Helgafell - 01.04.1942, Qupperneq 21

Helgafell - 01.04.1942, Qupperneq 21
UPPRUNI ÍSLENZKRAR SKÁLDMENNTAR 61 af Galdra-Möngu og jafnvel í talshættinum: ,,Ef maður er saursæll, verður maður auðsæll“. En svo sem kunnugt er, var Freyr goð auðsældarinnar og ,,fégjafi“ kallaður. Guðbr. Vigfússon virðist einna helzt byggja ályktun sína um tengslin milli saurörnefna og Freys- og Freyjuátrúnaðar á skyldleika orð- anna saur, súr og Freyjuheitisins Sýr. Um orðrótafræði treysti ég mér ekki að rita, en auðvelt er það að athuga, hvað orðabækur herma um merkingu orðsins saur í norrænum málum. Vel mætti sú athugun verða til nokkurs skýringarauka, því að þýðingar orðs þessa eru furðu margar: Votlendi, bleyta í jörð, dý, skítur, hland, óhreinindi, sæði manna, útsæði, illgresi í ökrum, illgresisfræ. Auk þess er saur og saura heiti nokkurra mýra- eða votlendis- plantna. Hérlendis virðast höfuðmerkingar orðsins hafa verið votlendi, skít- ur, sæði og óhreinindi. Vafalaust eru hinar þrjár fyrrtöldu merkingar allar úr heiðni. 1 fyrstu kemur það kynlega fyrir sjónir, að svo óskyld hugtök, sem nú voru nefnd, skuli öll vera táknuð með sama heiti. Þegar nánar er að gætt, verður þó annað uppi á teningnum. Það er eldri uppgötvun en Njáluhöfundur vildi vera láta, að taða sé betri þar, sem skarni er ekið á hóla. í fjarlægri forneskju hefur hin skynigædda mannvera hlotið að veita því eftirtekt, að skít og vatni fylgdi sérstakur gróðrarkraftur. Þess vegna munu náin tengsl hafa myndazt í hugarheimi manna milli skíts, gróðursæls vot- lendis, hins gróskumikla illgresis, votlendisjurta og fagurgrænu dýjanna. Allt saman hlýtur sama heiti, og það heiti er tákn frjóseminnar. Saur- samheiti fræja og sæðis manna er sýnilega af sama toga spunnið. Þar sem lífskrafturinn og gróandinn gerðu berast vart við sig, hafa frumstæðir for- feður ætlað, að vættur frjóseminnar væri. Sú vættur hefur eitt sinn borið nafnið Saur og verið dýrkuð. 1 fornsögnum finnum við hann í líki konungs- hundsins Saurs. Erpur lútandi, forfaðir Gilsbekkinganna, leysti höfuð sitt með kvæði um hundinn Saur, er honum hafði orðið það á að vega mann í véum. Þau vé hafa verið helguð Saur. Þess vegna fjallaði höfuðlausnarkvæð- ið um hundinn. Saur sem heiti óhreininda hlýtur nú að draga að sér athyglina í ríkum mæli. Þessi merking orðsins mun varla ýkja gömul, enda notuð í senn um sálrænan og líkamlegan óþrifnað. Tilbreytni þá mun mega skoða sem fingra- för kirkjulegra menningaráhrifa á fornhelgu hugtaki. Frá því sjónarmiði séð verður næsta auðskilið, hvers vegna saur hefur hlotið svo ógeðfellt hlutskipti í málþróuninni sem raun ber vitni um. Hin heiðna saurtrú hefur vissulega verið nátengd kynferðislífinu og hlaut því að mæta megnustu andúð hjá kristnum mönnum. Að ,,blóta heilög goð“ eru samfarir manns og konu kallaðar í vísu einni í Ragnars sögu. Orðbragðið bendir til fornra tengsla milli blóta og ,,saurlífis“. Við Freysblót meðal Svía hyggja fróðir menn, að samræði hafi átt sér stað sem eins konar helgiathöfn. Hliðstæð dæmi eru
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.