhaldsfrænda míns. Ernir var mikill gæfumaður með margt í lífinu þó að hann fengi erfitt verkefni að takast á við sem hann að lokum lagði frá sér með reisn. Hann var ætíð von- góður um að ná bata og börðust þau Solla fyrir því að finna lækn- ingu, ýmist saman eða hún fyrir hann þegar þrek hans þvarr. Ernir var mikill heimsmaður og hafði sérstakt dálæti á Frakk- landi og franskri menningu eftir að hafa búið þar. Hann var skarpgreindur, ákaf- lega vel lesinn og hafði gjarnan sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Það var því gaman að ræða heimsmálin við hann og hann hugsaði yfirleitt út fyrir rammann og velti upp nýjum og áhugaverðum flötum. Ernir var víðförull um ævina en leið hvergi betur en í sveitinni sinni í Mos- fellsdal. Hann naut sín innan um hestana á Seljabrekku og hafði gaman af ferðum upp að vatni þar sem hann renndi fyrir grimma urriða. Ernir, Solla og Franklín Ernir ásamt dýrunum þeirra bjuggu í sveitasælunni þar sem þau höfðu komið sér upp sinni eigin paradís þegar veikindi Ernis hófust. Hans ósk var að geta verið sem lengst heima og af einstakri ósér- hlífni og hógværð gerði Solla mín honum það fært. Hún annaðist veikan eiginmann sinn af virðingu og alúð ásamt því að ganga í öll störf sem tilheyra umfangsmikl- um rekstri þeirra hjóna. Hetjan mín hann Franklín Ernir var líka duglegur við að hjálpa foreldrum sínum og saman voru þau sterk eining. Elsku Solla, Franklín Ernir, Ingibjörg, Þorvaldur, Margrét, Þorvaldur Örn, Sandra, Idora og ástvinir allir. Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur og veita huggun og styrk til að takast á við missinn og sorgina. Minning Ern- is lifir í hans góðu verkum og í börnunum hans fjórum sem hann var alla tíð ákaflega stoltur af. Sofðu rótt kæri vinur. Valgerður Franklins. Nú er Ernir Snorrason bekkj- arbróðir okkar í árgangi 1963 frá Bifröst fallinn frá. Ernir fæddist þann 17. mars 1944 og ólst upp í Reykjavík. Ernir var sérstakur maður, sem fór ekki troðnar slóð- ir. Á árunum um miðja síðustu öld voru orð kennarans hinn heilagur sannleikur og það var nær óhugs- andi að nemendur mótmæltu orð- um hans, hvað þá að leggja fram sjálfstæðar skoðanir. Við upphaf náms að Bifröst kom það okkur bekkjarfélögum Ernis mjög á óvart þegar Ernir var sífellt að grípa fram í fyrir kennaranum, mótmæla skoðunum hans og halda fram sínum skoðunum. Sérstalega þar sem kennarinn var sjálfur skólastjórinn. Mest vorum við þó hissa á hversu Guð- mundur skólastjóri tók þessum athugasemdum vel og svaraði þeim alltaf málefnalega jafnvel þótt okkur bekkjarfélögunum þætti Ernir alltof þrasgjarn í sín- um málflutningi. Guðmundur Sveinsson, skólastjóri á Bifröst, var að mörgu leyti á undan sinni samtíð hér á landi hvað varðar skólamál. Hann lagði áherslu á að byggja upp sjálfstæða skoðana- myndun nemendanna með virkri þátttöku þeirra í kennslustund- um. Ernir var góður námsmaður og einnig var hann liðlækur körfu- boltamaður og einn besti maður skólaliðsins. En þar sem hann skaraði fram úr var í ritfærni. Þegar lesið var upp úr bestu rit- gerðum nemenda voru það oftast ritgerðir Ernis, Rannveigar Har- alds og Jóns Kristjánssonar sem voru valdar. Okkur bekkjarfélög- um virtist sem Ernir stefndi markvisst að því að verða skáld. Það kom okkur því ekki á óvart þegar fréttist að Ernir hefði fetað í fótspor Halldórs Kiljans og gengið í klaustur að loknu stúd- entsprófi. Það átti ekki eftir að verða hans hlutskipti að verða skáld þótt hann hafi gefið út eina bók, Óttar, sem fékk almennt góðar umsagnir og nú er önnur bók tilbúin til útgáfu. Að loknu stúd- entsprófi hélt hann til Frakklands til náms og lenti þar í stúdenta- byltingunni árið 1968 þar sem hann var virkur þátttakandi. Hef- ur það örugglega átt vel við hann að berjast fyrir breyttu gildismati almennt og eins auknum áhrifum nemenda í stjórn skólanna. Sam- skipti hans við okkur skólafélag- ana voru ekki mikil eftir að hann kom frá Frakklandi og réðst til starfa á Landspítalanum. Þar fór hann nýjar leiðir eins og hans var von og vísa. Nýtti hann tölvu- tæknina, sem þá var á frumstigi, til að þróa tölvukerfi til mælinga á starfsemi heilans og stofnaði hann fyrirtækið Taugagreiningu um þetta verkefni. Eins var hann einn af stofnendum Íslenskrar erfðagreiningar. Við bekkjarfélagarnir í árgangi 1963 frá Bifröst sendum eigin- konu, fjölskyldu og ættingjum Ernis innilegar samúðarkveðjur, F.h. bekkjarfélaga á Bifröst ár- in 1961-1963, Sigurður Gils Björgvinsson. Ernir Kristján Snorrason  Fleiri minningargreinar um Erni Kristján Snorra- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Garðsláttur - trjáklippingar - mosaeyðing - beðahreinsanir og öll almenn garðverk. Uppl. í síma 777 9543. Garðaþjónusta Hlyns. Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hreinsanir, úðanir og allt annað sem við kemur garðinum þínum. Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð og umfram allt hamingjusamir viðskiptavinir. 20% afsláttur eldri borgara. Garðaþjónustan: 772-0864. Atvinnuhúsnæði Lítil og stór skrifstofuherbergi til leigu í Ármúla og við Suðurlands- braut. Hagstæð kjör. Upplýsingar í síma 899 3760. Sumarhús Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir POOLBORÐ frá RILEY Lækkað verð, 12mánaða vaxtalaus kortalán. www.billiard.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík, s. 568 3920. Til sölu Til sölu Massey Ferguson 135, tæki fylgja,Jurop-haugsugudæla, árgerð 2004, 11 þús. lítra afköst. Verð 100 þús., 12 tonna haugtank- ur með nýupptekinni dælu. Verð 470 þús. og ýmis fleiri tæki. Upplýsingar í síma 865 6560. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi, s. 551-6488 fannar@fannar.is - KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta Pípulagnir Pípulagningameistari getur tekið að sér alla almenna pípulagn- ingavinnu. Upplýsingar í síma 778 9700. Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar Látið fagmenn okkar nostra við garðinn þinn. Öll almenn garðþjónusta á einum stað. 577 4444 www.gardalfar.is Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og vélsópun, 551 4000 & 690 8000 www.verktak.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílaþjónusta Bílavarahlutir VW og Skoda varahlutir 534-1045 Eigum til notaða varahluti í VW, Skoda, Audi og Pajero frá '02. Eigum einnig til nýja gorma í VW og Skoda á lager. Kaupum bíla til niðurrifs og uppgerðar. Bílabúið, Kaplahrauni 11, s. 534 1045. Hjólbarðar Kebek Blacklion sumardekk 175/65 R 14 kr. 10.700. 195/65 R 15 kr. 12.500. 205/55 R 16 kr. 14.900. Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði (á móti Kosti), Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Ökukennsla Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.