Morgunblaðið - 06.06.2012, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur til sölu
Horfnir góðhestar 1-2, Hestar og
reiðmenn á Íslandi, Hestar T.A.,
Frímúrarareglan á Íslandi 25 ára,
Tindátarnir N.T., Íslenskir
sjávarhættir 1-5, Íslensk skip 1-
5, Sýslumannaævir 1-5, Mann-
talið 1703, Manntalið 1801
m/nafnaskrá, Manntalið 1816,
Manntalið 1845 m/nafnaskrá,
Instrux fyrir hreppstjóra, Jarða-
talið 1847, Veiðimaðurinn 1. - 90.
tb., ib., Tröllatunguætt 1-4,
Svarfdælingar 1-2,
Sléttuhreppur, Kollsvíkurætt,
Byggðasaga A-Skaftafellssýslu
1-3, Verslunarsaga V-Skafta-
fellssýslu, Skyggir skuld fyrir
sjón 1-2, Ættir A-Húnvetninga 1-
4, Hrakningar á heiðarvegum 1-
4, glæsiband, Ættir Austfirðinga
1-9, Austantórur 1-3, Gefn 1. - 4.
árg, Bólstaðir og búendur í
Stokkseyrarhreppi, Bergsætt 1-3,
Saga hraunhverfis á Eyrabakka,
Uppruni Íslendinga, Konan í dal-
num og dæturnar sjö.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Garðar
Garðaþjónustan Kropp
Kem og geri tilboð í garðinn kostn-
aðarlaust. Uppl. í síma 778 8278.
Tökum garðinn í gegn!
Klippingar, trjáfellingar, beða-
hreinsanir, úðanir og allt annað sem
við kemur garðinum þínum.
Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð
og umfram allt hamingjusamir
viðskiptavinir.
20% afsláttur eldri borgara.
Garðaþjónustan: 772-0864.
Gisting
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell
Njótið náttúrufegurðar Dýrafjarðar.
Orlofsíbúðir til leigu og hótelgisting.
Sími 456 1600.
gisting@hotelsandafell.com
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi
Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós.
Nánari upplýsingar á
www.nordurnes.info og í símum
561 6521 og 892 1938.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Tómstundir
Fótboltaspil 120cm
Flott fyrir heimili og í sumar-
bústaðinn. Kr. 38.100.
Fínt að reisa upp eftir notkun,
kemst alls staðar fyrir .
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2. h.),
108 Reykjavík. Sími 568 3920.
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897 9809.
Sandblástursfilmur
í öllum stærðum og gerðum fyrir
heimili og fyrirtæki. Sendið fyrir-
spurn á audmerkt@audmerkt.is
eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Ýmislegt
Heimagerðir hamborgarar
og franskar úr 100%
gæðahráefni
Texastilboð alla daga
140 g. ostborgarai, franskar og
gos 1.390 kr.
Nýr hamborgarastaður
Grandagarði 11
texasborgarar.is
TILBOÐ - TILBOÐ
Dömuskór úr leðri með korksóla.
Tilboð: 3.500 kr.
Sími 551 2070.
TROÐFULL BÚÐ AF NÝJUM
SKÓM!
Til dæmis þessir:
Frábærir, velsniðnir dömuskór úr
leðri og skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 40 Verð: 16.650.-
Teg. 2052
Teg. 2039
Teg. 1948
Teg. 2089
Teg. 2050X
Teg: 1993
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugardaga 10 - 14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Kebek - Nama heilsársdekk
TILBOÐ
185/70 R 14 kr. 12.500
185/55 R 15 kr. 11.900
185/65 R 15 kr. 11.990
195/65 R 15 kr. 11.900
205/55 R 16 kr. 13.900
205/50 R 17 kr. 17.500
235/45 R 17 kr. 21.390
225/55 R 17 kr. 19.900
225/65 R 17 kr. 21.700
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Traktorsdekk rýmingarsala
11.2-24 kr. 35.900
14.9-24 kr. 39.900
13.6 -24 kr. (1 stk) 49.900
12.4 – 28 ( 1 stk) kr. 49.900
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
Kópavogi, s. 544 4333.
Rýmingarsala á vörubíladekkjum
315/80 R 22.5 75.000 + vsk.
13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk.
11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk.
425/65 R 22.5 kr.78.885 + vsk.
1100 R 20 kr. 39.500 + vsk.
1200 R 20 kr. 39.500 + vsk.
205/75 R 17 kr. 23.745 + vsk.
8.5 R 17.5 kr. 34.900 + vsk.
.Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur, laga
ryðbletti, hreinsa garða og
tek að mér ýmis smærri
verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi
fannar@fannar.is - s. 551-6488
Elsku fallega amma mín sem
mér þykir svo ótrúlega vænt um.
Hún var alveg einstök og alltaf
svo góð. Við eigum svo mikið af
minningum saman og það er
hægt að telja svo mikið upp; allar
útilegurnar, þar sem maður gat
alltaf farið inn í litla húsið hjá
ömmu og afa þar sem alltaf var
heitt og hlýtt og alltaf var manni
gefið að borða eða drekka. Það
var alveg passað upp á að maður
yrði ekki svangur. Eða fara og
stela rúminu þeirra þegar var
kalt, þá var komið og búið um
Inga Marta
Ingimundardóttir
✝ Inga MartaIngimund-
ardóttir fæddist 2.
september 1943.
Hún lést á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúsi við
Hringbraut 24. maí
2012.
