Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 2
BAKSVIÐ Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Tillögur að atvinnustefnu Reykjavík- urborgar voru samþykktar á borgar- stjórnarfundi í gær. Fulltrúar Sjálf- stæðisflokks í borgarstjórn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna og gagnrýna harðlega að svo mikilvæg stefnu- mörkun hafi ekki fengið eðlilega lýð- ræðislega umfjöllun. Þeir benda á að ekki hafi fulltrúar allra flokka fengið að koma að vinnunni. Þess í stað skip- aði Jón Gnarr borgarstjóri starfshóp eins borgarfulltrúa og sex embættis- manna. Borgarfulltrúinn sem skipað- ur var í starfshópinn er Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og varaformaður Samfylkingar. Starfs- hópnum var svo falið, án samþykkis borgarstjórnar, að vinna að tillögum að atvinnustefnu. Stuttur líftími? „Borgarstjóri skipar þennan starfshóp um mitt síðasta ár án vitn- eskju borgarstjórnar eða -ráðs. Hann upplýsti ekki borgarráð formlega um það fyrr en í febrúar á þessu ári,“ seg- ir Hanna Birna Kristjánsdóttir, odd- viti Sjálfstæðisflokks, en þá var starfshópurinn kominn á lokastig vinnu sinnar. Hanna Birna segir það ljóst að borgarstjóri verði að svara fyrir það hvers vegna hann telur sig geta skip- að stefnumótandi hópa án samþykkis borgarstjórnar. „Ítrekað hafa verið gerðar athugsasemdir vegna þessa en svör borgarstjóra verið heldur fá,“ segir Hanna Birna og bendir á að þegar atvinnustefna borgarinnar er gerð með þessum hætti hljóti at- vinnulíf að efast um gildi hennar. „Þegar þetta er ekki unnið með að- komu allra þá auðvitað hljóta menn að velta því fyrir sér hvort þetta plagg lifir lengur en þessi meirihluti.“ Minnir á stefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðismenn benda á að ný- samþykkt atvinnustefna borgarinnar sé í meginatriðum samhljóða ný- kynntri atvinnustefnu ríkisstjórnar. Segja þeir bæði áherslur og mistök vera þau sömu í báðum stefnum. „Vinnunni var hagað þannig að vara- formaður Samfylkingar, sem skrifað hefur atvinnustefnu ríkisstjórnarinn- ar, nálgast þetta verkefni eins og hann sé að skrifa einhvern undirkafla í stefnu ríkisstjórnar,“ segir Hanna Birna og bendir á að alla viðspyrnu vanti gegn þeim aðgerðum sem ríkis- valdið hefur lagt á atvinnulíf í Reykja- vík. Segir hún enga tilraun vera til öfl- ugrar sóknar í atvinnumálum. „Krafa atvinnulífsins er sú að Reykjavík stilli sér upp með fólkinu og fyrirtækjun- um og því hefði megininntak stefn- unnar átt að vera; lægri álögur og fleiri tækifæri. Okkur finnst í þessu máli, sem og svo mörgum öðrum, að meirihlutinn í Reykjavík taki afstöðu með ríkisstjórninni en gegn Reykja- vík,“ segir Hanna Birna. Ekki náðist í Jón Gnarr borgar- stjóra við vinnslu fréttarinnar. Undirkafli í stefnu ríkisstjórnarinnar  Hanna Birna segir enga von felast í stefnu meirihlutans Morgunblaðið/Ernir Fundur Borgarstjóri skipaði starfshóp án vitneskju borgarstjórnar. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Mér var boðið af Skúla Mogensen, hann er vinur minn. Og hann bauð mér og konu minni að fara þangað. Við vorum þarna í einkaerindum,“ segir Einar Örn Benediktsson, kjör- inn borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður menningar- og ferða- málaráðs Reykjavíkurborgar. Einar Örn og kona hans, Sigrún Guðmundsdóttir, voru meðal þeirra sem boðið var til Parísar í jómfrú- ferð flugfélagsins WOW air síðast- liðinn fimmtudag. Tilkynnti ferðina áður Einar Örn segist ekki hafa farið í ferðina á vegum borgarinnar og því sé ekki um að ræða brot á siða- reglum. Enn fremur bendir hann á að WOW air sé ekki í neinum við- skiptum við Reykjavíkurborg. „Ég kom aldrei þarna fram sem fulltrúi Reykjavíkurborgar. Ég var þarna sem Einar Örn og hagaði mér sem slíkur,“ segir Einar Örn og bætir við að fyrir ferðalagið hafi hann tekið niður hin pólitísku gler- augu og sett upp þau listrænu. „Ég geri skýran greinarmun á hver er kjörinn fulltrúi og hver er Einar Örn. Ég er í vinnunni frá 9-5 og þegar ég kem heim þá er ég ekki kjörinn fulltrúi.