Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla • tré- eða ál/trégluggar og hurðir • hámarks gæði og ending • límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu • betri ending — minna viðhald • lægri kostnaður þegar fram líða stundir • Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla • hágæða álprófílakerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga GLUGGAR OG GLERLAUSNIR Byggðu til framtíðar með gluggum frá Idex Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Sautján ára ungmenni eiga í einna mestum vandræðum með að finna sumarvinnu en þau eru of gömul fyrir vinnuskóla sveitarfélaganna og hafa ekki náð sjálfræðisaldri, sem oftar en ekki er skilyrði fyrir því að vera ráðin í umsjónar- og leiðbein- endastörf. Á höfuðborgarsvæðinu hefur þó tekist að tryggja öllum sautján ára umsækjendum um bæjarvinnu störf í Mosfellsbæ, Garðabæ, Kópavogi og á Seltjarn- arnesi, og fjórðungi umsækjenda í Reykjavík, en fáir á þessu aldursári fá vinnu í Hafnarfirði og á Álftanesi. Af 480 umsækjendum fæddum 1995, verða 125 ráðnir í vinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar, en í fyrra, þegar Vinnuskólinn fékk aukafjárveitingu til að skapa störf fyrir sautján ára ungmenni, fengu um 220 þeirra vinnu yfir sumar- tímann. „Þessi hópur, 17 ára, hefur verið sá sem á erfiðast með að fá vinnu og er sá sem hefur langmest sótt í störfin hjá Reykjavíkurborg. Störf- in eru hins vegar þess eðlis að kraf- an er að þú sért orðinn sjálfráða og 20, eða jafnvel 22 ára, ef þú sækir um leiðbendendastörf,“ segir Gerð- ur Dýrfjörð, deildarstjóri upplýs- inga- og atvinnumála hjá Hinu hús- inu. Hún segir ástandið hafa verið nokkuð betra í fyrra en önnur undanfarin ár, en nú berist Hinu húsinu fjöldi símtala frá áhyggju- fullum foreldrum sem sjá fram á að krakkarnir hafi ekkert fyrir stafni yfir sumarið. Önnur úrræði hafi ver- ið reynd til að virkja krakkana en með misjöfnum árangri. Störf tengd ferðaþjónustu „Sumarið 2010 lögðum við tölu- verða vinnu í að undirbúa alls konar námskeið þar sem við sáum að at- vinnuleysi yrði vandamál það sum- arið en það voru mjög fáir sem skráðu sig og við þurftum að aflýsa fullt af námskeiðum. Þótt foreldr- arnir vilji virkja krakkana er það ekki endilega það sem þau sjálf upp- lifa sem það mikilvægasta. Þau vilja fá vinnu og aur,“ segir Gerður. Erfitt er að henda reiður á hversu margir í aldurshópnum fá sumar- vinnu yfirhöfuð en af þeim sem boð- in voru störf hjá Vinnuskólanum, af- þakkaði einn af hverjum fjórum eða fimm, og má leiða líkur að því að við- komandi hafi fengið vinnu ann- ars staðar. Gerður segist sjálf hafa gert sér vonir um að einhver fjöldi fengi vinnu tengda ferðaþjón- ustunni, t.d. á kaffihúsum og veitingastöðum. Önnur störf, eins og t.d. bygg- ingastörf, sem ungir strákar hefðu áður gengið í, hafi horfið í kreppunni. Hvorki nógu ung né gömul  Sautján ára ungmenni eiga jafnan í mestum vanda með að fá sumarvinnu  Foreldrar hafa áhyggjur af atvinnuleysi afkvæmanna  Vilja vinnu og aur Morgunblaðið/Kristinn Vinna unga fólksins Reykjavík er eina sveitarfélagið af átta á höfuðborg- arsvæðinu sem ekki býður 8. bekkingum vinnu í sumar. Ungur maður fæddur 1995, sem vill ekki koma fram undir nafni, hóf leitina að sumarvinnu í febr- úar en gafst upp á því að sækja um á netinu þegar hann fékk engin svör. Hann tók þá til þess ráðs að fara með ferilskrána á nokkra staði í hverfinu sínu og fékk þannig vinnu sem þjónn á veitingahúsi. „Það virkaði ekkert að sækja um á netinu, maður fékk engin viðbrögð og ég nennti ekki að bíða og verða svo seinn með þetta,“ útskýrir pilturinn og segir það skipta sköpum að vera snemma á ferðinni í at- vinnuleitinni. Hann segir að misjafnlega vel hafi gengið hjá félögum sínum að fá vinnu. Einhverjir hafi feng- ið vinnu við afgreiðslu og aðrir í fiski en þá hafi sumir þeirra sem stunda íþróttir ákveðið að sinna þeim í sumar. Hvað vinnuna varðar seg- ir hann kaupið ekki endi- lega skipta sig mestu máli, heldur starfs- reynsluna. Gekk á milli fyrirtækja ATVINNULEIT Gerður Dýrfjörð Barnaheill og hjólreiðakeppnin Wow Cyclothon standa fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga dagana 25. maí til 11. júní. Hjólunum verður safnað á endur- vinnslustöðvum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um landið allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Hjól- in eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hjólin verða gerð upp af sjálf- boðaliðum undir stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum og afhent af mæðrastyrksnefndum að lokinni hjólreiðakeppninni WOW Cyclo- thon, 22. júní næstkomandi. Hinn 16. júní geta allir sem vilja lagt hönd á plóg við að koma hjólunum í stand áður en þau fara í dreifingu. Þá koma saman sérfræðingar í reiðhjólaviðgerðum, liðin sem taka þátt í WOW Cyclothon, sjálfboða- liðar og fleira fólk sem vill leggja söfnuninni lið. Á facebooksíðu hjólasöfnunarinnar getur fólk sett inn myndir af sér afhenda hjólin á endurvinnslustöðvum og komist þannig í verðlaunapott þar sem einn heppinn vinningshafi vinnur flug fyrir fjóra með WOW air. Félagar Stormur Sær Magnússon og hund- urinn Haukur á athafnasvæði Hringrásar. Safna notuðum reiðhjólum fyrir þá sem engin eiga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.