Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú lendir ekkert í vandræðum þó að þú viðurkennir að þú hafir haft rangt fyrir þér. Aðalatriðið er að þú talir svo skýrt að þeir geti gert upp hug sinn. 20. apríl - 20. maí  Naut Skyndilega er eins og allir leiti til þín um svör við þeim spurningum sem á þeim brenna. Eitthvað gæti virst ábatasamara en það er í raun. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu ekki óttann við nýjungar blinda þig svo að þú sitjir af þér hagstæð tækifæri. Varðandi leynilegt áhugamál sem þú hefur ekki sinnt er núna rétti tíminn til þess að leggjast í rannsóknir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Finndu út hvað það er sem þú raun- verulega vilt í þessu lífi. Sumt er þannig að þú verður að hrökkva eða stökkva. Sýndu því þolinmæði og stattu storminn af þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú skilur ekki sársaukann sem fjöl- skyldumeðlimur er að upplifa þessa dagana, því þú hefur ekki upplifað hann í þessu lífi. Njóttu þess að vinna að listsköpun og að leika við börnin. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki gefast upp þótt þig reki í strand. Hvað sem því líður þarftu ekki staðfestingu á því til hvers aðrir ætlast af þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er rétti tíminn til þess að tala við samstarfsfólk um allt það sem þú telur áríð- andi. Vertu því víðsýnn og gefðu skoðunum annarra gaum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Viðræðum við foreldri eða yf- irvald miðar ekkert í dag. Hún fer þangað sem hana lystir og er öðrum til ánægju þar sem hún fer. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þeir eru margir sem vilja ná fundi þínum til skrafs og ráðagerða. Einbeitið ykk- ur að því sem þið eigið sameiginlegt, ekki hvað skilur ykkur að. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú finnur hjá þér hvöt til þess að tala opinberlega fyrir hönd annarra. Mundu að þú ert ekki alvitur og á öðrum stað og tíma kann dæmið að snúast við. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þótt gaman sé að breyta til er fá- ránlegt að gera það breytinganna vegna. Er ekki betra að halda friðinn? 19. feb. - 20. mars Fiskar Já, já, þú ert ekki að eyða deginum í það sem þig langar til. Svona tækifæri gefast ekki oft og nýttu því daginn til hins ýtrasta. Minntu þig stöðugt á það. Bjarni Stefán Konráðsson var áleið um Vatnsdalinn þegar fullt tungl kveikti hugmynd að stöku: Yfir Vatnsdal eigrar máni, eins og sé í fríi. Hann er alveg eins og bjáni á öskufylleríi. Hallmundur Kristinsson sendi Sigrúnu Haraldsdóttur kveðju á af- mælinu í gær: Eitt ár af mörgum ætla menn við aldur þinn hafi bæst. þótt tæplega nái þér Ellin enn, ættirðu að gæta þín næst! Sigrún svaraði að bragði: Þá Ellinnar er návist nem ég naumast fer að ala sút. Ég kerlingu með kústi lem og kasta henni síðan út. Og hún orti á fésbókarsíðu Að- alsteins L. Valdimarssonar „með tví- burakveðju“: Töltu um lautir, lund og hlíð léttur mjög í spori. Vertu innra alla tíð eins og lamb á vori. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af afmæli og fullum mána Ljósmynd/Bjarni Stefán Konráðsson Fullt tungl kveikti andagiftina á ferð um Vatnsdalinn. G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d ÉG VAR HRIFINN AF ÞESSUM HRINGITÓNI! TREYSTU MÉR, ÉG GERÐI HEIMINN AÐ BETRI STAÐ LJÓTA RUGLIÐ AÐ LEYFA SÉR AÐ VERÐA SVONA ÁSTFANGINN ÉG HÉLT AÐ ÉG GÆTI GLEYMT HENNI MEÐ ÞVÍ AÐ BORÐA BARA NÓGU MIKIÐ ÉG MUN ALDREI GLEYMA HENNI. EN ÞAÐ LÍF, MAÐUR REYNIR AÐ ELTAST VIÐ HAMINGJUNA OG HVAÐ SKILUR ÞAÐ EFTIR SIG? SÁRAR MINNINGAR OG SPIK TALAÐU HÆRRA HRÓLFUR, ÉG HEYRI EKKI HVAÐ ÞÚ SEGIR!! HENTU SKÓFLUNNI UPP UM STROMPINN SVO ÉG GETI REYNT AÐ GRAFA FRÁ DYRUNUM ÞETTA ER EKKI SANNGJARNT! HUNDAR ELDAST MIKLU HRAÐAR EN MANNESKJUR HVERSU GAMALL ERT ÞÚ FÉLAGI? ÉG TEK AFTUR ÞAÐ SEM ÉG SAGÐI EITT ÁR Víkverji er bimms yfir veðurblíð-unni undanfarna daga. Sól skín í heiði dag eftir dag og duttlungar ís- lensks veðurfars virðast horfnir út í veður og vind. Fólk þvælist um létt- klætt, hjólar og hleypur á stuttbuxum og bærinn er fullur af fólki og ætli menn að fá sæti utan dyra þurfa þeir að bíða eftir að losni. Víkverji veit auðvitað að ef eitthvað er of gott til að vera satt þá er það sennilega ekki satt og þetta veðurblíðukast mun líða hjá rétt eins og góðærisbólan, sem einnig var of góð til að vera sönn, þótt freist- andi væri að telja sér trú um annað. x x x Víkverji opnaði fyrir útvarpið semhann sat í bíl á mánudagskvöld og heyrði þá í brandarakarli, sem krítaði liðugt á ensku. Maðurinn var reyndar ósköp vinalegur, en ekkert sérlega fyndinn. Þegar hlé varð á máli hans skaut íslenskur þulur inn orði og orði, sennilega til að uppfylla skilyrði um að íslenskir ljósvaka- miðlar láti ekki dagskrá á útlensku renna óhindrað og afskiptalaust út í eterinn. x x x Víkverji áttar sig á því að auðvitaðgetur hann slökkt á viðtækinu ef þar er eitthvað sem honum líkar ekki eða skipt yfir á aðra rás, en honum finnst þó kyndugt að uppi á Íslandi þar sem flestir láta eins og titlatog sé hégómi einn (ekki er reyndar allt sem sýnist í þeim efnum því að umfjöllun um kóngafólk virðist gríðarlega vin- sæl hér á landi) skuli ríkisfjölmiðill sjá ástæðu til þess að verja ein- hverjum klukkustundum í beina út- sendingu hátíðardagskrár í tilefni af því að eðalborinn þjóðhöfðingi skuli hafa verið lengi við völd. x x x Með þessu vill Víkverji þó ekkireka hornin í Elísabetu Bret- landsdrottningu, sem hefur verið far- sæl í embætti og verðskuldar góðar óskir. 60 ár við völd eru drjúgur tími. Vilji menn fá íslenskt samhengi jafn- gildir það því að Ólafur Ragnar Grímsson sæti á Bessastöðum í ellefu kjörtímabil til viðbótar. Hátíðardag- skrá af því tilefni yrði örugglega út- varpað beint í London. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: En sonurinn sagði við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himn- inum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. (Lúk. 15, 21.) ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG! GLÆSILEGUR VINNUFATNA ÐUR MIKIÐ ÚRVAL Öllum þykir okkur mikilvægt að finna til öryggis í lífinu. Dynjandi hefur verið leiðandi á sviði öryggisvara síðan 1954. Dynjandi örugglega fyrir þig!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.