Morgunblaðið - 08.05.2012, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það var mikiðkosið umnýliðna
helgi. Og svipt-
ingar urðu víða
hvar. Við kosn-
ingar og óvænt úr-
slit bættust valda-
skipti í Rússlandi. En Pútín,
sem stjórnaði landinu síðustu
árin úr forsætisráðuneytinu,
ákvað að gera það næstu árin
úr salarkynnum forsetans í
Kreml, eins og hann hafði gert
þar á undan. Og Medvedev
færðist til með sama hætti og
áður. Þetta er allt fremur
snyrtilegt. Þetta er eins konar
pólitísk útfærsla á leiknum „að
hlaupa í skarðið“ en í þessari
útfærslu er niðurstaðan þó ætíð
höfð algjörlega fyrirsjáanleg.
Á hinn bóginn voru þeir ef til
vill í „fallin spýta“ í Frakklandi,
þótt þeir hefðu auðvitað átt að
vera í „parís.“ Að minnsta kosti
er sá sperrti og spéhræddi Sar-
kozy fallinn af stalli og annar
kominn í staðinn. Vinstrimenn
höfðu haft fyrri konu nýja for-
setans í framboði síðast án ár-
angurs svo nú var komið að
honum. Þeir höfðu reyndar ætl-
að að bjóða Strauss-Kahn fram,
en lykkja varð á leið hans í
framboð, og jafnvel fleiri en ein
og þá varð ekki lengur fram hjá
Hollande gengið. Hann segist
alls ekki munu skrifa upp á rík-
isfjármálareglur sem komu frá
Brusselvaldinu, sitjandi í kjöltu
Þýskalands. Hann bætir því við
að samdráttur sé ekki verkefni
dagsins, heldur þvert á móti
aukin virkni efnahagslífs og
hagvaxtar og þar með fleiri
störf.
Hið þekkta þýska vikurit Der
Spiegel og vefur þess bendir
strax á að hinn nýi forseti
Frakklands komist auðvitað
ekkert upp með slíkt tal.
Spurningin sé einvörðungu hve
marga daga hann þurfi til að
jafna sig eftir kosningaslaginn
og óráðstal sem slíku fylgir og
hvort hann þurfi einhverja neð-
anmálsgrein einhvers staðar í
nýrri yfirlýsingu til að halda
andlitinu.
Í þessu sambandi muna
menn að Steingrímur J. Sigfús-
son þurfti tæpan sólarhring eft-
ir kosningar til að svíkja sín
helgustu kosningaloforð,
flokkssamþykktir og ófrávíkj-
anleg fyrirheit. Sjálfsagt getur
Berlín bent á það fordæmi sem
óvenjulegt og einstakt og
stækkunarstjórinn staðfest
sannleiksgildi þessa. En það er
þó ekki óhugsandi að franski
forsetinn þurfi lengri tíma. Í
fyrsta lagi á hann ekki að taka
við fyrr en eftir rúma viku. Og
jafnvel Steingrímur J. hefði
ekki svikið allt sem hann stand-
andi hafði lofað, áður en hann
var sestur og kom-
inn með hart undir.
Í annan stað eru
þingkosningar í
Frakklandi í næsta
mánuði, sem eru
mikilvægar fyrir
framtíð nýja for-
setans. Honum gæti þótt óþén-
ugt að ganga til þeirra með öll
kosningaloforðin niður um sig.
Meira að segja Steingrími hefði
þótt slíkt verra þótt hann
myndi láta sig hafa það. Búró-
kratarnir í Brussel verða að
sýna ákveðinn skilning á því að
þótt þeir sjálfir geri auðvitað
ekkert með barnalegt lýðræðis-
hjal þá verði „leiðtogar“ ríkja
innan ESB að fá að tala um
slíkt einstaka sinnum „svona til
heimabrúks“ eins og þeir Össur
og Steingrímur J. orða það
gjarnan.
Svo kusu þeir í Grikklandi,
enn einu sæluríkinu á evru-
svæðinu. Þar biðu hefðbundnir
flokkar afhroð, en sjóðheitir
sósíalistar unnu á öðrum megin
og um 20 svartstakkar hinum
megin komust inn á þingið og
þegar kosningaúrslitahringur-
inn er birtur standa þessir sig-
urvegarar hlið við hlið, sem
sagan sýnir að er ekki eins
fjarri lagi og ætla mætti, enda
skammt öfganna á milli.
En sem betur fer hefur
kanslari Þýskalands og fjár-
málaráðherra Þýskalands þeg-
ar tekið fram að þessar kosn-
ingar í Grikklandi breyti alls
engu fyrir þau málefni landsins
sem hafi verið uppi á borðum að
undanförnu. Það eru raunar
einu málefni þjóðarinnar sem
voru til umræðu í kosning-
unum. En skilaboðin sem bár-
ust án ástæðulausrar tafar til
vöggu lýðræðisins frá kistu
þess voru sem sagt þau að
kosningarnar skiptu alls ekki
máli.
Og í Bretlandi fóru fram
sveitarstjórnarkosningar, sem
fyrirfram voru sagðar mikil-
vægar. Þrjátíu prósent þeirra
sem voru á kjörskrá töldu rétt
að nýta atkvæðisrétt sinn.
