Morgunblaðið - 06.06.2012, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Sumarjazz á Jómfrúnni hóf nýverið
göngu sína sautjánda árið í röð. Að
vanda munu því djasstónar óma á
Jómfrúartorgi alla laugardaga í júní
og júlí milli kl. 15-17. „Þessi tón-
leikaröð hefur náð að festa sig í sessi
og er full ástæða til að þakka veit-
ingamanninum fyrir úthaldið, því
góðir hlutir gerast hægt,“ segir
Sigurður Flosason sem verið hefur
listrænn stjórnandi tónleika-
raðarinnar sl. 16 ár.
Aðspurður um dagskrá sumarsins
segir Sigurður mikla vinnu hafa ver-
ið lagða í hana, en markmiðið sé að
hún sé fjölbreytt og í háum gæða-
flokki. „Fram koma margir af okkar
helstu djasslistamönnum auk þess
sem við fáum góða gesti að utan,“
segir Sigurður og nefnir sem dæmi
sænska gítarleikarann Hans Olding
og danska bassaleikarann Richard
Anderson. „Svo er gaman að segja
frá því að Þór Breiðfjörð, sem heill-
að hefur leikhúsáhorfendur í Vesa-
lingunum, mun fara í djassfrakkann
og sýna á sér nýjar hliðar.
Þar sem tónleikarnir fara fram
utandyra liggur beint við að spyrja
hvort veðrið setji aldrei strik í reikn-
inginn. „Við höfum aldrei fellt niður
tónleika, en örsjaldan þurft að færa
okkur inn þegar rignt hefur eldi og
brennisteini.“ silja@mbl.is
Djassgeggjarar Jakob Jakobsson veitingamaður á Jómfrúnni og Sigurður
Flosason sem verið hefur listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar sl. 16 ár.
Djasstónar munu óma alla
laugardaga í sumar
Sumarjazz á Jómfrúnni í 17. sinn
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er í skýjunum enda er þetta gríðarlegur
heiður. Satt að segja bjóst ég ekki við þessu þar
sem ég er í yngri kantinum miðað við þá sem áð-
ur hafa fengið þessi verðlaun,“ segir Anna Þor-
valdsdóttir tónskáld, en tilkynnt var í gær að
hún hefði hlotið Tónlistarverðlaun Norður-
landaráðs 2012 fyrir hljómsveitarverk sitt
Dreymi. Verkið samdi Anna árið 2008 og frum-
flutti Sinfóníuhljómsveit Íslands það árið 2010. Í
framhaldinu fór verkið á plötu Önnu sem nefn-
ist Rhízoma og kom út sl. haust.
„Það felst ómetanleg hvatning í því að fá
verðlaun á borð við þessi. Auk þess eykur þetta
sýnileikann alþjóðlega og það er alltaf gott. Síð-
an er auðvitað frábært fyrir mann sem lista-
mann að fá peningaverðlaun,“ segir Anna, en
verðlaunin eru 350 þúsund danskar krónur eða
rúm sjö og hálf milljón íslenskra króna. Anna
lauk sem kunnugt er doktorsnámi í tónsmíðum
við Kaliforníuháskóla í San Diego (UCSD) sl.
haust. Í viðtali við Morgunblaðið í nóvember sl.
sagðist hún stefna að því að sinna tónsmíðunum
í fullu starfi af þeirri miklu ástríðu og orku sem
hún byggi yfir. Í samtali við blaðamann í gær
sagði hún það ekkert launungarmál að verð-
launaféð sem fylgdi Tónlistarverðlaunum Norð-
urlandaráðs gerði henni kleift af sinna tónsmíð-
unum af krafti og að fyrir það væri hún mjög
þakklát.
Verkið opnar veröld sinfóníunnar
á óvenjulegan og skapandi hátt
Í rökstuðningi dómnefndar um verðlauna-
verkið segir: „Dreymi opnar veröld sinfóníunn-
ar á óvenjulegan og nýskapandi hátt. Upphaf og
lok verksins hljómar utan tíma og myndar
hringrás sem minnir á norrænar goðsagnir og
náttúrutrú. Með tónlistinni er reynt að skapa
reynslu sem fær tímann til að hverfa – eins og í
draumi.
Í norrænum sögnum tengist maðurinn nátt-
úrunni í gegnum drauma sína. Í draumum not-
um við annað tungumál og önnur skilningarvit.
Draumarnir tengja nótt og dag, birtu og myrk-
ur og það er í draumsýninni sem maðurinn
kynnist dauðanum. Tónlistin er munúðarfull og
róleg, en getur einnig komið á óvart og verið
kraftfull og hrottaleg.
