Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 35
starfrækt síðan með rekstur í sinni sérgrein, varð tryggingayfirtann- læknir hjá Tryggingastofnun ríkisins frá 1996-2008 og tryggingayfirtann- læknir hjá Sjúkratryggingum Ís- lands frá 2008. Reynir var gjaldkeri félags tann- læknanema 1977-78, formaður félags tannlæknanema 1979-80 og var for- maður sérmenntaðra tannlækna um skeið. Á kafi í KR-starfi um árabil Reynir sat í stjórn knattspyrnu- deildar KR um skeið, var formaður hússtjórnar KR, sat í aðalstjórn KR um árabil og í mannvirkjanefnd KSÍ. Hann segist hafa dregið mikið úr KR-starfinu á allra síðustu misserum enda taki maður svona klúbbastörf með trukki í tiltekinn tíma og slaki síðan á: „Sú var tíðin að ég fylgdi meistaraflokki á alla leiki, hvert á land sem var, sótti ótal fundi á vegum félagsins og stóð í alls konar stússi. En nú hef ég tekið mér frí þótt auð- vitað fylgist maður alltaf með sínu liði. Ég er samt ekki sestur í helgan stein. Við erum með stóran garð hér á Kvisthaganum sem þarf töluverða umhirðu. Þá þarf hundurinn okkar sinn tíma, fallegur stór sleðahundur af gerðinni Alaskan Malamute. Þetta er eins og hálfs árs tík sem þarf vita- skuld sína umhirðu og umhugsun. Ég fer t.d. með hana í góðan göngutúr á hverju kvöldi en það er auðvitað mjög heilsusamlegt fyrir okkur bæði. Ég er enginn sérstakur lestrar- hestur, les svona allt og ekkert og töluvert léttmeti af ýmsu tagi en er enginn dellukarl þegar kemur að lestri. Það er kannski helst að ég hafi gaman af náttúrufræðilegu efni og nú les ég töluvert um hunda.“ Fjölskylda Reynir kvæntist 14.6. 1975 Ingi- björgu Georgsdóttur, f. 7.4. 1953, barnalækni. Hún er dóttir Georgs Lúðvíkssonar, f. 25.4. 1913, d. 20.2. 1979, framkvæmdastjóra Ríkisspít- alanna í Reykjavík, og Guðlaugar Láru Jónsdóttur, f. 11.7. 1920, d. 3.5. 1982, húsmóður og ritara. Börn Reynis og Ingibjargar eru Sindri Reynisson, f. 13.5. 1978, verk- fræðingur, búsettur í Svíþjóð en kona hans er Linda Kristín Sveins- dóttir verkfræðingur og eru börn þeirra Sindri Dagur og Elín Lilja; Sunna Björg Reynisdóttir, f. 26.12. 1985, verkfræðingur, búsett í Reykjavík; Jón Reynir Reynisson, f. 18.8. 1992, menntaskólanemi; Elín Lára Reynisdóttir, f. 27.7. 1994, menntaskólanemi. Dóttir Reynis frá því áður er Sess- elja Magdalena Bigseth, f. 27.6. 1975, rithöfundur, búsett í Noregi en mað- ur hennar er James Baker og er dótt- ir þeirra Matthilda Baker. Systkini Reynis eru Þóra Björk Jónsdóttir, f. 2.3. 1955, kennari og starfsmaður við Fræðsluskrifstofuna á Sauðárkróki; Ingimar Örn Jónsson, f. 3.10. 1963, netsérfræðingur hjá Reiknistofnun Háskóla Íslands. Foreldrar Reynis: Jón Ingimars- son, f. 27.10. 1923, d. 2.9. 1989, lög- fræðingur og skrifstofustjóri í heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, og k.h., Elín Hróbjört Guðmannsdóttir, f. 25.11. 