SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Side 13
13. maí 2012 13
Verkamannaflokkurinn ræður ríkjum í Manchester-borg áEnglandi og hefur gert lengi. Þar sitja 86 fulltrúar flokks-ins í borgarstjórn, níu úr Frjálslynda demókrataflokkn-um og einn sjálfstæður. Ekki einn fulltrúi Íhaldsflokksins
er í borgarstjórn. Hægrimenn eiga ekki séns!
Í sveitarstjórnarkosningum fyrr í mánuðum herti Verkamanna-
flokkurinn tökin og vann 25 sæti af demókrötum. Hafi einhverjir
búist við valdaskiptum voru það lélegir spámenn.
David Cameron forsætis-
ráðherra hefur lengi átt sér
þann draum að Íhalds-
flokkur hans næði að höfða
frekar til vinstrisinnaðs
fjöldans í Manchester en
áfram verður bið á því.
Yfirgnæfandi líkur eru
hins vegar á valdaskiptum á
knattspyrnusviði borg-
arinnar á morgun. Rauðu
djöflarnir í United hafa ráð-
ið lögum og lofum síðustu
áratugi; gleðin verið við
völd í Leikhúsi draumanna,
eins og heimavöllur þeirra
er gjarnan nefndur. Blá-
mennirnir í Manchester
City hafa orðið að gera sér
að góðu að dvelja í skugg-
anum. Máttur peninganna
er nú hins vegar að koma í
ljós í þessari miklu borg
vinstrimanna. Er þó ekki
eins og United-menn hafi
ekki tekið þátt af krafti í
bisness undangengin ár en
nú er hins vegar við ofurefli
að etja.
Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester
United, er harður vinstri-
maður og dyggur stuðn-
ingsmaður Verkamanna-
flokksins. Pólitíkin því
verið í hans anda. Mér er
ekki kunnugt um pólitískar
skoðanir Ítalans vel klædda,
Robertos Mancinis, sem tók
við þjálfun City rétt fyrir jól
2009, en einhvern veginn
dettur manni helst í hug að
hann hallist til hægri; þó
ekki væri nema bláa litarins.
Pólitík eigenda félagsins er
einfaldlega sú að vera bestir!
Þeir ætla sér heimsyfirráð.
Olíubarónarnir frá Abu
Dhabi hafa kafað í djúpa
vasana hvað eftir annað, keypt afburðaleikmenn og það hefur skilað
sínu. City varð bikarmeistari á Englandi í fyrra og nú er meistaratit-
illinn innan seilingar. Síðasta umferð deildarkeppninnar er á morg-
un og nær útilokað að titillinn renni mönnum Mancinis úr greipum.
Manchester City hefur tvisvar orðið enskur meistari; vorið 1937 og
aftur 1968. Í bæði skiptin varð Manchester United í öðru sæti,
tveimur stigum á eftir. Nú eru liðin jöfn en markahlutfallið City mun
hagstæðara. Vorið 68 fögnuðu City-menn auðvitað vel og lengi, en
þó ekki einir borgarbúa – Manchester United varð nefnilega Evr-
ópumeistari það ár, fyrst enskra liða.
Aðeins þessir tveir erkifjendur eiga möguleika á meistaratitli í ár
og allar líkur á að bláklæddir City-menn fagni þetta árið. Því má þó
ekki gleyma að ekkert er öruggt í fótbolta. Ferguson, sá mikli meist-
ari, virðist göldróttur og aldrei má afskrifa hans menn. Nú er samt
langsótt að galdrar dugi. Snillingar á borð við Yaya Touré, David
Silva, Sergio Agüero, Vincent Kompany,
Carlos Tévez ættu að duga til þess að
valdahlutföll breytist í borginni – a.m.k.
tímabundið.
Valdaskipti
í vændum
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
’
Pólitíkin í Man-
chester-borg hefur
verið Sir Alex
Ferguson að skapi og er
enn. Vinstrimenn ráða
ríkjum, en nú virðist
komið að valdaskiptum á
fóboltasviðinu
Ferguson sendir Roberto Mancini tón-
inn í Manchester-slagnum á dögunum.
Yaya Toure fagnar seinna marki sínu
gegn Newcastle um síðustu helgi.
AFP
Reuters
Stuttmynd vikunnar áMbl sjónvarpi nefnistUtangarðs. Í myndinnier fylgst með tveimur
útigangsmönnum frá morgni
til kvölds en þeir tengjast sér-
stökum böndum. „Ég fór að
velta fyrir mér lífi útigangs-
manna eftir að ég mætti ein-
um slíkum á mánudagskvöldi í
Hagkaup, hann var frekar illa
fyrirkallaður og bað mig um
klink til að eiga fyrir strætó,“
segir Valgeir Gunnlaugsson,
höfundur og leikstjóri mynd-
arinnar.
Með aðalhlutverk fara hinn
þrautreyndi
Sigurður
Skúlason og
hinn bráð-
efnilegi Hilm-
ar Guð-
jónsson.
Myndin var
sýnd á Stutt-
myndadögum
í Reykjavík á
síðasta ári sem og á Reykjavík
Shorts and Docs sem haldin
var nú á dögunum.
Valgeir útskrifaðist úr leik-
stjórn og framleiðslu frá Kvik-
myndaskólanum vorið 2011 og
hefur komið að ýmsum verk-
efnum síðan. „Eftir útskrift
hef ég unnið mikið fyrir Pega-
sus við að framleiða auglýs-
ingar. Ég vann við mynd Rid-
leys Scotts, Prometheus, sem
var tekin upp hér á landi og
einnig kom ég að Game of
Thrones. Einnig er viðbúið að
ég muni starfa við einhverjar
af þeim stórmyndum sem
teknar verða upp hér á landi í
sumar.“
Kvikmyndir
Utangarðs
Myndin fjallar um dag í lífi tveggja utangarðsmanna.
Valgeir
Gunnlaugsson
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta.
Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
ALHLIÐA HREINSUN,
DÚKAÞVOTTUR OG
HEIMILISÞVOTTUR