SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Blaðsíða 35
13. maí 2012 35
hverja vigt í varnarleikinn;
hann hefur líklega meint
smá þyngd, því ég var orð-
inn ansi þéttur í þeim tíma.
Ég ákvað að slá til og byrja
aftur, og sé ekki eftir því.“
Fyrirliðinn talar á svip-
uðum nótum og þjálfarinn
um sigurstundina.
„Það er erfitt að lýsa því
hvernig manni líður ná-
kvæmlega þá. Það verður
geðveikislega mikið spennufall og brýst
út í manni ofboðsleg gleði.“
Fyrstu sekúndurnar eftir að flautað
var til leiksloka í þriðju og síðustu úr-
slitaviðureigninni við FH í Hafnarfirði
segist hann hafi verið eins og smákrakki
á hliðarlínunni. „Ég réð varla við mig en
svo tók ofboðslegur fögnuður við; allt
sem maður var búinn að leggja á sig í
gegnum tíðina var undirbúningur fyrir
þetta augnablik.“
Þetta var langþráð stund.
„Á hverju ári, þegar ég sá einhvern
annan lyfta Íslandsbikarnum, ímyndaði
ég mér hvernig það væri að vera í þeim
sporum. En þegar þetta kom í minn
hlut áttaði ég mig á því hve tilfinningin
er sérstök; ímyndunin var ekki nálægt
því hvernig það er í raun og veru. Það er
varla að ég sé búinn að melta þetta
enn,“ sagði fyrirliðinn í vikunni,
nokkrum dögum eftir að hann hóf bik-
arinn á loft.
Mjög einbeittir
Óhætt er að segja að HK-ingar hafi
skriðið inn í úrslitakeppnina að þessu
sinni. Keppnin var svo jöfn að það var
ekki fyrr en í lokaumferð deild-
arkeppninnar sem þeir tryggðu sér sæt-
ið „en samt var þetta svo jafnt að við
vorum bara fimm stigum á eftir toppliði
Hauka. Fimm lið voru í dauðafæri á að
komast inn í fjögurra liða úrslitakeppni
og jafnvel verið að berjast um heima-
leikjaréttinn fram á síðustu stundu.“
HK-ingar byrjuðu á því að slá deild-
armeistara Hauka út í þremur leikjum,
3:0, og voru þar með komnir í úrslit. Og
Íslandsmeistarar FH fengu sömu útreið!
Ótrúlegt, en satt. „Mað-
ur fer auðvitað ekki af
stað með þetta í huga;
það er í raun ekki einu
sinni hægt að láta sig
dreyma um svona lagað,
en við ætluðum okkar
sannarlega að verða Ís-
landsmeistarar. Við töl-
uðum um það í fjöl-
miðlum á milli leikja að
við tækjum bara einn
leik fyrir í einu. Það var oft sagt, hugur
fylgir ekki alltaf máli en við vorum mjög
einbeittir í þessu.“
Fyrirliði HK segir margt hafa gert það
mögulegt að liðið náði þeim góða árangri
sem raun ber vitni. „Bæði líkamlegir og
andlegir þættir skipta máli. Þjálfararnir
eru snillingar í andlega þættinum og
leikgreiningu, Haukur [Már Sveinsson]
sjúkraþjálfari sá um styrktaræfingur og
gerði það ofboðslega vel, enda lentum
við nánast ekkert í meiðslum. Hann lét
okkur gera mikið af fyrirbyggjandi æf-
ingum og það skilaði sér þannig að við
vorum í baráttu um alla titla í vetur.“
Hann fer líka fögrum orðum um sam-
herjana, eins og nærri má geta, ekki síst
þá ungu. „Tandri [Már Konráðsson] er
bara 21 árs og fleiri ungir menn eins og
Bjarki Már og Atli léku stór hlutverk.
Þeir eru ungir en sýndu mikinn þroska
sem leikmenn með frammistöðu sinni.“
Að ekki sé talað um markmennina.
Vendipunktur
Vilhelm Gauti segir tap fyrir Fram í und-
anúrslitum bikarkeppninnar hafa verið
ákveðinn vendipunkt hjá HK-ingum í
vetur. „Það var mikið áfall. Við duttum
út með eftirminnilegum hætti; Fram
gerði sigurmarkið úr aukakasti eftir að
leiktíminn var búinn og við það kom
upp gríðarlegt hungur í mannskapinn.
Eftir svona leiki koma orðin ef og hefði
mikið upp í hugann og við vorum
ákveðnir í því að láta það ekki koma fyr-
ir aftur. Við ákváðum að gefa okkur alla í
verkefnið framundan; það má segja að
hungrið í sigur hafi magnast upp við
þetta tap.“
’
Mig hefur
dreymt um
það, síðan
ég fór að þjálfa, að
ég yrði þjálfarinn
sem færði félaginu
fyrsta Íslands-
meistaratitilinn.
