Helgafell - 01.04.1942, Blaðsíða 20

Helgafell - 01.04.1942, Blaðsíða 20
60 HELGAFELL þá þingið inn í nesið þar sem nú er. — Og þá er Þórður gellir skipaði fjórð- ungsþing lét hann þar vera fjórðungsþing Vestfirðinga". — ,,Var á því þingi hinn mesti helgistaður, en eigi var mönnum þar bannað að ganga örna sinna“. Á frásögn þessari eru óvenju skýr sannindamerki. Þótt hæpið sé, hvort söguritarinn sjálfur hafi glöggvað sig á kjarna málsins, má vafalaust treysta höfuðatriðum sögunnar. Þeir feðgar, Þórólfur Mostrarskegg og Þorsteinn þorskabítur, eru sagðir ákafir Þórsdýrkendur og trúðu því, að Þórsnesingar dæi í Helgafell. Höfðu þeir svo mikinn trúnað á fellinu ,,að þangað skyldi engi maður óþveginn líta, og svo var þar mikil friðhelgi, að þar skyldi engu granda í fjallinu, hvorki fé né mönnum, nema sjálft gengi brott“. Þannig er í arfsögnum þessi ætt auðkennd. Það leynir sér heldur ekki, að nágranna- höfðingjarnir í Bjarnarhöfn og Hvammi hafa hyllt aðra trúarstefnu og siði en Þórsnesingarnir. Svo sem Freysgyðlingarnir í Oræfasveit voru bæði Kjall- eklingar og Hvammverjar af ættkvísl Bjarnar bunu. Liggur sú ætlun því nærri, að menningarviðhorf og lífsskoðun þessara náskyldu ættgreina hafi verið hin sama í aðalatriðum. Meðal Freysgyðlinga og Hvammverja rekumst við einnig á hofgyðjur. En svo sem Magnús Olsen hefur fullyrt, störfuðu ein- mitt kvenprestar á trúarbragðavettvangi Freysdýrkendanna. Þegar alls þessa er gætt, verða átökin um þinghelgina í Þórsnesi ekki torskýrð. Sú skýring er með öllu óhafandi, að Kjalleklingum hafi gengið einber stráksskapur til uppnámsins á Þórsnesþingi. Gerðarmaðurinn, Þórður gellir, gefur Þórsnesingum höfuðsök á því, hvernig fór. Var hann þó ,,námágur“ Þorsteins þorskabíts. Söguritarinn tekur það sérstaklega fram, að á hinum nýja og háhelga fjórðungsþingstað í Þórsnesi hafi mönnum ekki verið „bannað að ganga örna sinna“. Hinn blóðugi bardagi út af helgispjöllunum virðist háður einhvern tíma á árunum kringum 930. Um 964 eru fjórðungs- þing sett á stofn. Hvað olli því, að nú máttu menn óátaldir ganga örna sinna á hinum helga þingstað ? Helzt má ætla, að breyting hafi orðið á trúarviðhorfi og siðum Þórsnesinganna. Það er þetta, sem höfundur Gíslasögu staðfestir með frásögnunum um Freysdýrkun Þorgríms goða, sonar Þorsteins þorska- bíts. Þorsteinn féll frá á unga aldri. Synir hans ólust upp undir forsjá móður- innar, en hún var systir Hvammverjans Þórðar gellis. Að hætti móðurfrænda hneigjast hinir ungu Þórsnesingar að dýrkun frjósemisgoðanna, og um leið er lokið siðabaráttu ættarinnar gegn Hvammverjum og Kjalleklingum. Það mun óhætt að telja heiftarofsann og mannvígin út af ,,álfrekinu“ táknrænt dæmi um átök milli ólíkra trúarskoðana. Þetta er mergur málsins í hinni undarlegu Eyrbyggjufrásögn um bardagann í Þórsnesi. Orðið álfrek virðist eiga rót að rekja til einhvers konar átrúnaðar á dular- mátt í saur. Endurskin slíkrar trúar mun einnig koma fram í þjóðsögunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.