Morgunblaðið - 06.06.2012, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dansflokkurinn Shalala og hljómsveitirnar Lazy-
blood og Reykjavík! flytja jaðarsöngleikinn Tickl-
ing Death Machine í Iðnó á föstudaginn, 8. júní, kl.
20.30. Verkið var frumsýnt í Brüssel í fyrra, var
síðar sýnt í Orléans og til stendur að sýna það í
Kyoto. Dansarinn og danshöfundurinn Erna Óm-
arsdóttir og tónlistarmaðurinn Valdimar Jóhanns-
son eru forsprakkar Shalala og mynda einnig
Lazyblood. Valdimar er auk þess í hljómsveitinni
Reykjavík! með Bóasi Hallgrímssyni, Hauki S.
Magnússyni, Kristjáni F. Halldórssyni, Ásgeiri
Sigurðssyni og Guðmundi B. Halldórssyni.
„Við höfum mikið verið að vinna með tónlistar-
formið, að setja element úr tónleikaforminu inn í
danssýningarnar en núna erum við eiginlega að
gera öfugt, að taka tónleikaformið og setja dans og
leikræn tilþrif inn í það,“ segir Erna um verkið.
„Við ákváðum að kalla þetta jaðarsöngleik, vorum
að reyna að finna rétt orð til að lýsa þessu. Við
fylgjum ákveðnu konsepti lauslega í sýningunni, í
henni er rauður þráður. Það eru þarna nokkrir
spámenn sem eru að reyna að predika ólíkan boð-
skap sem er misgóður og mistrúverðugur,“ segir
Erna og nefnir að heimsendir komi þar við sögu og
því þurfi menn að njóta augnabliksins.
Þá komi rokkstjarnan sem fyrirbæri einnig við
sögu. „Ég hef gaman af því að fara á tónleika og
fylgjast með því hvernig rokkstjarnan hagar sér,
áhrifunum sem hún getur haft á fjöldann, nánast
heilaþvegið þúsundir manna. Það fara allir í eins
konar trans, tónlist getur haft svo ótrúleg áhrif.“
Hinn mjög svo heillandi flösuþeytingur
„Hugmyndin var að reyna að plata áhorfendur
með okkur inn í nýja vídd, að reyna að frelsa áhorf-
endur í nokkrar sekúndur. Við vonumst til þess að
fólk fari heim með bros á vör og hlýju í hjarta.
Áhorfendur taka ekki beinan þátt í verkinu en
þeim er velkomið að headbang-a sig hauslausa og
helst fara út úr líkamanum,“ segir Erna og hlær.
Hún hvetur áhorfendur til þess að þeyta flösu og
skal engan undra, slíkur þeytingur er henni afar
hugleikinn og hann kemur mikið við sögu í dans-
verkum hennar. „Þetta er mitt uppáhalds-
dansspor, skulum við segja. Þetta er líka eitthvað
sem menn hafa notað bæði á tónleikum og í and-
legum tilgangi, í trúarathöfnum o.fl. Þessi einfalda
en áhrifaríka hreyfing,“ segir Erna.
Að lokum berst talið að forvitnilegum titli verks-
ins. Erna segist hafa heyrt af sérstakri vél sem
kitli kjúklinga áður en þeim sé slátrað og fyrir vik-
ið verði kjötið meyrara. „Við erum að nota þetta
sem líkingu, ætli það sé ekki betra að deyja með
bros á vör og hlýju í hjarta?“ segir Erna kímin.
„Við ímyndum okkur að þetta sé vél sem við tælum
áhorfendur inn í, vél sem fer með þá á nýja staði.“
Kitl fyrir dauðann
Dans og leikræn tilþrif eru færð inn í tónleikaformið í verkinu Tickling Death
Machine Jaðarsöngleikur fluttur af Shalala, Reykjavík! og Lazyblood í Iðnó
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Kitlandi Listamennirnir sem að sýningunni koma og afkvæmi þeirra, Erna og Bóas, fremst á mynd.
www.ernaomarsdottir.com
Breiðskífa Hildar Guðnadóttur,
Leyfðu ljósinu, hefur hlotið afar já-
kvæða gagnrýni í ýmsum fjölmiðl-
um og þ.á m. í breska tónlistarrit-
inu The Wire. Breiðskífan var gefin
út 18. maí sl. og hefur að geyma
tónverk Hildar sem tekið var upp í
Music Research Centre við Háskól-
ann í York í janúar sl. af Tony
Myatt. Breska útgáfufyrirtækið
Touch gefur plötuna út.
Yfirlit yfir þá gagnrýni sem birt
hefur verið um plötuna má finna á
vef Touch, touchmusic.org.uk.
Lofdómar Hildur Guðnadóttir.
Plata Hildar hlýtur
glimrandi dóma
Listamaðurinn
Ummi, eða Unn-
steinn Guðjóns-
son, hefur sent
frá sér smáskífu
með laginu
„Sumarið er
komið aftur“, af
væntanlegri
breiðskífu sinni.
Ummi hefur búið
og starfað í Lundúnum við kvikun
sl. tíu ár en er auk þess tónlistar-
maður. Má geta þess að Ummi var
einn stofnenda hljómsveitarinnar
Sólstrandargæjarnir á sínum tíma.
„Sumarið er komið
aftur“ með Umma
Ummi Guðjónsson
Verk IC-98 sýnt
í Listasafni ASÍ
Ranglega var sagt í blaðinu í gær að
verkið Aview from the other side eða
Útsýnið hinu megin eftir IC-98, sem
hlaut fullt hús stiga í umfjöllun
Politiken, væri til sýnis í Listasafni
Íslands. Hið rétta er að verkið er
sýnt í Listasafni ASÍ. Beðist er vel-
virðingar á þessu. Sýningin stendur
til 1. júlí og er opin alla daga nema
mánudaga milli kl. 13-17. Aðgangur
er ókeypis.
LEIÐRÉTTING
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
PROMOTHEUS 3D Sýnd kl. 4 - 7 - 10
SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 4 - 7 - 10
MEN IN BLACK 3D Sýnd kl. 8 - 10:25
THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 5
FRAMLEIÐENDA BRIDES-
MAIDS
BRÁÐSKEMMTILEG MYND
FRÁ
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Moonrise
Kingdom
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
PROMETHEUS KL. 5.50 - 8 - 10.15 16
SNOW WHITE AND THE... KL. 8 - 10.15 12
MIB 3 3D KL. 6 10
PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16
MOONRISE KINGDOM ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 L
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 9 12
MIB 3 3D KL. 6 - 9 10
GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10
MBL
PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
PROMETHEUS 2D KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 8 - 10.40 12
MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10
MIB 3 2D KL. 5.30 10
LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L
LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 3.30 L
LEITIN AÐ UPPRUNA OKKAR GÆTI LEITT TIL ENDALOKANNA