Morgunblaðið - 06.06.2012, Side 41
Valtari er sjötta hljóðversp-lata Sigur Rósar en fjögurár eru liðin frá því að síð-asta plata sveitarinnar,
Með suð í eyrum við spilum enda-
laust, kom út. Þegar kemur að út-
gáfu hjá Sigur Rós
er náttúrulega um
stórtíðindi að ræða
eftir að hafa verið í
fremstu röð á
heimsvísu í rúman
áratug. Segja má að
sveitin sé aftur komin í ræturnar þar
sem Valtari er heilt yfir lágstemmd
plata og þrjú síðustu lög plötunnar
eru eiginlega frekar hljóðmyndir en
lög. Tónlistin er þarna en það er erf-
itt að festa fingur á hana á meðan
hún líður áfram ekki ósvipað og á
Von, fyrstu plötu Sigur Rósar sem
var að miklu leyti „ambient“ plata.
Valtari var að mestu leyti tekin upp í
hljóðverinu sem sveitin byggði á sín-
um tíma í Mosfellsbæ og í Sundlaug-
inni í Álafoss-kvosinni hefur fjór-
menningunum ásamt
samverkamönnum sínum tekist að
skapa hljóm sem óhætt er að kalla
einstakan. Með nokkurri vissu er
hægt að fullyrða að aldrei muni
verða starfrækt Sigur Rósar „kóver-
band“ og ef einhver væri svo vitlaus
að stökkva á þá hugmynd er fullvíst
að honum myndi mistakast og það
eftirminnilega.
Segja má að þessi einkennis-
hljómur Sigur Rósar sé í aðal-
hlutverki á Valtara. Platan er í
styttra lagi, allavega á mælikvarða
Sigur Rósar. Inniheldur átta lög en
mörg þeirra hafa verið til í töluverð-
an tíma en elstu upptökurnar eru sjö
ára gamlar. Að sögn liðsmanna er
platan hálfgerður bútasaumur þar
sem verið er að vinna bæði með
gamlar og nýjar hugmyndir og upp-
tökur. Þrátt fyrir það stendur platan
sterk sem heild. Miðað við það sem
maður hefur heyrt útundan sér eru
margir ánægðir með Valtarann, ekki
síst gamlir aðdáendur sem hefur
þótt síðustu tvær plötur vera full
poppaðar. Það er ekki að ástæðu-
lausu, lög eins og Rembihnútur og
Dauðalogn eru t.a.m. afar vel heppn-
uð og eru góð viðbót við lagasafn
sveitarinnar. En Sigur Rós nálgast
nú tvítugsaldurinn óðfluga og það er
gott að sjá að hún getur enn gert
tónlist sem hljómar fersk (þrátt fyrir
að vera gömul) ekki síður en góð.
Eftir ærslin sem hafa verið á síðustu
plötum er Valtari samt sem áður
ágætis lending og að mörgu leyti
kærkomin, en platan verður líklega
seint talin með bestu verkum sveit-
arinnar. Til þess eru lögin sem bera
hana uppi of fá.
Rólegir Valtari er heilt yfir lágstemmd plata og þrjú síðustu lög plötunnar eru eiginlega frekar hljóðmyndir en lög.
Geisladiskur
Sigur Rós - Valtari bbbmn
HALLUR MÁR
TÓNLIST
Sigur Rós sveimar yfir
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
EGILSHÖLL
16
16
VIP
12
12
12
12
12
12
L
10
10
ÁLFABAKKA
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
12
L
10
AKUREYRI
16
16
16
16
16
YFIR 50 ÞÚS.
BÍÓGESTIR !