Stærri stjórnarflokkurinn,
Íhaldsflokkurinn, tapaði tölu-
verðu fylgi. Hann fékk þó um 30
prósent atkvæða. Það voru því
um það bil 9 prósent þeirra sem
voru á kjörskrá sem ómökuðu
sig út til að kjósa þann valda-
flokk. Breski fjármálaráðherr-
ann, Osborne, sagðist vissulega
hafa fundið fyrir áminningu
kjósenda og þau skilaboð yrðu
ekki sniðgengin, að öðru leyti
en því að efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar yrði ekki breytt
að neinu leyti. Skyldu þau um-
mæli vera líkleg til að ýta undir
að kjósendur komi og krossi við
þegar næst er eftir því er kall-
að?
Kjörkassar voru
á víð og dreif um
helgina, en kjós-
endur ekki undir
áhrifum, þannig séð}
Mikið heimabrúk
Þ
að var ánægjulegt að lesa frétt í
nýjasta tölublaði Bændablaðsins
um nýstofnað fyrirtæki á Akur-
eyri sem ætlar að endurvinna
plast, aðallega rúllubaggaplast,
og breyta því í olíu. Úr plasti af einni rúllu má
vinna um það bil einn lítra af olíu. Til plast-
endurvinnslunnar hefur verið keypt vél frá
Japan. Um er að ræða einskonar heimilisvél
til endurvinnslu plasts, framleidda með það í
huga að allur almenningur geti nýtt sér hana
á heimilum sínum. Skólar og stofnanir í Japan
hafa fest kaup á tækinu og þar í landi er börn-
um kennt að rusl sé ekki endilega bara rusl.
Nýlega var sjónvarpsþátturinn Ísland í
dag með góða umfjöllun um flokkun sorps í
Stykkishólmi. Þar hefur allt sorp verið flokk-
að síðan 2008. Talað var við íbúa í sveitarfé-
laginu og heimilissorpinu var fylgt eftir til Sorpu þar
sem sýnt var hvað varð um það. Íbúarnir voru allir já-
kvæðir gagnvart sorpflokkuninni og fannst hún lítið mál
og sjálfsagt, þeir söfnuðu meira að segja saman eggja-
bökkunum á einn stað og sendu til baka til endurnýt-
ingar.
Eins og Stykkishólmur hafa mörg sveitarfélög tekið til
við að láta íbúa sína flokka allt sorp sem fellur til á heim-
ilum í þrjár mismunandi tunnur. Þar sem ég þekki til
finnst fólki þetta ekki nokkurt mál, þó smátíma hafi tekið
að koma kerfinu almennilega í gang verður flokkunin á
endanum bara hluti af heimilisrútínunni. Fólki líður líka
miklu betur með að vita að ruslið öðlast nýtt
hlutverk.
Síðla þessa árs verður hafist handa við að
hirða flokkað sorp við heimili í Reykjavík. Er
það virkilega ánægjulegt og ætti að auðvelda
höfuðborgarheimilunum að hefja fulla sorp-
flokkun eins og gerist í öðrum sveitar-
félögum. Í Reykjavík eru grenndargámar
víða og því mjög auðvelt fyrir heimilin að
stunda grunnflokkun, þ.e flokka plast og
pappír og rölta með það í næstu gáma, þá
grænu og bláu. Þrátt fyrir aukna vitund um
mikilvægi endurvinnslu og hvað við getum
gert gott fyrir jörðina á auðveldan hátt er
sorglegt að sjá hvað sumir eru latir við að
kynna sér kosti endurvinnslunnar. Enn eru til
heimili sem henda mjólkurfernunum og skyr-
dósunum í hefðbundið rusl, eins og það er auð-
velt að skola úr þeim og fara með í næsta grenndargám.
Það ættu allir að hafa pláss fyrir tvo dalla heima hjá sér,
t.d í ruslaskápnum, annan undir pappír og hinn undir
plast, og rölta svo reglulega út í gámana með innihaldið.
Það er ánægjulegt hversu mikið af sorpi er hægt að
endunýta. Við eigum að fagna því og taka þátt í að
flokka. Á vefsíðu Sorpu, sorpa.is, má sjá flokkunarregl-
urnar. Við, þessi fámenna þjóð á þessari litlu „grænu“
eyju, ættum að geta flokkað allt sorp auðveldlega. Það
eina sem þarf er hugarfarsbreyting hjá ákveðnum hópi,
þessum sem tekur eigin leti fram yfir framtíð jarðar-
innar. ingveldur@mbl.is
Ingveldur
Geirsdóttir
Pistill
Rusl er ekki bara rusl
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Áform kínverska auðjöfurs-ins Huang Nubo um ferða-þjónustu og afþreyingu áGrímsstöðum á Fjöllum
eru nú komin á borð Oddnýjar G.
