Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Ætli ég taki því ekki að mestu rólega yfir daginn og fari svo ífertugsafmæli á Nauthól til systursonar míns, seinna umkvöldið,“ segir Gunnar Guðmannsson, en hann verður 82
ára í dag og verður því tvöfalt tilefni til að fagna.
Gunnar er landsfrægur fótboltamaður og varð Íslandsmeistari
níu sinnum með liði KR, en hann spilaði með félaginu á árunum
1947-65 og var í gullaldarliði KR frá 1959-65. Gunnar hefur mikinn
áhuga á fótbolta og skellir sér stundum á völlinn. Þegar hlýtt er í
veðri finnst honum gott að taka göngutúr vestur í bæ til að fylgjast
með sínum mönnum.
Gunnar hefur dálæti á útivist og segir það lífsnauðsynlegt að
hreyfa sig mikið. „Við hjónin höfum geysilega gaman af útiveru og
reynum að skella okkur í veiði þegar aðstæður eru góðar,“ segir
Gunnar, en þau hjónin nota einnig stundum tækifærið og rölta niður
í miðbæ Reykjavíkur til að njóta blíðunnar.
Aðspurður um eftirminnilegt afmæli, rifjar Gunnar upp þrítugs-
afmæli sitt. „Daginn sem ég varð þrítugur spiluðum við í KR við
Dynamo Moskva og fórum við félagarnir eftir leikinn heim til mín
og héldum smá fögnuð. Þetta var einnig minn 200. leikur fyrir KR,“
en Gunnar bætir kímnislega við að hann ætli ekki að deila úrslitum
leiksins með blaðamanni. pfe@mbl.is
Gunnar Guðmannsson verður 82 ára í dag
Morgunblaðið/Golli
Nunni Gunnar Guðmannsson, þekktur sem Nunni, verður 82 ára í
dag. Hann ætlar að eyða deginum rólega í faðmi fjölskyldu og vina.
Spilaði bolta með
gullaldarliði KR
R
eynir fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp í
Vesturbænum. Hann
var í Ísaksskóla og Æf-
ingadeild Kennarahá-
skóla Íslands, Laugalækjarskóla,
lauk landsprófi frá Gagnfræðaskól-
anum í Vonarstræti, stundaði nám
við Menntaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan stúdentsprófi 1972,
stundaði nám í tannlækningum við
Háskóla Íslands og lauk embættis-
prófi í tannlækningum 1981 og
stundaði framhaldsnám í tannvegs-
fræðum við University of Manitoba í
Winnipeg í Kanada 1982-84. Hann
öðlaðist tannlækningaleyfi 1981.
Tryggingayfirtannlæknir 1996
Reynir var tannlæknir á Fá-
skrúðsfirði sumarið 1981, skólatann-
læknir í Reykjavík 1981-82, opnaði
síðan eigin stofu sem hann hefur
Reynir Jónsson tryggingayfirtannlæknir 60 ára
Fjölskyldan á Kvisthaganum Frá vinstri: Ingibjörg, Reynir, Elín Lára, Sunna Björg, Sesselja, Jón Reynir og
Sindri. Myndin er nokkurra ára eins og sést best á því að Elín Lára og Jón Reynir eru nú komin í menntaskóla.
Af gömlum KR-ættum
Hjá Afa og Ömmu Barnabörnin, Sindri Dagur og Elín Lilja.
Hjónin Ása Árnadóttir og Guð-
laugur Atlason, Egilsgötu 11, Vog-
um, fagna áttræðisafmæli sínu með
opnu húsi í Tjarnarsal Stóru-
Vogaskóla laugardaginn 9. júní frá
kl. 15 til 18 og vonast til að sjá sem
flesta af fjölskyldumeðlimum,
frændfólki og vinum. Ása varð átt-
ræð 31. mars síðastliðinn og Guð-
laugur verður áttræður 28. júní
næstkomandi. Afmælisgjafir eru
vinsamlegast afþakkaðar en
söfnunarkassi fyrir Ljósið verður á
staðnum.
Árnað heilla
80 ára
Osló Lea Carolina fæddist 23. mars.
Hún vó 3.144 g og var 48 cm löng. For-
eldrar hennar eru Edda Jónsdóttir og
Karl R. Lilliendahl.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Guðmundur Ólafsson, stjórnar-
formaður Bergvíkur ehf. og fyrrver-
andi formaður hestamannafélagsins
Fáks, verður níræður 10. júní næst-
komandi. Af því tilefni vill Guðmundur
bjóða ættingjum og vinum að gleðjast
með sér laugardaginn 9. júní í félags-
heimili Fáks í Víðidal frá kl. 19.
90 ára
Skráðu þig inn á netverslun
okkar www.avon.is
og keyptu Super Extend
Extreme maskarann
á einungis 500 kr.
Fullt verð 2.495 kr.
Tilboðið gildir einungis
í netverslun.
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Bursti með greiðu sem
bæði lengir og þéttir
augnhárin.
www.avon.is