SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Side 24
24 13. maí 2012
Íslenski Dansflokkurinn og GusGusmunu frumsýna nýtt og óhefðbundiðverk í upphafi Listahátíðar í Reykjavíksem hefst 18. maí. Í tilkynningu segir að
gestum verði boðið í framandi ferðalag skiln-
ingarvitanna um heim dans, tónlistar og
myndmáls. Jafnframt segir að í verkinu sem
nefnist Á vit … sameinist kraftar ólíkra list-
forma auk þess sem stuttmyndir Reynis Lyng-
dal og Katrínar Hall verða frumsýndar. Tinna
Grétarsdóttir, æfingastjóri Íslenska Dans-
flokksins, segir að um frekar óvenjulegt verk
sé að ræða, „undirbúningur fór af stað síðasta
haust, Katrín Hall listrænn stjórnandi dans-
flokksins hóf vinnuna í samstarfi við Listahá-
tíð og Hörpu. Það má segja að verkið hafi verið
afhent dönsurum í dansflokknum í febrúar og
flokkurinn vann í kjölfarið þema og hug-
myndavinnuna bak við verkið“. Að sögn
Tinnu þróuðu dansararnir þema og danskafla
eftir að hafa fengið demó af tónlistinni.
„GusGus kemur ekki inn fyrr en Dansflokk-
urinn hefur verið að æfa í ákveðinn tíma og
þróað ákveðna danskafla. Síðan fáum við drög
að tónlistinni sem að við púsluðum saman við
danskaflana og saman þróast þetta í dans-
verkið Á vit …“ Á þeim tímapunkti segir Tinna
að meðlimir GusGus hafi farið að koma og
fylgjast með æfingum og í samráði við þá hafi
verið ákveðið hvernig raða ætti verkinu saman
og koma tónlistarmönnunum inn í senurnar.
Meðlimir GusGus þau Daníel Ágúst, Urður,
Högni og Stephan taka öll þátt í verkinu ásamt
9 dönsurum. Tinna segir að samstarfið hafi
gengið mjög vel, margar mismunandi útgáfur
hafi verið æfðar og nú viku fyrir frumsýningu
séu þau að ná lendingu. „Það ríkir lýðræði
innan hópsins, þarna koma saman ólíkir ein-
staklingar með ólíkar skoðanir en allir fá að
koma sínu á framfæri.“
Það leikur eflaust mörgum forvitni á að vita
hverju áhorfendur mega eiga von á í þessu
óhefðbundna verki. „Við í Dansflokknum er-
um að notast við algjörlega nýja nálgun. Við
erum vanari því að nýta sviðið í Borgarleikhúsi
en Norðurljósasalinn er hægt að nýta á allt
annan hátt en við höfum gert áður,“ segir
Tinna leyndardómsfull.
Óvænt samstarf
Bak við tjöldin
Texti: Heimir S. Guðmundsson heimirs@mbl.is
Myndir: Styrmir K. Erwinsson styrmirkari@mbl.is