Útför Ingu
Mörtu fór fram frá
Seljakirkju 5. júní
2012.
mann og alveg kom-
ið í veg fyrir það að
mér yrði kalt.
Utanlandsferð-
irnar þar sem hún
fór á kostum með
sínum einstaka
húmor. Gleymi ekki
ferðinni þegar hún
lenti í kiwiofnæminu
og fékk varir eins og
hún væri nýkomin
úr botox. Hún hafði
endalaust gaman af því að rifja
það upp og hló mikið.
Eða þegar við misstum næst-
um því af rútunni þar sem við
sváfum yfir okkur, þegar við vor-
um allar komnar út og niður og
föttuðum að sléttujárnið gleymd-
ist og hún gerði sér ferð og hljóp
til baka til að sækja það. Þar
munaði engu að rútan skildi hana
hreinlega eftir, en svona var
amma, alltaf að hugsa fyrir öllu
og hjálpa öðrum ef hún mögulega
gat.
Svo áttum við mörg yndisleg
jól saman. Hún var alltaf í svo
góðu skapi og vildi alltaf hjálpa ef
eitthvað kom upp.
Það er svo sárt að missa svona
yndislegan ástvin, en allar þær
yndislegu minningar sem ég á
hjálpa mér í gegnum þennan erf-
iða tíma.
Takk fyrir mig elsku amma
mín.
Þín ömmustelpa,
Linda Sif.
Inga er farin í enn eitt ferða-
lagið. Í þetta sinn ein og án okkar.
Einhvern veginn höfum við alltaf
verið með í þessum ferðum, því
þannig vildi Inga hafa það. Ann-
aðhvort með Sigga sínum einum,
en oftast voru börn hennar og
fjölskylda viðstödd eða nærri.
Lýsir það ekki best því sem Inga
stóð fyrir: að vera til staðar fyrir
og með sínu fólki.
Áður en ég kynntist Ingu og
Sigga, höfðum við Silla verið mik-
ið á flakki um landið. Í gegn um
síma áttum við alltaf hauk í horni
hjá leiðsögumanni okkar og ve-
gaflakkaranum Sigga. Hann hafði
allt farið og allt séð og mundi alla
slóða, svo sjaldan urðum við land-
reka í ferðum. Inga hlustaði
næsta víst á lýsingar hans fyrir
okkur í þessum samtölum, því
fljótlega upp úr þessu eignuðust
þau tjaldvagn, síðan fellihýsi og
síðast hjólhýsi sem óspart voru
notuð til að njóta landsins og
þekkingar Sigga á stöðum um allt
land. Hann hafði nefnilega oft
framan af verið fjarverandi um
lengri og skemmri tíma í flutn-
ingum og vegavinnu um allt land,
á meðan Inga var heima að sinna
börnum og búi. Því voru þær
stundir sem þau áttu saman í
ferðalögum og heima, svo dýr-
mætar og mikilvægar.
Inga var alltaf með í öllu, hvort
sem rædd voru heimspekileg mál,
í leik með krökkunum, í „bull-
spuna“, eða „á trúnó“ með hverj-
um sem vildi. Í minningunni er
Siggi líka alltaf við hlið hennar
eins og órjúfanlegur hluti af
henni. Þau voru eitt.
Í minningunni man maður
meira og sumpart mikilvægara
en virtist á þeim stundum þegar
atburðir gerðust. Þannig man ég
alltaf eftir Ingu sem sú sem aldrei
tranaði sér fram, heimtaði athygli
eða krafðist samstöðu með skoð-
unum sínum. Hún hafði æðruleysi
sem mig langar til að læra og
kenna börnum mínum. Hún
þurfti ekki að sanna neitt, því hún
trúði því örugglega að alltaf
mætti læra nýja sýn á alla hluti.
Hún gaf ómælt án skilyrða um
endurgreiðslu.
Fjöldi minninga um húmorinn,
matarveislur, ömmuknúsin, áhorf
á kappleiki Sigurdísar, tjald-
stæði, perlur náttúru Íslands,
samstaða Sigga og Ingu, fíngerðu
og smekklegu hlutirnir á heimil-
um þeirra, grínið, o.m.fl. þýtur
um huga minn, sem allt of langt
mál væri að telja hér. Inga var
alls staðar til að halda hópnum
saman og allir voru meira en sátt-
ir við nærveru hennar. Hennar
viðhorf og hegðun lifir áfram og
er til eftirbreytni.
Inga er farin á betri stað eftir
þjáningar af völdum sjúkdóms-
ins. Þótt fráfall hennar hafi verið
bæði erfitt og sársaukafullt fyrir
eftirlifandi, fór hún í þá ferð með
æðruleysi um að það væri bara
enn eitt verkefnið til að takast á
við. Hún lifði með reisn og fór
með reisn. Annað hefði verið
ósanngjarnt gagnvart henni.
Samstaða Sigga og barna þeirra
gegnum veikindi Ingu sýnir einn-
ig hvers virði andlegur og fé-
lagslegur styrkur fjölskyldu af
hvort öðru er. Mikilvægur og
verðmætur fyrir þá sem eftir lifa
og eftir koma.
Guð blessi góðan vin og geymi.
Megi hann gefa eftirlifandi styrk
og þroska til að bera hennar lífs-
viðhorf og samstöðu áfram.
Friðþjófur Johnson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta
og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra
horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minning-
argreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefn-
um. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar og
hvenær sá sem fjallað er um fædd-
ist, hvar og hvenær hann lést og
loks hvaðan og hvenær útförin fer
fram. Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systkini,
maka og börn, svo og æviferil.
Minningargreinar