Morgunblaðið - 06.06.2012, Side 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Rauðag
erði 25 · 1
08 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Allt fyrir kælingu og frystingu
Gott úrval af hillukælum, kæli & frystiskápum, frystikistum,
glerhurðafrontum, gosrennum ofl.
Hillu & tunnukælar
Afgreiðslu- & kökukælar
Gæðamerki og gott verð
Kæli- & frystiskápar , kistur ofl.Glerhurðafrontar, gosrennur ofl.
Brynhildur
Georgsdóttir hef-
ur tekið við starfi
útibússtjóra Ar-
ion banka í Vest-
urbæjarútibúi.
Auk þess að
bera ábyrgð á
rekstri Vest-
urbæjarútibús
mun Brynhildur
taka virkan þátt í uppbyggingu á
miðbæjarsvæði bankans. Brynhild-
ur er lögfræðingur frá Háskóla Ís-
lands og með MBA-gráðu frá sama
skóla. Brynhildur gegndi starfi um-
boðsmanns viðskiptavina Arion
banka frá árinu 2009, samkvæmt
fréttatilkynningu frá bankanum.
Nýr útibús-
stjóri Arion
Brynhildur
Georgsdóttir
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./-
+-0.1-
+,/.21
,+.341
,+.,5/
+1.-/0
+2/.51
+.3420
+-4.44
+35.-3
+,-.0
+--.,1
+,/.12
,+.1,
,+.,33
+0.55+
+2/.//
+.3403
+-3.+2
+3+./+
,,2.5/4+
+25.++
+--.14
+,4.5-
,+.102
,+.2,0
+0.54/
+2/.0+
+.332/
+-3.1+
+3+.03
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Enn sem komið er virðast fá sýnileg
merki um að verðbóla sé byrjuð að
þenjast út á húsnæðismarkaði hér á
landi. Þrátt fyrir fullyrðingar að
undanförnu um bólumyndun á fast-
eignamarkaði – ekki síst vegna
gjaldeyrishafta – þá er staðreyndin
engu að síður sú að húsnæðisverð á
höfuðborgarsvæðinu hefur aðeins
hækkað um tæplega 2% að raunvirði
frá því í ársbyrjun 2011. Það sem af
er þessu ári hefur raunvirði fast-
eigna jafnvel lækkað um 2,7%.
Hagfræðideild Landsbankans tel-
ur því ekki rétt að halda því fram að
vísbendingar séu uppi um verðbólu á
fasteignamarkaði, enda þótt
húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu
hafi hækkað um 10% að nafnvirði frá
því í janúar 2011. Raunverð er þó enn
um 36% lægra en það var þegar það
náði toppi í árslok 2007.
Á það er bent í Vegvísi Hagfræði-
deildar Landsbankans að laun hafa
hækkað umfram fasteignaverð frá
því í ársbyrjun á síðasta ári, en
hækkun nafnlauna á tímabilinu nem-
ur 11,5% á meðan kaupmáttur launa
hefur hækkað um 3,5%. Hlutfall fast-
eignaverðs og launa er nú um stundir
á svipuðum slóðum og meðaltal ár-
anna 1994-2012 og hefur húsnæðis-
verð fylgt kaupmætti launa frá því að
viðsnúningur hófst á fasteignamark-
aði í byrjun árs 2011. Það er mat
Hagfræðideildar Landsbankans að
þótt búast megi við því að raunfast-
eignaverð hækki umfram kaupmátt
á einhverjum tímabilum, þá þurfi
slíkt engu að síður ekki að vera
merki um bólumyndun á markaði.
Skuldir heimila við lánastofnanir
gefa ennfremur ekki til kynna að um
skuldsetta bólumyndun sé að ræða á
húsnæðismarkaði. En rétt eins og
Hagfræðideild Landsbankans vekur
athygli á, þá getur eignabóla sem er
fjármögnuð með skuldsetningu haft
mun alvarlegri afleiðingar fyrir hag-
kerfið heldur en fasteignabóla sem
er fjármögnuð með eigin fé. Sú stað-
reynd að íslensk heimili eru enn of
skuldsett mun því halda aftur af
bólumyndun á húsnæðismarkaði.
Þó raunhækkun húsnæðisverðs sé
lítil þá telur Hagfræðideild Lands-
bankans merki um bata á fasteigna-
markaði. Bæði hefur velta á markaði
og fjöldi kaupsamninga aukist mikið.
Bankinn spáir því að fasteignaverð
muni hækka „hóflega“ umfram verð-
lag á tímabilinu 2012-2014. Sam-
kvæmt spánni mun raunhækkun
íbúðaverðs verða um 1% á þessu ári
en um 7% á öllu tímabilinu að mati
Landsbankans.
Ekkert sem bendir til verð-
bólu á fasteignamarkaði
Húsnæðisverð fylgt kaupmætti frá 2011 2,7% raunverðslækkun á þessu ári
Hægur bati
» Húsnæðisverð á höfuðborg-
arsvæðinu hækkað um 10% að
nafnvirði frá ársbyrjun 2011.
Aðeins 2% raunverðshækkun.
» Fasteignaverð enn um 36%
lægra að raunvirði frá því að
það náði toppi í árslok 2007.
» Það er því ekki rétt að tala
um bólumyndun á markaði.
» Spá 7% raunverðshækkun
fram til ársloka 2014.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
Raunverðsvísitala húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Hlutfall á milli vísitölu húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu og vísitölu launa
Heimild: Þjóðskrá og Hagstofan
200
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Jan. 2001 = 100
2001 2012