Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Íslenska fyrirtækið BG Holding lýsti ekki 68 milljarða kröfu í þrotabú Baugs á tilskildum tíma, að sögn skiptastjóra fyrrnefnds félags. „Ég hef óskað eftir skýringum á því hvers vegna þessi mistök urðu og hver beri ábyrgð á þeim,“ segir Sig- urður Kári Kristjánsson, fyrrver- andi þingmaður og skiptastjóri BG Holding, í samtali við Morgunblaðið. „Um er að ræða lánafyrirgreiðslu BG Holding til Baugs. Ég get ekki upplýst á hverju hún byggir. Ég á enn eftir að fá nánari upplýsingar um það.“ BG Holding hélt um eignir Baugs Group í breskum smásölukeðjum. Það átti hluti t.d. í matvöruverslana- keðjunni Iceland Foods, leikfanga- verslunum Hamleys, í verslanakeðj- unni House of Fraser, skartgripakeðjunni Aurum og tísku- vöruverslanakeðjunni Jane Norman. 140 milljarða kröfur í BG Holding Kröfurnar í þrotabú BG Holding nema um 140 milljörðum króna, að sögn Sigurðar Kára. Hann getur ekki sagt til um hver eignastaða þrotabúsins er að svo stöddu. Heildarkröfur í þrotabú Baugs nema 319 milljörðum króna, að því er fram hefur komið í fréttum. Skiptastjórinn hefur sent kröfuhöf- um Baugs Group beiðni um að hleypa 68 milljarða kröfunni að en ¾ kröfuhafa verða að samþykkja beiðnina. Fréttastofa RÚV, sem sagði fyrst frá þessari vanlýstu kröfu upp á 68 milljarða króna, hef- ur heimildir fyrir því að endurheimtur upp í almennar kröfur þrotabús Baugs verði ekki mikið meiri en 1%. Skilanefnd Landsbankans, sem var stærsti kröfuhafi BG Holding, óskaði eftir því að félagið, sem er ís- lenskt, færi í greiðslustöðvun í febr- úar 2009 í Bretlandi, og réð Pri- ceWaterhouseCooper (PwC) í Bretlandi til að gæta hagsmuna kröfuhafa í málinu. Tveir starfs- menn stýrðu málum fyrir hönd PwC: Zelf Hussain og Tony Lom- ans, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Þegar BG Holding er keyrt í greiðslustöðvun missa eig- endur þess og aðrir stjórnendur völdin í fyrirtækinu. Eftir að félagið er farið í greiðslustöðvun gengur skilanefnd Landsbankans að sínum veðum. Þau voru Iceland Foods, Hamleys, House of Fraser og Aurum. Sigurður Kári segir að það flæki óneitanlega vinnu við gjaldþrota- skiptin að félagið hafi farið í greiðslustöðvun í Bretlandi. Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi verið gert vegna þess að allar eignir félagsins hafi verið í Bretlandi og „til að tryggja á skjótan hátt kröfur okkar í félagið“. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst eru lögin þannig í Bretlandi að við þessar að- stæður gangi kröfuhafar í raun inn í félögin og taki þau yfir. Skilanefndin taldi sig hafa betri veð en aðrir Áður en skilanefnd Landsbankans óskaði eftir því að BG Holding færi í greiðslustöðvun í Bretlandi höfðu stjórnendur Baugs Group kynnt hugmyndir sínar um hvernig fyrir- tækið gæti lifað lánsfjárkreppuna af. Hugmyndin var að færa eignir Baugs Group í Bretlandi undir regn- hlífarfélag í þeirra eigu. Með þessu áttu allir lánardrottnar að fá hluta af útlánum sínum greitt til baka. Skila- nefnd Landsbankans átti kröfur í fjögur félög sem stjórnendur skila- nefndarinnar töldu nokkuð stöndug en inn í þessa regnhlíf átti einnig að renna inn félögum sem þeir töldu standa veikum fæti. Stjórnendur skilanefndarinnar töldu sig bera skarðan hlut frá borði ef fara ætti þessa leið. Þeir væru því í raun og veru að styðja við bakið á öðrum kröfuhöfum sem áttu veð í veikari eignum, þvert á sína hagsmuni. Í kjölfarið ákvað skilanefndin að óska eftir því að BG Holding færi í greiðslustöðvun í Bretlandi. Lýstu ekki 68 milljarða kröfu  BG Holding var mikilvægt félag í eignasafni Baugs  Kröfur í BG Holding nema 140 milljörðum króna  Skiptastjóri reynir að koma kröfunni að hjá Baugi Umsvifamikið félag BG Holding hélt um hluti Baugs í breskum smásölufyrirtækjum, þar á meðal House of Fraser. Önnur félög sem BG Holding átti hluti í voru: Iceland, Hamleys, Aurum og Jane Norman. Morgunblaðið/Golli Teflt um háar fjárhæðir » Gleymdist að lýsa 68 millj- arða kröfu BG Holding í þrotabú Baugs Group » Kröfurnar í þrotabú BG Hold- ing nema um 140 milljörðum króna » Kröfur í þrotabú Baugs nema 319 milljörðum króna » BG Holding átti m.a. hlut í Iceland, Hamleys og Aurum. » Skiptastjóri Lehman Brothers í Evrópu kom að vinnu við greiðslustöðvun BG Holding » Hermt er að endurheimtur upp í almennar kröfur þrotabús Baugs verði ekki mikið meiri en 1%. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi á búslóðum til flutnings milli landa, landshluta eða innanbæjar Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi. Stofnað árið 1981 Afgangur af vöruskiptum við útlönd í maímánuði nam aðeins 213 millj- ónum króna borið saman við 6,8 milljarða á sama tíma fyrir ári. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum sem Hagstofa Íslands birti í gærmorgun. Um er að ræða minnsta vöruskipta- afgang frá bankahruni, ef undan er skilinn janúar 2009, þegar halli var á vöruskiptum. Á það er bent í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka að það sem skýri þennan litla afgang er að skip Ísfélagsins, Heimaey VE-1, er inni í tölunum um innflutning og því var verðmæti innflutnings óvenjumikið af þeim sökum. Alls voru fluttar inn vörur í maí fyrir 56,6 milljarða króna, og þar af nam innflutningur flutningatækja 10,2 milljörðum og er verðmæti Heimaeyjar VE-1 dágóður hluti af þeirri fjárhæð. Á föstu gengi jókst innflutningur þar með um rúm 11% á milli ára. Á hinn bóginn stóð útflutningur í stað á milli ára. Gríðarlegur vöxtur var í útflutningi sjávarafurða, en alls nam útflutningsverðmæti þeirra 26,3 milljörðum í maí sem er aukning upp á tæp 38% á föstu gengi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Innflutningur Heimaey kemur til hafnar í Vestmannaeyjum. Skipið var helsta ástæða þess að afgangur á vöruskiptum var aðeins 213 milljónir. Minnsti vöruskipta- afgangur frá hruni  Heimaey setur strik í reikninginn Umsjónarmaður yfir greiðslu- stöðvun BG Hold- ing fyrir hönd Price- WaterhouseCooper, Tony Lomas, var skiptastjóri fjárfest- ingabankans Lehman Brothers í Evrópu og Enron í Evrópu, að því er segir í breskum fjölmiðlum. Þetta eru væntanlega þekkt- ustu þrotabú sögunnar. Upphaf fjármálakrísunnar miðast við gjaldþrot Lehmans Brothers. Enron þrotið SKIPTASTJÓRI HEIMS- ÞEKKTRA ÞROTABÚA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.