MÖGNUÐ SPENNUMYND
FRÁ LEIKSTJÓRA
V FOR VENDETTA
JOHN CUSACK ER EDGAR ALLAN POE
EMPIRE
EMPIRE
JOHNNY DEPP
FRÁ MEISTARA TIM BURTON
KEFLAVÍK
16
16PROMETHEUS KL. 8 - 10:40 3D
SAFE KL. 8 - 10 2D
LOL KL. 8 2D
THEAVENGERS KL. 5:10 3D
THE LUCKYONE KL. 8 2D
RAVEN KL. 10 2D
UNDRALANDIBBA ÍSLTAL KL. 6 2D
SAFE KL. 10 2D
SNOWWHITE KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
SNOWWHITE VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THERAVEN KL. 5:40 - 8 - 10:20 2D
THEDICTATOR KL. 6 - 8 - 10:10 2D
THE LUCKYONE KL. 8 2D
SAFE KL. 10:40 2D
DARKSHADOWS KL. 5:40 - 10 2D
THEAVENGERS KL. 8 3D
UNDRALAND IBBAM/ÍSL.TALIKL. 6 2D
16
16
KRINGLUNNI
12
12
10
THERAVEN KL. 8 - 10:20 2D
THE LUCKYONE KL. 5:50 - 8 2D
SAFE KL. 10:10 2D
DARKSHADOWS KL. 5:40 2D
THEAVENGERS KL. 6 - 9 3D
SPRENGHLÆGILEGMYND.
Total film Variety
PROMETHEUS KL. 5:30 - 8 - 10:30 3D
PROMETHEUS KL. 10 2D
THEDICTATOR KL. 6 - 8 2D
SNOWWHITE KL. 5:20 - 8 - 10:40 2D
THEAVENGERS KL. 5:20 3D
THERAVEN KL. 8 - 10:20 2D
Árin segja sitt1979-2012
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is
Prometheus
Árið er 2093. Vísindamaðurinn
Elizabeth Shaw finnur hella-
málverk sem fela í sér vísbendingu
um að geimverur hafi komið til
jarðar fyrir mörg þúsund árum og
einnig stjörnukort sem liggur að
tungli einu í litlu sólkerfi óralangt
frá jörðu. Shaw heldur þangað í
háþróuðu geimfari, Prómeþeusi,
með hópi vísindamanna. Í ljós kem-
ur að þeim var líklega ekki ætlað
að halda þangað og þarf hópurinn
að berjast fyrir lífi sínu og framtíð
mannkyns. Hluti myndarinnar var
tekinn á Íslandi. Leikstjóri er Rid-
ley Scott og í aðalhlutverkum eru-
Noomi Rapace, Charlize Theron,
Michael Fassbender, Sean Harris,
Idris Elba, Kate Dickie og Logan
Marshall-Green.
Rotten Tomatoes: 79%
L’Heure d’été
L’Heure d’été, eða Sumartíð, segir
af systkinum sem missa móður sína
og þurfa að taka ákvörðun um það
hvort selja eigi ættaróðalið eða
ekki. Þá vakna upp spurningar um
gildi minninga og hvers virði fjöl-
skylduböndin eru þeim. Leikstjóri
myndarinnar er Olivier Assayas og
í aðalhlutverkum Juliette Binoche,
Charles Berling og Jérémie
Renier.
Rotten Tomatoes: 93%
Fjallkonan hrópar á vægð
Heimildarmynd eftir Herdísi Þor-
valdsdóttur sem frumsýnd var á
heimildarmyndahátíðinni Skjald-
borg í maí sl. Myndin fjallar um
gróðureyðingu og stöðvun lausa-
göngu búfénaðar á Íslandi. Herdís
hefur barist gegn lausagöngu bú-
fénaðar í rúma þrjá áratugi.
Líf og sjóðir
Heimildarmynd í tveimur þáttum
eftir Gunnar Sigurðsson. Í henni er
fjallað um lífeyrissjóði Íslendinga,
sögu þeirra og stöðu og framtíðar-
horfur. Myndin var sýnd á Skjald-
borg og verður sýnd á RÚV í haust.
Bíófrumsýningar
Allt frá geimverum
til lífeyrissjóða
Hættuför Úr nýjustu kvikmynd Ridleys Scotts, Prometheus.