SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Side 31
13. maí 2012 31
Séra Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin biskup yfirÍslandi, fyrst kvenna, opnar myndaalbúmið sittfyrir lesendum Sunnudagsmoggans að þessu sinni. Séra Agnes fæddist á Ísafirði 19. október 1954,
dóttir Sigurðar Kristjánssonar, sóknarprests á Ísafirði og
prófasts í Ísafjarðarprófastsdæmi, og Margrétar Hagalíns-
dóttur ljósmóður.
Agnes varð stúdent frá MÍ 1975 og lauk cand. theol.-prófi
við Háskóla Íslands 1981. Hún fór í framhaldsnám í prédik-
unarfræði í Uppsölum í Svíþjóð 1997. Hún lærði á píanó við
Tónlistarskóla Ísafjarðar og Tónlistarskóla Reykjavíkur og
orgel við Tónskóla þjóðkirkjunnar.
Agnes var æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar 1981-86, varð
sóknarprestur 1986 og hefur verið prófastur frá 1999.
Agnes var gift Hannesi Baldurssyni tónlistarmanni og
eiga þau þrjú uppkomin börn, Sigurð, Margréti og Baldur.
Systur í eins fötum. Í faðmi stórfjölskyldunnar.
Þjóðhátíðardegi fagnað.
Við vígslu Bolungarvíkurgangna í september 2010.
Menntaskólasystur í Lubliana árið 2005.
Verðandi
biskup
Myndaalbúmið –
séra Agnes M. Sigurðardóttir
2012, kjörin biskup yfir Íslandi.
Sóknarprestur og sýslumaður á 100 ára af-
mæli Hólskirkju.
Tekið við aðalpíanóverðlaunum Tónlistar-
skóla Ísafjarðar.
Með þáverandi aðstoðaræskulýðsfulltrúa Jóni Helga Þórarins-
syni (síðar séra) á æskulýðsfulltrúaárunum.