Morgunblaðið - 06.06.2012, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. J Ú N Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 130. tölublað 100. árgangur
BLÉS TIL
SÓKNAR
EFTIR HRUNIÐ KITL FYRIR DAUÐANN
ANNA FÉKK
VERÐLAUN
FYRIR DREYMI
JAÐARSÖNGLEIKUR 40 GRÍÐARLEGUR HEIÐUR 38SVEINBJÖRG 10
Unga fólkið lætur sólina ekki framhjá sér fara og
flykkist gjarnan út til að liðka sig og sprella á góðviðr-
isdögum. Þessi tvö voru í fantafínu formi og sannar-
lega kattliðug þar sem þau léku sér í Nauthólsvíkinni.
Þau fóru létt með að snúa sér í hringi og kíkja aðeins á
heiminn á hvolfi.
Morgunblaðið/Eggert
Æskan hrausta reynir sig
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Von er á fjölda fólks, af öllu landinu, á samstöðu-
fund sem útvegsmannafélögin og starfsfólk í sjávar-
útvegi efna til á Austurvelli á morgun. Reiknað er
með að áhafnir skipa í nokkrum byggðarlögum sigli
til fundarins og að þau haldi síðan til veiða. Útvegs-
menn ljúka því væntanlega aðgerðum sínum með
fundinum.
Útgerðarmenn og sjómenn í Grindavík og Vest-
mannaeyjum ákveða í dag hvort siglt verður til
fundarins í Reykjavík og umræður voru einnig um
þennan möguleika á Snæfellsnesi.
Reiknað er með að skip á vegum útgerða Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna muni halda til
veiða um kvöldið og á föstudag. Með því lýkur að-
gerðum útvegsmanna sem ákveðnar voru til að
vekja athygli á afleiðingum fiskveiðifrumvarpa rík-
isstjórnarinnar fyrir fyrirtækin og starfsfólk þeirra.
Frumvörpin eru enn til umfjöllunar í þinginu. Veiði-
gjaldafrumvarpið var rætt á þingfundi fram eftir
kvöldi í gær og búast má við að það verði rætt
næstu daga.
„Ég tel að þessar breytingar gangi allt of
skammt,“ segir Þorvarður Gunnarsson, forstjóri
endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte, um veiði-
gjaldafrumvarpið, en hann hefur verið að meta
áhrif þess fyrir LÍÚ. Hann segir að þótt búið sé að
sníða nokkra agnúa af séu þetta sömu frumvörpin
og þau séu enn allt of íþyngjandi.
Spyrjast fyrir um villu í nefndaráliti
Vinnu Deloitte er ekki lokið en LÍÚ hefur komið
upplýsingum þeirra til útgerðarfyrirtækjanna svo
þau geti reiknað út áhrif frumvarpanna á fyrirtæki
sín. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir að svo virðist sem alvarleg villa sé í áliti
meirihluta atvinnuveganefndar um veiðigjalda-
frumvarpið. Hún leiði til þess að veiðigjöld geti orð-
ið mörg hundruð milljónum kr. meiri á næsta ári en
reiknað var með. LÍÚ hefur óskað eftir fundi með
atvinnuveganefnd til að fara yfir það atriði.
MFengnir verði »14
Sigla eftir samstöðufund
Útlit fyrir að aðgerðum útvegsmanna ljúki á útifundi á Austurvelli Einhverjir
hyggjast sigla til fundar Forstjóri Deloitte segir frumvörpin allt of íþyngjandi
Morgunblaðið/RAX
Reykjavík Skipin eru enn í höfn og fer fjölgandi.
„Tekjuöflun verkefnisins misfórst í meðförum þingsins. Í
stað þess að miða við gistinætur var búin til ný eining, gisti-
náttaeining. Hún skilar ekki því sem lagt var upp með,“
segir Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður Ferðamálastofu á
Akureyri, um reynsluna af gistináttaskatti sem lagður var
á um áramótin. Að sögn Elíasar skilaði skatturinn 69 millj-
ónum króna til framkvæmdasjóðs ferðamannastaða í ár
sem sé langt undir upphaflegum áætlunum. »14
Gistiskatturinn ónóg tekjulind
Áhafnir skipa þriggja stórra út-
gerðarfélaga sendu í gær frá sér
yfirlýsingar þar sem fiskveiði-
frumvörpum ríkisstjórnarinnar
er mótmælt og skorað á stjórn-
völd að draga þau til baka.
„Með því að fresta brottför
flotans er verið að mótmæla
harðlega aðför að störfum okk-
ar og kjörum um ókomna tíð,
svo ekki sé minnst á áhrif frum-
varpanna á okkar heimabyggð,“
segir í yfirlýsingu sjómanna
Samherja.
„Frumvörpin skapa óvissu,
sundrung og munu hafa nei-
kvæð áhrif á laun sjómanna og
annars starfsfólks í sjávar-
útvegi um allt land,“ segja
áhafnir þriggja skipa Eskju hf. á
Eskifirði. »8
„Aðför að
störfum okkar“
SJÓMENN MÓTMÆLA
„Segja má að þarna sé atvinnustefna
ríkisstjórnarinnar í hnotskurn,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson alþing-
ismaður. Fram kemur í skriflegu
svari fjármálaráðherra við fyrirspurn
hans að fjárheim-
ildir til skattrann-
sóknarstjóra rík-
isins jukust um
94% á milli ár-
anna 2007 og 2011
og starfsfólki
embættisins fjölg-
aði á sama tíma
um 58%.
Fjárheimildir
ríkisskattstjóra
jukust mun minna, eða um 20%, frá
2007 og starfsfólki fækkaði um 7,5%.
Fjárheimildir yfirskattanefndar
minnkuðu og starfsfólki fækkaði.
Guðlaugur Þór staldrar við þá
aukningu sem orðið hefur á fjárheim-
ildum skattrannsóknarstjóra á sama
tíma og flestar ríkisstofnanir hafa
þurft að draga verulega saman segl-
in, meðal annars í heilbrigðis- og
menntakerfi og löggæslu og veltir því
fyrir sér hvernig þetta hafi skilað sér.
„Það má færa rök fyrir því að auka
þurfi eftirlit þegar búið er að hækka
skattana og flækja skattkerfið. Ég vil
frekar einfalda skattkerfið og lækka
skattana,“ segir hann og nefnir einnig
að full ástæða sé til að staldra við og
meta hvort stjórnvöld séu á réttri
leið. „Það er margt sem bendir til
þess að við séum að fara hratt í átt til
þjóðfélaga sem við höfum ekki viljað
bera okkur saman við, eftirlitsþjóð-
félaga. Þetta er ein birtingarmynd
þess,“ segir Guðlaugur Þór.
helgi@mbl.is
Tvöfaldað til
skattrannsókna
Atvinnustefna ríkisins, segir þingmaður
Guðlaugur Þór
Þórðarson
94%
aukning varð á framlögum til skatt-
rannsóknarstjóra á fjórum árum.
316
ársverk voru hjá embættinu á árinu
2011 og hafði fjölgað um 153.
‹ AUKIN UMSVIF ›
»