SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Page 6
6 13. maí 2012
Samkynhneigðir í Bandaríkjunum
og miklu víðar hafa að vonum
fagnað yfirlýsingu Baracks Oba-
mas þess efnis að hann sé fylgj-
andi hjónavígslu para af sama
kyni. Hefur verið talað um vatna-
skil í því sambandi, herslumuninn
í baráttu samkynhneigðra fyrir
fullum mannréttindum.
„Mörg okkar munu alla tíð
muna hvar við vorum stödd, þegar
við sáum eða heyrðum fyrstu
fréttirnar af því sem Obama for-
seti hafði gert lýðum ljóst í viðtal-
inu við ABC-sjónvarpsstöðina,“
segir blaðamaðurinn David Us-
borne í pistli í breska dagblaðinu
The Independent á föstudag.
Usborne, sem sjálfur er sam-
kynhneigður, hefur lengi beðið eft-
ir því að maður á borð við Banda-
ríkjaforseta tæki af skarið í
þessum efnum. Hann býr í New
York og kveðst sárasjaldan verða
fyrir áreiti vegna kynhneigðar
sinnar, samt hafi hann lengi fund-
ið fyrir því að hjónavígsla para af
sama kyni sé mörgum þyrnir í
augum. „Ég hef ekkert á móti
samkynhneigðum, á meira að
segja samkynhneigða vini en mér
finnst bara að þið eigið ekki að
giftast,“ er oftar en ekki við-
kvæðið. Í þrjátíu ríkjum Bandaríkj-
anna eru hjónavígslur samkyn-
hneigðra enn bannaðar með
lögum. Þessu þarf að breyta, seg-
ir Usborne, og furðar sig á því að
heitustu andstæðingar þessara
sjálfsögðu mannréttinda skýli sér
á bak við kristni og vilji almennt
ekki að hið opinbera sé að skipta
sér af lífi borgaranna. „Hér er eitt-
hvað sem gengur ekki upp.“
Innlegg Obamas er að dómi Us-
bornes níðþungt lóð á vogarskál-
arnar. „Orð Obamas þýða ekki að
lögum verði breytt einn, tveir og
þrír en umræðan verður aldrei
söm aftur. Kærar þakkir.“
Vatnaskil í baráttunni
Barack Obama Bandaríkjaforseti
venti kvæði sínu í kross.
AFP
Samkynhneigð kom í vikunni eins ogstormsveipur inn í baráttuna fyrir for-setakosningarnar í Bandaríkjunumsíðar á þessu ári eftir að Barack Obama
forseti gerði heyrinkunnugt að hann hefði skipt
um skoðun og væri nú hlynntur hjónavígslum
fólks af sama kyni. Frjálslyndu öflin vestra hafa
fagnað þessari stefnubreytingu forsetans á
meðan þau íhaldssömu hafa lýst undrun sinni
og andúð á henni. Væntanlegur mótframbjóð-
andi Obamas, repúblikaninn Mitt Romney,
ítrekaði í kjölfarið kunna afstöðu sína þess efnis
að hjónaband eigi aðeins að vera milli karls og
konu. Sumum stjórnmálaskýrendum vestra
þykir Obama taka áhættu með þessu útspili
sínu en aðrir gera ekki ráð fyrir að það skipti
nokkru máli í kosningunum, þeir sem séu and-
vígir hjónavígslu samkynhneigðra myndu
hvort eð er aldrei kjósa Obama.
Sem kunnugt er hafa ýmsir íhaldssamir
trúarhópar í Bandaríkjunum lítið sem ekkert
umburðarlyndi gagnvart samkynhneigðum og
fyrir vikið vakti það óskipta athygli þegar
Romney skipaði yfirlýstan homma, Richard
Grenell, sem talsmann sinn í utanríkismálum í
liðnum mánuði. Téðir hópar létu í framhaldinu
frambjóðandann hafa það óþvegið og sá Grenell
sæng sína upp reidda – sagði upp.
Obama var ekki fyrr búinn að kynna hina
nýju afstöðu sína til hjónabanda samkyn-
hneigðra en dagblaðið Washington Post birti
frétt þess efnis að Romney hefði svívirt skóla-
félaga sinn, sem talið er að hafi verið samkyn-
hneigður, þegar hann var unglingur í miðskóla.
Ef marka má frétt blaðsins átti atvikið sér
stað árið 1965. Nýr nemandi í Cranbrook-
miðskólanum í Michigan, John Lauber að
nafni, mun, að sögn skólafélaga, hafa farið í
taugarnar á Romney fyrir þær sakir að hann var
með litað ljóst hár sem náði niður í augu.
„Hann getur ekki litið svona út. Það gengur
ekki upp. Lítið bara á hann,“ á Romney að hafa
sagt við vini sína. Fáeinum dögum síðar segja
heimildarmenn blaðsins Romney hafa farið
fyrir hópi ungmenna sem veittist að Lauber.
Nokkrir úr hópnum munu hafa haldið honum
niðri meðan Romney klippti hið „óþolandi“
hár piltsins með skærum.
Heimildarmenn Washington Post eru fimm,
þar af fjórir undir nafni, og voru þeir allir í fé-
lagahópi Romneys. „Þetta gerðist allt mjög
hratt og hefur angrað mig allar götur síðan,“
hefur blaðið eftir einum þeirra, Thomas Bu-
ford, saksóknara á eftirlaunum. „Þetta var með
afbrigðum heimskulegur gjörningur.“
Demókratar notuðu frétt blaðsins að vonum
til að kalla Romney „illkvittinn“ en repúblik-
anar hafa komið honum til varnar og sakað
demókrata um að gera úlfalda úr mýflugu.
Sjálfur kvaðst Romney í útvarpsviðtali á
fimmtudag ekki muna eftir téðu atviki. „Ég var
mjög hrekkjóttur í miðskóla og gerði margt
kjánalegt. Það eru 48 ár síðan þetta á að hafa
gerst og satt best að segja man ég ekki eftir
þessu. En hafi ég móðgað einhvern með orðum
mínum á þessum tíma biðst ég innilega afsök-
unar,“ sagði Romney og bætti við að samkyn-
hneigð hefði aldrei borið á góma þegar nem-
endur voru hrekktir á þessum tíma enda hefðu
flestir þeirra ekki komið út úr skápnum fyrr en
síðar. Sjálfur er John Lauber ekki til frásagnar,
hann lést árið 2004.
Gaysileg
iðrun
Gamall skóla-
hrekkur ásækir
Mitt Romney
Mitt Romney, forsetaframbjóðandi repúblikana, hefur beðist velvirðingar á hugsanlegum strákapörum í æsku.
AFP
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ed Gillespie, tals-
maður Mitts Rom-
neys, er meðal þeirra
sem lýst hafa furðu
sinni á frétt Wash-
ington Post. Flestir
hafi gert axarsköft á
yngri árum sem þeir
iðrist. Hann ítrekar
þó að Romney muni
ekki eftir umræddu
atviki og kjarni máls-
ins sé sá að allir sem
þekki Romney viti að
hann sé umhyggju-
söm og brjóstgóð
manneskja. „Um það
ber ferill hans vitni.“
Brjóstgóð
manneskja
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Eruð þið búin að
kíkja á okkur í
Smáralindinni?