SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Qupperneq 41
13. maí 2012 41
LÁRÉTT
1. Tilbúið undir heimilið. (9)
4. Það sem heldur sínum lit hreint og beint. (5,5)
8. Hár eftir sumar í sveit líkist búra. (11)
10. Capone feitur en undantekningalaus. (8)
13. Grípa mjólkursamsölufæði í úttekt. (7)
14. Gortið og húsráð flækjast saman á stað á Ak-
ureyri. (12)
16. Karlmaður kúgi með drambi. (5)
17. Blóm sem feikn af eldsneyti. (8)
20. Ímyndaðir hundar djarfra. (9)
21. Alvarlegur áverki biðla. (9)
25. Staður með rokum fyrir þann á flótta. (11)
27. Set romm aftur í hljóðfæri. (6)
28. Í sári heilnæmt tré finnst að sögn. (8)
29. Sum fá kruðu til að þvælast með þegar þau
vöknuðu. (8)
31. Fæ bein á haustönninni. (4)
32. Sér Bjarni um busl, spil og högg. (12)
33. Kostnaðarsamir hópar finna smáar skepnur. (6)
LÓÐRÉTT
1. Komumst angistarfull af stað veseni. (7)
2. Draumóralistin tapar lausn hjá gagnrýnanda. (9)
3. Lituðust nú einhvern veginn um eftir skýringu.
(8)
5. Linist vit í rugli í verunni hér á jörðu. (9)
6. Ási G. fær söng við komu sína út af ástandi. (11)
7. Orðið sem byrjar á M er glæpurinn. (6)
9. Eldur flytur vonda. (9)
11. Lítill skyndibiti fyrir þröngsýnan mann. (10)
12. Hrygglaus nær að gretta sig. (5)
15. Hitta viðeigandi. (4)
16. Húð og hross mynda sérstakan sess. (8)
18. Sú sem innheldur mikið af þrumum er ekki edrú.
(11)
19. Móta klæði með efni. (8)
22. Þægilegt er í sælgæti að komast. (7)
23. Alda stoppar viðkvæma. (10)
24. Hún missir smávegis grískan bókstaf við að of-
sækja. (8)
26. Maulaðu einhvern veginn eins og kýr. (7)
28. Hálfgerð flík hiti dýri. (6)
30. Tek enda á matarlauk og geri að hræringi. (4)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 13. maí rennur út á hádegi
18. maí. Nafn vinningshafans
birtist í Sunnudagsmogganum
20. maí. Heppinn þátttakandi
hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 6.
maí er Erla H. Ásmundsdóttir, Melateig 41 (201),
Akureyri. Hún hlýtur að launum bókina Morðið á
Bessastöðum eftir Stellu Blómkvist. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Ég hygg að ég hafi séð Hauk
Angantýsson, sem lést hinn 4.
maí, í fyrsta sinn í Laugardals-
höllinni sumarið 1972. Hann var
að skýra skák úr einvígi Fischers
og Spasskís. Haukur var ásamt
Guðmundi Sigurjónssyni talinn
fremsti skákmaður sinnar kyn-
slóðar og á dögum einvígisins
fór mikið orð af honum fyrir
framgöngu við skákborðið;
hann hafði unnið afar öflugt
hraðskákmót í skákklúbbi ein-
vígisins í Glæsibæ og voru þar
engir veifiskatar á ferð, ef ég
man rétt var Friðrik Ólafsson
meðal þátttakenda.
Eftir að Haukur kom að loknu
efnafræðinámi í Gottingen í
Þýskalandi tefldi ég oft við hann
á heimili Guðmundar Ágústs-
sonar bakarameistara á Vestur-
götunni. Hann jók þátttöku á
skákmótum heilmikið, varð
efstur við fjórða mann á Skák-
þingi Íslands 1975, Íslands-
meistari 1976, efstur ásamt
greinarhöfundi á Íslandsmótinu
1978 og við þurftum að tefla ein-
vígi um titilinn. Í millitíðinni
flugum við vestur um haf og
tefldum á opnu móti í þorpi upp
við Klettafjöllin í Bandaríkj-
unum, Lone Pine. Að lokinni
eftirminnilegri ferð til Las Vegas
settist Haukur á móti gamla
undrabarninu Samuel Resh-
evsky. „Sammy“ hafði orð á sér
fyrir að vera dálítið „brönd-
óttur“ og í miðri skák tók hann
upp leik. Eftir skákina, sem
Haukur vann, spurðum við
hann af hverju hann hefði látið
hinn fræga andstæðing komast
upp með þessa framkomu. Við
fengum þau svör að hann hefði
ekki haft geð í sér til að kalla á
skákstjórann.
„Þar fyrir utan,“ bætti hann
við hlæjandi, „tók hann upp
besta leikinn í stöðunni.“
Á Þýskalandsárum sínum
tefldi hann fyrir þarlenda
klúbba, háði harða baráttu við
Guðmund Sigurjónsson um Ís-
landsmeistaratitilinn 1968, ári
síðar mætti Friðrik Ólafsson og
hafði sigur eftir mikla keppni
við Guðmund. Þar réð miklu að
Guðmundur tapaði fyrir Hauki í
skák sem hér fer á eftir:
Skákþing Íslands 1969:
Haukur Angantýsson – Guð-
mundur Sigurjónsson
Sikileyjarvörn
1. f4 g6 2. Rf3 Bg7 3. g3 c5 4.
Bg2 Rc6 5. 0-0 d6 6. e4 e6 7. c3
Rge7 8. Ra3 Hb8 9. Rc2 b5 10. d4
b4 11. c4 Ba6 12. dxc5 Bxc4
Knýr hvítan til að fórna
skiptamun, öruggara var var
12. … dxc5 og staðan er í jafn-
vægi eftir 13. De2.
13. cxd6! Bxf1 14. Kxf1 e5 15.
fxe5 Bxe5
Eftir 15. … Rxe5 á hvítur 16.
Bg5! peðið á d6 er sem óþægur
ljár í þúfu.
16. Rxe5 Rxe5 17. Bf4 R7c6 18.
Dd5 Df6 19. Rd4!
Enn einn hnitmiðaður leikur.
19. … g5 20. Rxc6 Rxc6 21. e5
Df5
Nú blasir við að leika 22.
Dxc6+ en eftir 22. …f8 sleppur
kóngurinn til g7 og biskupinn á
f4 fellur. Næsti leikur Hauks
kom eins og þruma úr heiðskíru
lofti.
22. e6! Dxd5 23. Bxd5 Rd4 24.
Be5 fxe6 25. Bxh8 Rc2 26. Bc6
Kf7 27. Hc1 b3 28. axb3 Rb4 29.
Be5 Rd3 30. He1
– og Guðmundur gafst upp.
Glæsileg skák.
Einn sinn stærsta sigur vann
Haukur svo á World open-
mótinu 1979 og var yfirleitt í
toppbaráttunni á þeim mótum
sem hann tók þátt í á þessum
árum. Það var þungbært fyrir
fjölskylduna og alla sem þekktu
hann að horfa á Hauk veikjast
alvarlega snemma á níunda
áratugnum. Hann tefldi alltaf
annað veifið eftir það en náði
aldrei fyrri styrk. En í veik-
indum sínum stóð hann keik-
ur; Sævar Bjarnason frændi
hans sagði mér að Haukur hefði
varla misst úr dag í vinnu sinni
við netagerð í Hampiðjunni en
þar starfaði hann um áratuga-
skeið.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Haukur Angantýsson
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta