Morgunblaðið - 06.06.2012, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Elísabet II. ávarpaði í gær bresku
þjóðina og íbúa samveldislandanna í
sjónvarpi í tilefni af því að 60 ár eru
liðin frá því að hún tók við völdunum í
Bretlandi.
Fjögurra daga hátíðahöldum í til-
efni af valdaafmælinu lauk í gær með
því að sjónvarpað var þakkarávarpi
drottningar. Áður hafði hún sótt
guðsþjónustu í Pálskirkjunni í Lund-
únum og snætt hádegisverð í boði
verkalýðssamtaka í breska þinghús-
inu. Þaðan fór hún í hestvagni ásamt
syni sínum, Karli krónprins, og konu
hans til Buckingham-hallar þar sem
hún fylgdist með flugi breskra her-
flugvéla henni til heiðurs.
Filippus á sjúkrahúsi
Fjarvera Filippusar drottningar-
manns varpaði skugga á hátíðahöld-
in. Filippus var fluttur á sjúkrahús
vegna þvagblöðrusýkingar skömmu
áður en hátíðartónleikar hófust fyrir
framan Buckingham-höll í fyrra-
kvöld. Elísabet ákvað að vera við-
stödd tónleikana þrátt fyrir veikindi
drottningarmannsins og margir
breskir fjölmiðlar hrósuðu henni fyr-
ir þá ákvörðun. „Sýningin verður að
halda áfram,“ sagði í fyrirsögn
þriggja dagblaða, Daily Telegraph,
Daily Mail og Daily Express.
„Mun aldrei afsala sér völdum“
Filippus drottningarmaður verður
91 árs á sunnudaginn kemur. Hann
var fluttur á sjúkrahús fyrir síðustu
jól og gekkst undir aðgerð vegna
kransæðastíflu. Hann virtist þó við
góða heilsu þegar hann fylgdist með
viðhafnarsýningu báta í Tempsá á
sunnudaginn var ásamt drottningu.
Filippus sagði í viðtali í tilefni af
níræðisafmæli sínu fyrir ári að hann
myndi draga úr opinberum störfum
sínum. Breskir fréttaskýrendur telja
að Elísabet fari að dæmi hans á
næstu árum, dragi smám saman úr
störfum sínum án þess að afsala sér
völdum.
„Drottningin mun aldrei afsala sér
völdum, enda hefur hún sagt það
mjög skýrt nokkrum sinnum,“ sagði
sagnfræðingurinn Kate Williams,
sérfræðingur í sögu konungsfjöl-
skyldunnar. „Ef hún fær einhvern al-
varlegan sjúkdóm eins og
alzheimerssjúkdóminn mun hún ekki
afsala sér völdum, Karl myndi þá
vera ríkisstjóri þar til hún félli frá.“
Búist er við að Karl krónprins og
sonur hans, Vilhjálmur, láti meira að
sér kveða opinberlega eftir afmælis-
hátíðina og taki smám saman við
fleiri verkefnum af drottningunni.
Hrósað fyrir ósérhlífni
Talið er að Elísabet dragi smám saman úr opinberum störfum sínum án
þess að afsala sér völdum eftir að hafa verið drottning Bretlands í sex áratugi
AFP
Hátíð Elísabet Bretadrottning í hestvagni með Karli krónprins og eiginkonu hans, Kamillu, á leið til Buckingham-hallar í Lundúnum í gær.
Ósérhlífin fyrirmynd
» Í guðsþjónustu í Pálskirkj-
unni lauk Rowan Williams, erki-
biskup af Kantaraborg, lofsorði
á Elísabetu drottningu fyrir að
helga líf sitt þjónustu við þjóð
sína.
» Williams kvaðst vona að
Bretar fylgdu fordæmi drottn-
ingar með ósérhlífinni þjón-
ustu við aðra.
» „Ég tel að það séu engar
ýkjur að segja að í öllum opin-
berum störfum sínum hafi hún
sýnt þann góða eiginleika að
gleðjast yfir hamingju ann-
arra,“ sagði erkibiskupinn af
Kantaraborg.
Norskir öfga-
menn báru vitni
í réttarhöld-
unum yfir fjölda-
morðingjanum
Anders Behring
Breivik í Ósló í
gær og for-
dæmdu „ísl-
amsvæðingu“
Noregs. Verj-
endur Breiviks
óskuðu eftir vitnisburði öfgamann-
anna til að sýna að Breivik hefði
ekki framið ódæðisverkin vegna
geðveiki, heldur vegna hugmynda
sem hann deildi með fámennum
minnihlutahópi.
„Norðmenn eru í stríði,“ sagði
einn öfgamannanna. „Við höfum
ekki aðeins orðið fyrir árás. Það
er verið að útrýma okkur,“ bætti
hann við.
Ekkert vitnanna kvaðst styðja
fjöldamorðin en eitt þeirra sagði
að á meðal hægrisinnaðra öfga-
manna væru menn sem styddu
árásir og yfirlýsingar fjölda-
morðingjans.
Vitni úr röðum öfga-
manna fordæma
„íslamsvæðingu“
Eitt vitnanna.
NOREGUR
Íbúar þorpsins
Dull í Skotlandi
fá að vita síðar í
vikunni hvort
beiðni þeirra
um sérstök
vináttutengsl
við bæinn Bor-
ing í Bandaríkj-
unum verður
samþykkt.
Embættismenn í
Oregon-ríki eiga á næstunni að
greiða atkvæði um hvort verða
eigi við beiðni um að Boring og
Dull verði „systrabæir“.
Boring var skírt eftir einum
frumbyggja bæjarins, William H.
Boring, en talið er að rekja megi
nafnið Dull til orðs á gelísku yfir
engi, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Boring og Dull
systrabæir?
Skilti við Boring.
ÍRLAND
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
er í þriggja daga opinberri heim-
sókn í Kína til að styrkja viðskipta-
tengsl ríkjanna og auka samstarf
þeirra í orkumálum. Í fylgdarliði
forsetans eru m.a. forstjórar rúss-
neskra orkufyrirtækja á borð við
Gazprom. Leiðtogar ríkjanna
áréttuðu í gær andstöðu sína við
hernaðaríhlutun í Sýrlandi. Pútín
er hér með Hu Jintao, forseta Kína,
í Alþýðuhöllinni í Peking.
AFP
Viðskiptatengslin styrkt
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9-18, LAUGARDAGA: 11-14
MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM
SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í YFIR 1
5 ÁR
S Ó LG L E R -
AU G U N
FÆRÐU HJÁ
OKKUR
MEÐ EÐA ÁN
STYRKLEIKA