Ólafur Bjarki Ragnarsson var
kjörinn bæði besti sókn-
armaðurinn og besti leik-
maður Íslandsmótsins í fyrra
og engum kæmi á óvart þótt
hann yrði aftur fyrir valinu í
kvöld, þegar lokahóf Hand-
knattleikssambands Íslands
fer fram.
Þessi 23 ára gamla stór-
skytta er uppalin í HK. Hann
var líka efnilegur í knatt-
spyrnu og mjög liðtækur í
golfi og margir virðast hafa
reiknað því að hann veldi
jafnvel síðastnefndu grein-
ina. „Ég er stundum spurður
að því hvernig standi á því að
pabbi hafi leyft mér að fara í handboltann!“ segir Ólafur Bjarki og
hlær í samtali við Sunnudagsmoggann. Faðir hans er reyndar
gamall handboltamaður í HK, en þekktari fyrir afrek á sviði. Ragn-
ar Ólafsson er einn snjallasti kylfingur landsins í gegnum árin,
fyrrverandi Íslandsmeistari, og um tíma landsliðsveinvaldur.
„Ég get alveg sveiflað,“ segir handboltahetjan þegar golfið ber
á góma, en hann segir aldrei hafa komið til greina að það yrði
hans aðalgrein. „Ég var ekki nógu þolinmóður til að vera í golfinu;
vildi vera í meiri bardaga en er reyndar farinn að róast núna. Fjöl-
skyldan er mikið í golfi og ég dreg örugglega fram kylfurnar eftir
að ég legg handboltaskóna á hilluna.“
Þakka mömmu fyrir að ég er enn í handbolta
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ólafur Bjarki þegar reynt fyrir sér sem
handboltamaður í útlandinu. Hann var í einn vetur hjá Ahlener SG í
Þýskalandi, en varð reyndar fyrir því óláni að brjóta þumalfingur
og var því frá æfingum og keppni í nokkra mánuði. Sá því þann
kost vænstan að koma heim aftur og er nú að ljúka öðru keppn-
istímabilinu með HK eftir heimkomuna. En það er ekkert launung-
armál að hugurinn stefnir út á ný. Eðlilega, enda er Ólafur Bjarki
kominn í landsliðið og á fullt erindi í atvinnumennsku. Umboðs-
maðurinn vinnur í þeim málum þessa dagana.
Ólafur Bjarki byrjaði að æfa fótbolta fimm ára og var að alveg
upp í 2. flokk. „Liðið var mjög gott,“ svarar Ólafur hógvær þegar
blaðamaður segist hafa heyrt að hann hafi þótt mjög efnilegur.
„Við urðum Íslandsmeistarar í einhverjum yngri flokknum og
Shellmótsmeistarar.“
Hann hóf að iðka handbolta 10 eða 11 ára. „Ég verð eiginlega
að þakka mömmu fyrir að ég skuli enn vera í handbolta. Hend-
urnar á mér fóru illa af boltanum þegar ég var strákur, það blæddi
úr þeim og húðin sprakk einhverra hluta vegna. Ég var svo pjatt-
aður að ég vildi ekki bera neitt krem á hendurnar en mamma
bjargaði mér með því að bera á mig eftir að ég var sfonaður. Hún
gerði það í heilt ár eða meira; það er aldrei að vita hvað hefði
gerst hefði hún ekki borið á mig kremið.“
Handknattleikshreyfingin stendur í þakkarskuld við Hólmfríði J.
Guðmundsdóttur! Og reyndar ekki bara fyrir Ólaf. Þess má geta til
gamans að tvíburasystir hans, Ólöf Kolbrún, er markvörður með
HK og á að baki 11 leiki með A-landsliðinu.
Ólafur Bjarki Ragnarsson
Morgunblaðið/Ómar
Leyfir pabbi þinn þér
að vera í handbolta?
:
Eurovision 2012 SÉRB
LA
Ð
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út sérblað
tileinkað
Eurovision
þriðjudaginn
22. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 14, fimmtudaginn 16. maí.
Þetta er blað sem lesendur hafa
við hendina 22., 24. og 26. maí
þegar Eurovision verður sýnt í
sjónvarpinu.
Magnús Gíslason var fyrsti formaður HK, sem átta
12 ára strákar stofnuðu 1970. Þeir voru svo ungir að
foreldrar urðu að setjast í stjórn með drengjunum til
þess að hægt yrði að stofna löglegt félag! Flestir
strákanna æfðu fótbolta með Breiðabliki; fótbolti
var þá „sumaríþrótt“ og strákana langaði að æfa
handbolta á veturna. Fyrsti formaður var Magnús
Gíslason, og á úrklippunni hér að ofan er sagt frá
heimsókn þeirra Hilmars Sigurgíslasonar á ritstjórn-
arskrifstofu Vísis. Besti handboltamaður Íslands,
Geir Hallsteinsson, hafði komið á æfingu hjá þeim fé-
lögum. Þeim fannst hann ekki þruma nógu mikið …
Tólf ára strákar stofnuðu félagið