Harðadóttur, iðnaðarráðherra og
fjármálaráðherra. Hún kynnti í
ríkisstjórn sl. föstudag fjárfestingar-
samning sem nefnd um ívilnanir
vegna nýfjárfestinga leggur til að
gerður verði við Huang Nubo og nýtt
félag í hans eigu; Zhongkun Gríms-
staðir ehf. Oddný hefur lýst jákvæð-
um vilja sínum í garð þessara áforma
en þau eiga eftir að fá samþykki á
fleiri vígstöðvum þar sem reyna mun
á mismunandi lagabálka.
Eins og fram hefur komið í
fréttum er um leigusamning að ræða
með sérstökum ívilnunum, til sam-
ræmis við lög nr. 99 frá árinu 2010
um ívilnanir vegna nýfjárfestinga.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær að
gera þarf hefðbundinn lóðarleigu-
samning til 99 ára um landið undir
húsin en um hinn hluta jarðarinnar á
að gera 40 ára leigusamning.
Fyrri áform Huang Nubo
gengu út á að kaupa Grímsstaði en
sem kunnugt er gekk það ekki upp
vegna andstöðu Ögmundar Jón-
assonar innanríkisráðherra við að
veita Huang undanþágu fyrir kaup-
unum. Nú hyggst sá kínverski leigja
landið af félagi í eigu sveitarfélag-
anna á Norðausturlandi, sem ætla
sér að kaupa Grímsstaði. Jörðin er
að 25% hluta í eigu ríkisins og fer
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra með þann hlut.
Talsmaður Huang Nubo, Halldór Jó-
hannsson, segist reikna með að
áformin eigi því einnig eftir að fara á
borð Steingríms. Þrátt fyrir and-
stöðu innanríkisráðherra vonast
Halldór til þess að landbún-
aðarráherra muni ekki hindra fram-
gang málsins. Huang Nubo hafi allan
tímann viljað vinna þetta mál í góðu
samráði við stjórnvöld og m.a. strax
lýst því yfir að hann hefði ekki í huga
nýtingu á auðlindum á svæðinu eins
og vatnsréttindum.
Hefst starfsemin 2016?
„Við teljum að fjárfestingar-
samningurinn og aðrir samningar
gangi í gegn á næstu vikum,“ segir
Halldór, sem bindur vonir við að
undirbúningsframkvæmdir eins og
hönnunar- og skipulagsvinna geti
farið í gang á þessu ári og fram-
kvæmdir hafist á Grímsstöðum
næsta vor. Samkvæmt tímaáætlun
verði svo hægt að hefja starfsemi ár-
ið 2016. Huang Nubo hefur einnig
áform um að reisa hótel í Reykjavík
en Halldór segir það allt annað mál
sem krefjist annarra samninga en
vegna Grímsstaða.
Áformin á Fjöllum eru ekki smá
í sniðum, eða fyrir alls um 16,2 millj-
arða króna. Huang Nubo vill reisa
100 herbergja lúxushótel á Gríms-
stöðum, auk 100 herbergja fjöl-
skylduhúsa eða nokkurs konar sum-
arhúsa. Byggja á golfvöll og aðstöðu
fyrir hestamennsku, baðlaugar og
ýmsa aðra afþreyingu. Einnig stend-
ur til að endurbæta flugbrautina á
Grímsstöðum þannig að hægt verði
að bjóða upp á útsýnisflug. Hyggst
kínverska félagið útvega nokkrar
litlar flugvélar til þess. Landsvæðið
undir alla þessa starfsemi er á nærri
3.000 hekturum. Framkvæmdir á
undirbúningstíma gætu skapað 400-
600 störf og um 400 störf þegar
reksturinn verður kominn vel af
stað. Að sögn Halldórs verður fyrst
og fremst reiknað með innlendu
vinnuafli og hráefni. Ekki er
búist við kínversku vinnuafli,
að öðru leyti en því að mat-
reiðslumenn á hótelinu
gætu orðið kínverskir eða af
öðru þjóðerni.
Huang á borði Odd-
nýjar og Steingríms
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Grímsstaðir Gangi öll áform Huang Nubo eftir er gríðarleg uppbygging
framundan á Grímsstöðum á næstu árum, fyrir um 16 milljarða króna.
Huang Nubo er í hópi auðugustu
manna í Kína. Á lista Forbes yfir
400 ríkustu Kínverjana, sem gef-
inn var út sl. haust, var Huang í
129. sæti með auð sem metinn
var á 1.020 milljónir dollara, eða
jafnvirði um 126 milljarða króna.
Áform Huang hafa fengið
nokkra athygli erlendra fjöl-
miðla. Þannig birtist frétt frá AP
á vef Washington Post í gær þar
sem rætt var við talsmann
Zhongkun Group, félags í eigu
Huang Nubo. Þar sagði m.a. að
til stæði að reisa hér keppnis-
braut (e. racetracks). Aðspurður
út í þetta segir Halldór Jó-
hannsson ekki standa
til að stunda veðreiðar
á Grímsstöðum, held-
ur hafi þýðing eitt-
hvað skolast til þarna
og væntanlega verið
að vísa til áforma
um hesta-
ferðir um
svæðið.
Einn sá
ríkasti í Kína
HUANG NUBO
Íslandsvinurinn
Huang Nubo.