“ Einar Örn segist hafa tilkynnt fyrirfram að hann væri að fara í umrædda flugferð og þær upplýsingar muni birtast á heimasíðu borgarinnar. „Ég vildi láta vita að ég væri að fara í þessa ferð og að ég væri að fara sem ein- staklingur í mínum tíma,“ segir Einar Örn og bætir við að hann hafi greitt ríflega 6.000 kr. fyrir hvort flugsæti. Tveir embættismenn borgarinnar þáðu einnig þessa ferð; Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menning- ar- og ferðamálasviðs, og Sif Gunn- arsdóttir, forstöðumaður Höfuð- borgarstofu. Kjörinn borg- arfulltrúi þáði boð í flugferð  Skildi pólitísku gleraugun eftir heima Ljósmynd/Sigurjón Ragnar WOW Skúli Mogensen, aðaleigandi flugfélagsins WOW air, þjónar Einari Erni Benediktssyni, borgarfulltrúa, og konu hans um borð í flugvélinni. Siðareglur fulltrúa » Í 5. gr. siðareglna kjörinna fulltrúa Reykjavíkurborgar segir að kjörnir fulltrúar þiggi ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönn- um eða þeim, er leita eftir þjónustu Reykjavíkurborgar nema um sé að ræða óveruleg- ar gjafir. Erlendum ferðamanni var bjargað af Skeiðarárjökli í gær af þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar en ekki er talið að hann sé mikið slasaður. Boð frá gervihnattaneyðarsendi bárust stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands kl. 13.34. Var sendirinn þá í austanverðum Skeiðarárjökli. Fljót- lega var tekin ákvörðun um að senda TF LIF, þyrlu Gæslunnar, á staðinn með sérþjálfaða björg- unarsveitamenn um borð. Sýndi hárrétt viðbrögð Ferðamaðurinn ákvað að virkja neyðarsendi sinn, sem hann bar á sér, eftir að hafa lent í vandræðum og villst á svæðinu. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að maðurinn hafi brugðist hárrétt við ástandinu þegar hann óskaði eftir aðstoð björgunar- manna. Á leið á vettvang kom í ljós að þyrla Gæslunnar gæti ekki lent þar sem maðurinn var og var því gripið til þess ráðs að lenda í Freysnesi og láta út björgunarsveitamennina til að létta þyrluna. Var það gert til að hífa mætti ferðamanninn örugg- lega um borð. Björgunarsveitir frá Höfn, Kirkjubæjarklaustri og Öræfum voru einnig sendar til aðstoðar en þeim var snúið við. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var maðurinn með sérstakan PLB- neyðarsendi á sér en umræddur sendir er skráður í Ástralíu. Erlendum ferða- manni bjargað  Sendi hjálparboð með neyðarsendi „Þarna erum við að setja stefnu, skilgreina aðgerðir á níu lykilsviðum sem lúta að atvinnumálum og í raun skil- greina hlutverk borgarinnar þegar kemur að því að efla atvinnulíf í borginni til framtíðar,“ segir Dagur B. Egg- ertsson, formaður borgarráðs. Hann segir stefnu Reykjavíkurborgar taka á stefnu- þáttum, einstökum verkefnum, skipulagsmálum og fjár- festingum. Með fjárfestingum er annars vegar átt við hvernig unnt er að laða að innlendar jafnt sem erlendar fjárfestingar til borgarinnar og hins vegar hvernig stefna Reykjavíkurborgar á að vera þegar kemur að eig- in fjárfestingum. Eitt höfuðmarkmiðanna segir Dagur vera að draga úr at- vinnuleysi og auka fjölbreytni í atvinnulífi og kveðst hann vongóður um að tilsettum árangri verði náð en hann segir að fundað hafi verið með lykilhagsmunaaðilum íslensks atvinnulífs við gerð stefnunnar. Hefur trú á atvinnustefnunni FORMAÐUR BORGARRÁÐS Dagur B. Eggertsson Er garðurinn í órækt? Við höfum lausn á því! Vönduð vinnubrögð, áratuga reynsla og umfram allt hamingjusamir viðskiptavinir Garðaþjónusta Reykjavíkur Eiríkur, sími 774 5775 Þórhallur, sími 772 0864 Bresk kona sem stórslasaðist er hún hrapaði ofan í gil skammt inn- an við Seljalandsfoss 28. maí sl. er á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Hún dvelur enn á sjúkrahúsinu en verður vænt- anlega útskrifuð fljótlega og flutt á spítala í heimalandi sínu. Konan var í gönguferð með hópi ferðamanna þegar hún hrapaði 5-6 metra niður í gilið. Hún brotnaði á báðum fótum og fékk fleiri áverka. Konan var flutt með sjúkrabíl að Þjórsá þar sem þyrla Landhelgis- gæslunnar sótti hana og flutti á Landspítalann. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Flutt á spítala í heimalandinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.