Morgunblaðið - 06.06.2012, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Þjónustum allar gerðir ferðavagna
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is • Opnunartími verslunar í sumar: 8–18 virka daga, 10-14 á laugardögum
Tímapantanir
í síma 564 0400
Gott verð,
góð þjónusta!
Neyslu rafgeymir
fyrir ferðavagna
33.900 kr.
Umboðsaðilar fyrir
Truma & Alde hitakerfi
Tilboð áTruma E-2400
Gasmiðstöð
159.900 kr. á Mover undir hjólhýsi
249.900 kr.
Tilboð
Tilboð
Truma Ultraheat - 220V
Rafhitun íTruma ofna
54.900 kr. Mikið úrval vara- og aukahluta!
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mikil fjölgun verður í hópi eldri
borgara á næstu áratugum og er út-
lit fyrir að þeir sem eru orðnir 67 ára
eða eldri og komnir á eftirlaunaaldur
verði þrefalt fleiri eftir 50 ár en þeir
eru í dag. Þetta má lesa út úr upp-
færðri mannfjöldaspá Hagstofunnar
sem birt var í gær.
Mannfjöldaspáin nær til ársins
2061 og byggist á þremur mismun-
andi spáafbrigðum, lágspá, miðspá
og háspá. Íslendingar sem náð hafa
67 ára aldri eru um 34.800 talsins í
dag. Gangi miðspá Hagstofunnar
eftir verða þeir orðnir 99.400 á árinu
2061. Gangi háspáin hins vegar eftir
verða Íslendingar 67 ára og eldri
hins vegar orðnir 101.575 talsins eft-
ir 50 ár.
436 þúsund á árinu 2061
Í miðspá mannfjöldaspárinnar er
gert ráð fyrir að mannfjöldinn á Ís-
landi í lok spátímabilsins verði 436
þúsund. Samkvæmt lágspánni yrði
mannfjöldinn 393 þúsund, en 498
þúsund samkvæmt háspánni.
Hlutfall eldri borgara af heildar-
mannfjöldanum er í dag 10,9% en ef
mið er tekið af miðspánni verður
fjöldi þeirra sem orðnir eru 67 ára og
eldri kominn í 22,8% af heildar fjölda
landsmanna á árinu 2061.
Í umfjöllun Hagstofunnar kemur
fram að í öllum spáafbrigðum er gert
ráð fyrir jákvæðum flutningsjöfnuði
til langs tíma til og frá landinu.
„Sá flutningsjöfnuður er borinn
uppi af erlendum ríkisborgurum, en
til lengri tíma litið flytja jafnan fleiri
íslenskir ríkisborgarar til útlanda en
snúa heim. Sé ekki gert ráð fyrir
neinum áhrifum af búferlaflutning-
um til fækkunar eða fjölgunar yrði
mannfjöldaþróun landsins nokkuð
önnur en hér er gert ráð fyrir í meg-
inafbrigðum mannfjöldaspárinnar.
Sé miðað við forsendur miðspár-
innar að öðru leyti yrðu landsmenn í
lok tímabilsins rúmlega 51 þúsund
færri en ella,“ segir í umfjöllun Hag-
stofunnar.
Meðalævilengd íslenskra karla er
í dag 80,65 ár en kvenna 83,77 ár. Ef
litið er á miðspá Hagstofunnar um
mannfjöldaþróunina kemur í ljós að
drengur sem fæðist á árinu 2060 get-
ur vænst þess að lifa í 86,79 ár og
stúlkan í 88,19 ár skv. spátölum Hag-
stofunnar sem sýna hve mörg æviár
einstaklingur á að meðaltali ólifuð
við upphaf tiltekins aldursskeiðs.
100.000 eldri borgarar
á Íslandi eftir 50 ár
Morgunblaðið/Golli
Spá Landsmönnum gæti fjölgað um 110 til 130 þúsund til ársins 2061.
67 ára og eldri
eru 10,9% af heild
en verða 22,8% 2061
Yngra fólki fækkar
» Búferlaflutningar til og frá
landinu hafa einkum áhrif á
mannfjöldaþróun til næstu ára
að mati Hagstofunnar.
» Aldursskipting landsmanna
breytist mjög á tímabilinu.
Hlutfallslega fjölgar þeim sem
eru 65 ára og eldri en yngra
fólki fækkar.
Bláalónsþrautin, stærsta
hjólreiðahátíð landsins, verður
ræst á sunnudag. „Við erum
komnir með um 300 skráningar
núna,“ segir Reynir Þór Huebner,
varaformaður Hjólreiðafélags
Reykjavíkur. Skráningu lýkur í
dag og hvetur hann alla til að
skrá sig til leiks sem fyrst.
Bláalónsþrautin er fyrst og
fremst hjólreiðamót fyrir almenn-
ing og tilvalin fyrir fólk sem vill
reyna aðeins á sig og njóta góðr-
ar útiveru og verður keppnin
með svipuðu sniði og í fyrra.
Keppninni verður skipt í tvennt
og verður keppt í tveimur flokk-
um, 40 og 60 km vegalengd.
Mikil spenna hefur myndast í
kringum mótið og þá oftast sér-
staklega við rásmarkið. „Við hitt-
umst öll við Ásvallalaug og hjól-
um svo niður að rásmarkinu,“
segir Reynir, en
þar eru saman-
komnir ásamt
keppendum
bæði lögregla,
björgunarsveitir
og viðgerðar-
menn sem passa
upp á öryggi
keppenda og
áhorfenda. Von er á norskum
hjólreiðameistara til landsins,
sem ætlar að taka þátt í bláalóns-
þrautinni. Hann heitir Raymond
Lishaugen og keppir undir
merkjum reiðhjólaframleiðandans
Merida. Hann hefur tekið þátt í
mörgum erlendum keppnum við
góðan orðstír. Það ætti því að
vera spennandi fyrir íslenska
hjólreiðakappa að takast á við
Raymond, næstkomandi sunnu-
dag. pfe@mbl.is
Hjólreiðahátíð Búast má við fjölmenni í Bláalónsþrautinnni á sunnudag.
Hvetur alla til að
skrá sig til leiks
Spenna í loftinu fyrir Bláa lóns-þraut