1928, tann- læknir. Úr frændgarði Reynis Jónssonar Bjarni Einarsdóttir húsfr. á Ísafirði Sigurgeir Kristjánsson fiskmatsm. á Ísafirði Elín Jónsdóttir húsfr. í Lambhúskoti Hróbjartur Jónsson b. í Lambhúskoti Lárus Þorsteinsson b. á Tunguhálsi í Skagaf. Sesselja Guðmundsdóttir húsfr. í Hörgsholti Jón Jónsson b. í Hörgsholti Reynir Jónsson Jón Ingimarsson lögfr. og skrifstofustj. Elín H. Guðmannsdóttir tannlæknir Guðmann Hróbjartsson vélstj. í Rvík. Þorgerður Sigurgeirsdóttir húsfr. í Rvík. Ingimar Jónsson pr.og skólastj. í Rvík. Elínborg Lárusdóttir skáldkona á Mosfelli Þorbjörg Bjarnadóttir húsfr. á Skatastöðum Anna Sveinsdóttir húsfr. á Kirkjubæ Fjalar Sigurjónsson prófastur á Kálfafellsstað Sindri Sigurjónsson skrifstofustj. Frosti Sigurjónsson læknir Máni Sigurjónsson organisti Þórey Bjarnadóttir húsfr. á Tunguhálsi Sigurgeir Guðmannsson fyrrv. form. ÍBR Gunnar Guðmannsson gullaldarliðsm í KR og landsliðsm. GuðmundurHrjóbjartsson vélsm. í Hafnarf. Elínbjört Hróbjartsdóttir húsfr. í Hafnarf. Kristbjörg Guðmundsd. húsfr. í Hafnarf. Kristjana G. Kristjánsd. húsfr. í Rvík Sigurður Sigurjónss. leikari Helgi Gíslason myndhöggvari Yngsti fjölskyldumeðlimurinn Reynir með tíkina sem fer með hann í göngutúr á hverju kvöldi. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 85 ára Kjartan Jensson María Guðrún Steingrímsdóttir Ólína Hinriksdóttir 80 ára Filippus Guðmundsson Guðný Ósk Friðriksdóttir María Auður Guðnadóttir 75 ára Bjarni Gíslason Guðfinna Dóra Ólafsdóttir Guðmar Guðjónsson Hólmfríður María Sigurðardóttir Jóhanna Jónasdóttir Sigurlína Konráðsdóttir Steinunn Sigurðardóttir 70 ára Halldór Margeirsson Herbert Marinósson 60 ára Eygló Lilja Ásmundsdóttir Gunnar Bragi Jónsson Halldór T. Svavarsson Jakob Jónsson Jóhanna Sigríður Magnúsdóttir Jóhannes Haraldur Pálsson Jóna Pálína Matthíasdóttir Kjartan Þór Arnþórsson Kolbrún Guðjónsdóttir Reynir Jónsson Sigrún Pálína Magnúsdóttir Sigurlaugur Skúli Bjarnas. Úlfar Hauksson Þórður Björnsson 50 ára Alda Sigurjónsdóttir Anna María Ingadóttir Anna María Ragnvalds- dóttir Fernando Manuel M.B. Simoes Frosti Hreiðarsson Gísli Þór Þórhallsson Gróa María Einarsdóttir Hafliði Gunnar Sigurðsson Helgi Bjarni Steinsson Hólmfríður M. Sigurðard. Jamil Jamchi Jóhann Magnús Kristinss. Jón Gunnar Bergs Jón Trausti Halldórsson Margrét Runólfsdóttir Svanhildur Einarsdóttir 40 ára Anna Magnúsdóttir Ashura Haidhuru Ramadhan Bozena Harasimczuk Fanney Steinunn Sigurðardóttir Guðmundur Jón Sigurðs- son Hörður Sigurjónsson Jón Óskar Ísleifsson Júlía Embla Katrínardóttir Ómar Einarsson Sif Beckers Gunnsteinsdóttir Sigríður Herdís Ásgeirsdóttir Sólveig Guðmundsdóttir Sverrir Þór Sverrisson 30 ára Bryan Allen Smith Brynjar Ævar Guðlaugsson Eyrún Ösp Skúladóttir Hulda L. Kristmannsdóttir Kristín Birta Jónsdóttir Ósk Ómarsdóttir Ragnheiður Hilmarsdóttir Sigurður Freyr Kristmundsson Valborg Steingrímsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Birgir fæddist í Svíþjóð og ólst upp í Ólafs- vík þar sem hann er bú- settur. Hann vinnur sem verkstjóri hjá Snæfellsbæ. Maki Heiðrún Hulda Hall- grímsdóttir, f. 1986, starf- ar á dvalarheimilinu Jaðri. Börn Sara Ýr, f. 2009. Foreldrar Margrét Sigríð- ur Birgisdóttir, f. 