SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Side 10
10 13. maí 2012
8:00 Vekjaraklukkan hringir
og ég blunda til korter yfir átta.
8:15 Fer á fætur og kíki inn til
Ísadóru sem steinsefur því hún
er mikil svefnpurka eins og
mamma hennar. Ég fer að gera
graut handa okkur og reyni að
hafa svolítinn hávaða svo hún
vakni. Finnur fer svo og kemur
henni á fætur og klæðir.
9:00 Litla daman tilbúin að
fara á leikskólann, þau fara
saman feðginin en ég verð eftir
og bý um rúmin, fæ mér tesopa
og kíki aðeins í snyrtibudduna
mína.
9:30 Tilbúin að fara úr húsi,
ég tek hjólið og hjólvagninn út,
fagna hækkandi sól og hjóla í
stúdíóið.
09:45 Komin í Höfðatún þar
sem Einar Tönsberg er með
stúdíóið sitt. Við erum vön að
hittast einu sinni í viku, vinnum
að annarri plötu Feldberg sem
kemur vonandi út á þessu ári. Ég
raula smálaglínu inn á lag sem
við erum að vinna að, fæ mér
svo kaffi og vonast til að geta
hent saman einhverjum texta …
12:00 Hjóla vestur í bæ og fer
á fund á kaffihúsinu í Þjóð-
minjasafninu með Ágústu hjá
Safnaráði, ræðum dreifingu
Safnabókarinnar og safnadaginn
mikla 18. maí. Þann dag verður
Safnabókinni dreift sem víðast.
13:00 Ég er að detta inn á
Dunhaga þar sem Bókaútgáfan
Guðrún er til húsa. Safnabókin
er nú komin úr prenti og í dreif-
ingu jibbí! Ég á samt heilmikla
vinnu eftir og byrja á því að
opna tölvuna og svara tölvu-
pósti. Fæ nokkrar myndir send-
ar sem ég þarf að bæta inn á
gagnasafnið sem ég hef unnið að
hörðum höndum síðustu tvo
mánuði. Við sendum myndirnar
á ferðavef ja.is – i.ja.is – og My
Iceland-smáforritið.
14:30 Kaffipása, standa upp
og teygja úr sér, sem er mik-
sumar og reyni að kíkja á sem
flest söfn því það er alveg ótrú-
legur fjölbreytileiki á söfnum
landsins, eitthvað fyrir alla!
16:00 Hjóla niður á Tjarn-
arborg þar sem ég sæki dóttur
mína. Við hjólum aðeins í
Hljómskálagarðinum, erum
ánægðar með breytingarnar þar
og leikum okkur smá á nýju
trampólínunum. Hjólum svo í
gegnum Þingholtin og kíkjum í
fiskbúðina á Freyjugötu.
19:00 Kvöldrútínan er mat-
ur, leikur, náttföt og lestur en
núna er það bókin Hænur eru
hermikrákur sem er í uppáhaldi.
21:00 Fæ smátíma fyrir sjálfa
mig, leggst í sófann með tölv-
una, bók og bolla af rauðrunna-
tei.
22:00 Tek bókina með upp í
rúm, kem mér vel fyrir með alls
konar púðum, sem er gott fyrir
svona óléttar konur, tæmi hug-
ann og lognast út af á næsta
hálftíma. (Stundum fæ ég líka
fótanudd á kvöldin.)
ilvægt, og smáfundur. Við ræð-
um um það sem þarf að gera til
að fylgja Safnabókinni eftir og
fer beint í að hringja á nokkra
staði til að athuga með dreif-
inguna. Nú ætti bókin að vera
komin um land allt en ég þarf að
passa upp á að örugglega allir fái
sínar bækur.
15:00 Eyði smátíma í að setja
inn facebookstatusa. Einn á
Feldberg þar sem ég set inn
mynd af mér og Einari síðan um
morguninn. Minni svo fólk á að
kjósa Sometime á ruv.is og
hlusta á nýja lagið okkar Mind
Repair inni á gogoyoko. Inni á
Facebook Safnabókarinnar hvet
ég fólk til að kíkja á sýningar
helgarinnar og þá helst í Viðey
og á Sagnheima í Vestmanna-
eyjum. Allt að gerast í eyjum
landsins um helgina.
Sjálf ætla ég að fá mér bíltúr
með fjölskyldunni um helgina
og kíkja á Rokkminjasafn Rún-
ars Júlíussonar, á það eftir. Er
með smálista sem ég er að reyna
að tékka við. En ég mæli með að
sem flestir grípi eintak af Safna-
bókinni, hafi hana í bílnum í
Dagur í lífi Rósu Birgittu Ísfeld
Rósa Birgitta Ísfeld framkvæmdastjóri Safnabókarinnar hafði í nógu að snúast á útgáfudeginum. Auk þess
þeyttist hún um á hjóli milli þess að syngja inn á plötu.
Morgunblaðið/Ómar
Menningarviti hjólar
Chlorella
Minnkar líkamslykt, tá og svitafýlu
Spirulina
Orkugefandi og örvar efnaskipti
Andoxunarríkt og örvar
efnaskipti
Wheat grass
Hreinsandi próteingjafi
Vegna einstakra gæða
nýtur Sunny Green
virðingar og trausts
um allan heim
Græni pakkinn
eykur orku og
er hreinsandi
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Sú var tíð, að hér starfaðikommúnistaflokkur, árin
1930-1938. Gaf hann út bókina
Vakna þú Ísland. Söngvar al-
þýðu árið 1936. Þar var prentuð
vísa, sem eignuð var óþekktum
höfundi.
Rekist þú á ríkan mann,
reyndu, ef þú getur,
að bregða fæti fyrir hann,
svo fólkinu líði betur.
En þessi vísa var úr kvæði eft-
ir eftir Pál J. Árdal, skáld og
kennara á Akureyri. Það hét
„Bolsévíkamórall“, var kveðið
1925 og og beindist gegn komm-
únistum. Seinna erindið hljóð-
aði svo:
Út í flónsku flæðisker
framan úr sveit og dölum
bágrækur mun bændaher
bolsvíkinga smölum.
Páll gerði hins vegar ekki aðra
fleyga vísu gegn kommúnistum,
sem honum var oft eignuð:
Upp er skorið, engu sáð,
allt er í varga ginum.
Þeir, sem aldrei þekktu ráð,
þeir eiga að bjarga hinum.
Hana orti Sigmundur Sig-
urðsson, úrsmiður á Akureyri,
eftir að Einar Olgeirsson fluttist
til Akureyrar vorið 1924 og blés
nýju lífi í félag jafnaðarmanna
þar.
Steinn Sigurðsson, kennari í
Vestmannaeyjum og síðar bók-
haldari í Hafnarfirði, orti gegn
sömu stjórnmálastefnu:
Nú eiga allir að eiga jafnt,
allir ríkis þjónar,
allir sama eta skammt,
allir vera dónar.
Líklega hafa íslenskir komm-
únistar ekki sungið þessar vísur.
Athugasemdir og leiðréttingar vel
þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Seinheppnir söngvarar
Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams var í banastuði þegar
hún lagði hina rússnesku Mariu Sharapovu á sterku móti í Madríd
fyrir helgi í tveimur settum, 6-1 og 6-3.
Williams hefur átt misjöfnu gengi að fagna undanfarin misseri,
meðal annars vegna meiðsla, en ætlar sér greinilega stóra hluti á
þessu ári.
Veröldin
AFP
Serenaða í Madríd