Með verkinu Dreymi verður Anna Þorvalds-
dóttir þátttakandi í norrænni hljómsveitarhefð
sem sækir tóna sína bæði í raftónlist og nátt-
úruhljóma norrænnar þjóðlagatónlistar. Hljóm-
arnir eru gerðir jafn nákvæmlega og fínlegur
útsaumur. En verkið er ef til vill einstakt vegna
þess að í því nær höfundurinn að byggja upp og
þróa mikla tónlist á tíma sem virðist standa í
stað. Verkið vex við hverja hlustun og vekur for-
vitni okkar og löngun til að heyra meira.“
Spurð hvað sé framundan hjá sér segist Anna
vera með fjölda smáverkefna í vinnslu. „Auk
þess er ég að semja tónlist við mynd í leikstjórn
Marteins Þórssonar, sem gerði Rokland á sín-
um tíma. Síðan fer ég fljótlega að vinna að
stærra verkefni með hljómsveit í New York sem
heitir The International Contemporary En-
semble (ICE), auk þess sem ég er að semja verk
fyrir hljómsveit og kór fyrir hátíð á Ítalíu. Þann-
ig að það er ýmislegt á döfinni, enda reyni ég
alltaf að hafa nóg að gera.“
Þess má að lokum geta að verðlaunin sjálf
verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki
í byrjun nóvember. Alls voru ellefu tónskáld til-
nefnd til verðlaunanna þetta árið.
„Ómetanleg hvatning“
Morgunblaðið/Kristinn
Tónsmíðar Anna Þorvaldsdóttir segir verðlaunaféð sem fylgi verðlaununum gera sér kleift að
sinna tónsmíðum sínum í fullu starfi á næstu misserum sem sé gríðarlega mikilvægt.
Anna Þorvaldsdóttir
hlýtur Tónlistarverð-
laun Norðurlandaráðs
Magnea Tómasdóttir sópr-
ansöngkona og Lilja Egg-
ertsdóttir píanóleikari
flytja Kabarettsöngva Ben-
jamin Brittens á hádegis-
tónleikum í Háteigskirkju
föstudaginn 8. júní kl.
12:30-13:00. Auk þess leikur
Anna Hugadóttir víóluleik-
ari léttdjassaðar dægur-
flugur frá miðbiki síðustu
aldar ásamt Lilju, s.s. lög á
borð við Moonlight serenade sem hljómsveit
Glenns Millers gerði frægt um árið.
Hádegistónleikarnir í kirkjunni eru haldnir
annan hvern föstudag. Listrænn stjórnandi
tónleikanna er Lilja Eggertsdóttir.
Tónlist
Kabarettsöngvar
Lilja Eggertsdóttir
Fjórða íslenska söguþingið
hefst á morgun í húsakynn-
um Háskóla Íslands og
stendur til sunnudags. Í
boði verða á þriðja tug mál-
stofa um hin ýmsu efni með
yfir 90 fyrirlestrum. Þrír
heimsþekktir sagnfræð-
ingar flytja erindi, þ.e.
Linda Colley og David Can-
nadine, sem bæði eru pró-
fessorar við Princeton-
háskóla, og Geoff Eley, prófessor við háskól-
ann í Michigan í Bandaríkjunum. Skráning og
allar nánari upplýsingar eru á vefnum
www.akademia.is/soguthing.
Sagnfræði
Fjórða söguþingið
Linda
Colley
Guðrún Nielsen skúlptúr-
listakona opnar sýningu í
SÍM-húsinu í Hafnarstæti
16 í dag, en Guðrún er lista-
maður júnímánaðar í SÍM-
húsinu.
Á sýningunni eru ljós-
myndir og módel af verkum
sem flest hafa verið sett
upp á erlendri grund á ár-
unum 1992 til 2012. Einnig
sýnir Guðrún hluta af nýju
verki sem nefnist Borrowed View 231 og kem-
ur beint af sýningu alþjóðlegra skúlptúrlista-
manna í Svíþjóð. Sýningin stendur til 26. júní,
en formleg opnun verður nk. laugardag kl. 15.
Myndlist
Ný sýning hjá SÍM
Borrowed View
231 eftir Guðrúnu.
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs eru
ein fernra verðlauna sem veitt eru ár-
lega af Norðurlandaráði, en til þeirra
var stofnað 1965. Annað hvert ár eru
verðlaunin veitt núlifandi tónskáldi og
hitt árið litlum eða stórum hljóm-
sveitum.
Anna er fimmti Íslendingurinn sem
hlýtur verðlaunin. Fyrstur til að hljóta
þau var Atli Heimir Sveinsson árið
1976, því næst Hafliði Hallgrímsson ár-
ið 1986, Björk fékk þau árið 1997 og
loks Haukur Tómasson 2004.
Í góðum hópi
verðlaunahafa
VERÐLAUNIN VEITT SÍÐAN 1965
Sumarið 2012 frá Chanel er komið
Gréta Boða verður í snyrtivöruversluninni Glæsibæ
dagana 6.-8. Júní. Við tökum vel á móti þér og veitum
faglega ráðgjöf um allt það nýjasta frá Chanel.
Glæsilegar snyrtitöskur frá Chanel fylgja með keyptum
vörum fyrir 12.000,- eða meira.*
*á meðan birgðir endast
Sími 5685170