Morgunblaðið - 06.06.2012, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 158. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Þessir voru í jómfrúferð Wow air
2. Óvenjuleg tvíburajarðarför
3. Greip golfbolta á 193 km hraða
4. Hundur stórslasaði barn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Partíþokan nefnist tónlistarhátíð
sem haldin verður á Seyðisfirði 22.
og 23. júní. Boðið verður upp á tón-
leika, uppistand og Jónsmessu-
brennu. Meðal hljómsveita sem fram
koma eru Jónas Sigurðsson og Rit-
vélar framtíðarinnar og Prins Póló.
Morgunblaðið/Ernir
Tónleikar, uppistand
og Jónsmessubrenna
Stór hópur
framleiðenda,
umboðsmanna og
stjórnenda
listahátíða og
leikhúsa í Evrópu,
Bandaríkjunum
og Asíu fylgdist
með forsýningum
á verkinu Bast-
ards í Borgarleikhúsinu sl. helgi með
það í huga að taka verkið til sýningar
erlendis. Verkið verður sýnt í Malmö í
júlí og í Kaupmannahöfn í september.
Það verður síðan æft upp á nýtt í
Borgarleikhúsinu og frumsýnt með
íslenskum leikurum í október.
Stór hópur útlend-
inga skoðaði Bastards
Hljómplatan Early Birds með
hljómsveitinni múm er komin út,
bæði sem geisladiskur
og tvöföld vínylplata.
Á plötunni má finna
safn laga eftir
múm frá lokum
síðustu aldar,
lög sem hafa
ekki verið gefin
út áður.
Early Birds nefnist
safnskífa múm
VEÐUR
Tap í uppbótar-
tíma á KR-velli
Nú þegar rétt um 50 dagar eru þar til
Ólympíuleikarnir í London verða sett-
ir eru íslensku ólympíufararnir orðnir
23 talsins. Enn eru góðar líkur á að
fleiri bætist í hópinn en nokkrir
íþróttamenn eru þessa dagana að
berjast við að ná lágmörkum fyrir
leikana, sem settir verða 27. júlí. »2
Ólympíufararnir eru
orðnir 23 talsins
„Liverpool er stórt og öflugt félag
sem á glæsilega sögu og það kemur
alveg til greina. Ég hef ekkert rætt
við Brendan um þau mál en eftir að
hann var ráðinn til Liverpool óskaði
ég honum til hamingju og þakkaði
honum fyrir góðan tíma hjá Swan-
sea,“ segir Gylfi Sigurðsson sem veit
ekki í hvorri Keflavíkinni hann rær á
næstu leiktíð. »1
Liverpool kemur alveg
til greina hjá Gylfa
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Það er allt vitlaust að gera,“ segir
Júlíus Már Baldursson á Tjörn á
Vatnsnesi, en hann er með land-
námshænur í fóstri fyrir fólk auk
þess sem leigja má hjá honum hæn-
ur til nokkurra mánaða ef vill.
Stærsta búið
Júlíus Már rekur stærsta búið
með íslensku landnámshænuna en
um 230 hænur og 35 hanar eru í
stofninum á Tjörn. Auk þess er
hann alltaf með 15-20 tæplega árs-
gamla kynbótahana til sölu. „Það
eru samt hvorki dollaramerki í aug-
um né digrir sjóðir í banka,“ segir
hann og minnir á að hann sé enn að
byggja upp eftir að útihúsin brunnu
til grunna með öllu sem í þeim var
fyrir rúmlega tveimur árum.
Hann hefur reglulega haldið
námskeið um fuglana og segir að
fólk hafi haft samband, lýst yfir
áhuga á að eiga hænu en ekki haft
tök á því vegna búsetu til dæmis í
blokk í miðjum bæ. „Ég bauð því
bara að fóstra hænu,“ segir hann.
Samningurinn gengur út á það að
viðkomandi velur sér landnáms-
hænu og kaupir sér rétt á henni en
geymir hana á Tjörn. Kaupandi
borgar fóðrið ofan í hænuna í tvö
ár, greiðir 21.000 kr. og fær í stað-
inn 440 egg, þ.e. eitt kg af eggjum
á mánuði eða 20 egg á mánuði í 11
mánuði á ári. Hænan gerir hlé á
varpinu í mánuð í lok ágúst fram í
byrjun september, þegar hún fer í
fiðurskipti fyrir veturinn. „Margir
koma og heimsækja hænuna á
tímabilinu, halda á henni og láta
mynda sig með hana, og ég bíð
þeim þá upp á kaffi og spjall,“ segir
Júlíus Már.
Fólk á höfuðborgarsvæðinu sæk-
ir eggin á ákveðinn stað á svæðinu
en þau eru send til þeirra sem búa
annars staðar á landinu. „Ég byrj-
aði á þessu 2007 og áður en brann
var ég með um 70 hænur í fóstri en
nú eru þær um 20 og fer fjölgandi.
Þetta hefur verið vinsælt í afmælis-
og brúðargjafir og sérstaklega
handa eldra fólki sem á allt.“
Júlíus Már segir að það hafi líka
færst í aukana að fólk, sem sé í
sumarbústöðum allt sumarið, hafi
fengið sér hænsnakofa og síðan
leigt hænur. „Það kemur hingað
og leigir sér þrjár til fimm hæn-
ur í byrjun júní og skilar
þeim í september eða
október, fær arðinn af
þeim á meðan.“
Hænur í fóstri og einnig til leigu
Eigendur heimsækja hænur sínar
Með hænur í sumarbústöðum
Landnámshænur Júlíus Már Baldursson er með um 230 hænur og 35 hanar eru í stofninum hjá honum á Tjörn á Vatnsnesi.
Júlíus Már Baldursson var 18
ára þegar hann fékk fyrstu
fuglana hjá Stefáni Aðalsteins-
syni á Keldum og síðan eru lið-
in 34 ár, en talið er að innan
við 300 fuglar hafi verið í
landinu, þegar Stefán hóf
björgunarstarf sitt um
1970. „Ég veit ekki hvað
gerðist þegar ég fór í
viðtal hjá Stefáni og
skoðaði fuglana, en eitt-
hvað heillaði mig og
ég hef verið með
dellu síðan.“
Fékk delluna
18 ára gamall
JÚLÍUS OG HÆNURNAR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning eða slydda á NA- og A-landi og dálít-
il rigning norðvestanlands. Hiti 2 til 8 stig, en 8 til 13 suðvestantil.
Á fimmtudag Austan og norðaustan 5-15 m/s, hvassast syðst.
Rigning um tíma á S- og SA-landi, annars skýjað og yfirleitt þurrt.
Á föstudag Austlæg átt, 8-13 m/s. Súld eða dálítil rigning austan-
lands og við suðurströndina, annars skýjað með köflum.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu karla, skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri,
tapaði í gærkvöldi fyrir
Aserbaídsjan, 2:1, í undan-
keppni Evrópumótsins en
leikið var á KR-velli. Aserar
skoruðu sigurmarkið í upp-
bótartíma. Íslenska lands-
liðið rekur lestina í undan-
riðlinum með þrjú stig eftir
sex leiki en tveir eru eftir í
keppninni, gegn
Noregi og Belgíu. »3