1965, starfar í Valafelli, Tryggvi Konráðsson, f. 1960, og Ævar Þór Sveinsson, f. 1963. Birgir Tryggvason 30 ára Eyrún Ösp ólst upp á Tannstaðabakka í Hrúta- firði. Hún er sauðfjárbóndi í Hafrafellstungu í Öxar- firði. Eyrún lauk BS-prófi í búvísindum frá Bænda- skólanum á Hvanneyri. Maki Bjarki Fannar Karls- son, f. 1980, bóndi. Stúlka Bjarkadóttir, f. 24. mars 2012. Foreldrar Ólöf Ólafsdóttir, f. 1956 og Skúli Einarsson, f. 1955, bændur á Tann- staðabakka. Eyrún Ösp Skúladóttir Þorvaldur Thoroddsen náttúru-fræðingur fæddist 6. júní 1855í Flatey á Breiðafirði. Hann var sonur Jóns Thoroddsen skálds og Kristínar Ólínu Þorvaldsdóttur Sí- vertsen. Þorvaldur giftist Þóru Pét- ursdóttur sem var meðal fyrstu kvenna er fengust við málaralist, ævi- saga hennar, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar 1847-1917, kom út 2010, eftir Sigrúnu Pálsdóttur. Þau eignuðust eina dótt- ur, Sigríði, en hún lést 15 ára gömul. Þorvaldur fluttist til Reykjavíkur í nám og ólst upp hjá móðursystur sinni, Katrínu Þorvaldsdóttur, og Jóni Árnasyni, þjóðsagnasafnara og for- stöðumanni stiftbókasafnsins. Segja má að fóstrið hafi lagt grunn að fræði- mennsku hans því þar kynntist hann ungur handritalestri og var vel lesfær á helstu erlend tungumál. Þorvaldur varð stúdent frá Lærða skólanum í Reykjavík árið 1875 og hélt í háskólanám til Kaupmanna- hafnar og lauk prófi í náttúrufræði ár- ið 1880. Hann kenndi í Möðruvalla- skóla og Latínuskólanum til 1899, en flutti þá til Kaupmannahafnar og bjó þar alla tíð. Þorvaldur var mikilvirkur vísinda- maður og vann brautryðjandastarf í rannsóknum og kortlagningu á öræf- um og óbyggðum Íslands. Hann var með þeim fyrstu á eftir Bjarna og Eggerti sem ferðuðust um allt Ís- land og skrifaði um það. Afraksturinn er meðal annars grundvallarritin tvö, Ferðabók (1913-1915, 1958) og Lýsing Íslands (1908-1911), sem kom út í tveimur bindum, yfir þúsund blaðsíður. Síð- ari tvö bindin í Lýsingu Íslands, um landbúnað, komu út 1919-1922. Landfræðisaga Íslands (1892-1904) er nú, meir en hundrað árum síðar, sígilt verk og verður seint oflofuð. Þá skrifaði hann fjölda greina og ritgerða um náttúruvísindi sem birt- ust meðal annars í dönskum vísinda- ritum og Andvara. Eftir hann liggja á fjórða tug titla sem voru þýdd á fjölmörg tungumál. Þá ritaði hann ævisögu tengdaföður síns Pjeturs biskups, og endurminningar hans Minningabók (1922) komu út að hon- um látnum. Þorvaldur dó árið 1921. Merkir Íslendingar Þorvaldur Thoroddsen 30 ára Kristín Birta fædd- ist í Reykjavík og ólst upp í miðbænum. Hún er nú búsett á Selfossi og starf- ar sem þjónn á Hótel Rangá og er nemi í ensku við Háskóla Íslands. Maki Sigurður Ágústsson, f. 1982, kokkanemi á Hót- el Rangá. Börn Sesselja Sól, f. 1999, Elín Krista, f. 2001, Ágúst Ingi, f. 2007 og Eva Dagbjört, 2011, Sigurðar- börn. Kristín Birta Jónsdóttir V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is Múlalundur - fyrir betri framtíð ALLT FYRIR SKRIFSTOFUNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.