Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is E itt það fyrsta sem al- menningur sker nið- ur í kreppu er til að mynda myndlist og önnur slík lúxusvara. Ég varð því að hugsa minn gang þar sem ég hafði afkomu mína nær eingöngu af myndlist. Ég ákvað því að snúa vörn í sókn og lagði megináherslu á að byggja upp hönnunarþátt starfseminnar sem hafði byrjað ári áður með til- komu gjafakorta og gluggafilma,“ segir Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, listamaður og hönnuður, í samtali við Morgunblaðið. Í dag er verkstæðið, sem hýsti eitt sinn eingöngu myndlist og grafíkverkstæði, undirlagt und- ir vöruþróun og lager en einnig er í húsnæðinu lítil verslun. „Orkan fer nú í annars konar sköpun en áður, en markmiðið hefur frá upp- hafi verið að setja á markað vand- aða hönnunarlínu sem byggð er á verkum mínum úr myndlistinni. Með þeim hætti fá verkin sitt framhaldslíf og ég nýjan starfs- vettvang.“ Stefnir á erlenda markaði Sveinbjörg segir að hönnunarvörum sínum hafi verið ákaflega vel tekið af landsmönnum og hún stefni að því að næstu skref fyrirtækisins verði stigin á erlendum mörkuðum. „Vissulega er það öðruvísi að vera komin í svo náið samhengi við markaðslögmálið en það er engu að síður mjög skapandi og skemmtilegt að vinna að heild- stæðri hönnunarlínu sem á erindi bæði hér heima og erlendis. Tölu- verð vinna hefur þegar verið unn- in að því er varðar erlenda mark- aðssókn en það ævintýri er rétt í startholunum,“ segir Sveinbjörg. Hún hefur þegar tekið þátt í sýningum erlendis og eru fleiri í farvatninu. Samhliða undirbúningi við sýningar er verið að leita að söluaðilum erlendis og því fer um- talsverður tími í markaðsvinnu á erlendri grundu. Starfsemin hefur vaxið hratt undanfarin ár og með stækkun fyrirtækisins eykst starfs- mannaþörfin mikið. Nú þegar starfa tveir starfsmenn í fyrirtækinu í fullu starfi auk tveggja annarra starfs- manna í hlutastarfi og verkefnin eru fjölbreytt. „Það kom mér á óvart hvað mörg verkefni falla til í jafn litlu fyrirtæki og okkar. Það þarf að líta í svo mörg horn. Halda þarf utan um söluna, lagerinn, fram- leiðsluna og hönnun nýrra afurða. En einnig má ekki gleyma mark- aðsmálum, bókhaldi og öðrum daglegum verkefnum. Svo starf- semin þarf að vera sveigjanleg og starfsmennirnir einnig. Þekking og sérsvið hvers starfsmanns er því mismunandi og saman mynda þeir gríðarlegan viskubrunn innan fyrirtækisins,“ segir Sveinbjörg. Ann náttúrunni „Fjármagn liggur heldur ekki á lausu á tímum sem þessum en okkur hefur tekist að reka fyrir- tækið á sölu á innlendum markaði fyrst og fremst en stefnum á að afla fjárfesta í framtíðinni.“ Þegar spurt er hvað skapi grunninn, svarar Sveinbjörg: „Góðar viðtökur Íslendinga sem og gott og náið samstarf við versl- anir eins og Epal, Kraum, Hrím, Dúku, Garðheima og 18 rauðar Sveinbjörg blés til sóknar eftir hrunið Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, myndlistarmaður og hönnuður á Akureyri, sneri sér í mun meira mæli en áður að því að hanna vörur eftir efnahagshrunið hér á landi árið 2008. Hún skynjaði að snúa yrði vörn í sókn. Hjartgóð Plexíhjörtu Sveinbjargar eru litrík og falleg. Þeir sem hlusta mikið á tónlist lenda reglulega í því að vera komnir með leið á öllum uppáhaldshljómsveit- unum og lögunum og vilja bæta nýj- um á lagalistann. Það getur verið erf- itt að finna nýja tónlist við sitt hæfi og sumir láta sér nægja að hlusta á útvarpið til að heyra ferskustu tón- listina. Á Grooveshark.com er bæði hægt að hlusta ókeypis á erlenda tónlist og búa til sína eigin persónulegu síðu. Mögulegt er að vista lagalista með lögum í uppáhaldi en eitt það snið- ugasta við síðuna er að vilji notand- inn finna nýja tónlist til að hlusta á velur síðan lög til að hlusta á út frá þeim lögum sem þú hefur áður valið. Síðan reynir því að lesa tónlistar- smekk viðkomandi og gerir sitt besta til að geðjast notandanum sem velur eftir hlustun hvort lögin falli vel að hans smekk. Vefsíðan www.grooveshark.com Reuters Kraftmikil Aðdáendur söngkonunnar Adele fengju eflaust uppástungur um að hlusta á Beyoncé Knowles eða hljómsveitina Florence and the machine. Finndu þér ný uppáhaldslög Um helgina verður Menningarveisla Sólheima formlega opnuð en hér er á ferðinni menningarhátíð sem stendur yfir í sumar. Alla laugardaga verða haldnir tónleikar í Sólheimakirkju en meðal þeirra sem koma fram eru Valgeir Guðjónsson, Ellen Kristjáns- dóttir, Ragnar Bjarnason, Þorgeir Ástvalds og bjöllukór og einleikarar úr tónstofu Valgerðar. Einnig verður boðið upp á spennandi fræðslufundi á vegum Sesseljuhúss en um helgina verður gestum til dæmis boðið í fuglaskoðun. Dagskrá Menningar- veislu Sólheima má finna á vefsíð- unni www.solheimar.is. Endilega... ...farið í menn- ingarveislu Morgunblaðið/RAX Sólheimar Margt um að vera. „Það var svo margt sem við sökn- uðum frá Finnlandi,“ segir Maarit Kaipainen sem er þessa dagana í óða- önn að undirbúa opnun finnsku hönn- unarbúðarinnar Suomi PRKL! Design ásamt vinkonu sinni Satu Rämö. „Fyrst datt okkur í hug að opna búð fyrir ferðamenn en svo föttuðum við að það vantar alveg finnska búð í Reykjavík. Það var hvergi hægt að fá allt það mikilvægasta frá Finnlandi eins og til dæmis súkkulaði,“ útskýrir Maarit sem hefur búið hér á landi í sex ár en Satu hefur einnig verið mik- Finnsk hönnunarverslun opnuð Vilja fullkomna borgina með finnskum hönnunarvörum Smekklegar Maarit og Satu opna á föstudaginn finnska hönnunarverslun. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.